Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 43
Gestastofa þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls verður opnuð á nýjum
stað á Malarrifi í maí og verð-
ur hún í útihúsunum sem gerð
hafa verið upp. „Sýningu gesta-
stofunnar verður lítillega breytt
frá því sem hún var og aðlöguð
að húsnæðinu og umhverfinu en
á sýningunni verður áfram lögð
áhersla á náttúrufar svæðisins
og tengsl mannsins við umhverfi
sitt,“ segir Guðbjörg Gunnars-
dóttir, fráfarandi þjóðgarðsvörð-
ur, en hún gegndi starfinu frá
haustinu 2001.
„Sýningin sjálf verður í fjár-
húsunum þar sem höfðað verð-
ur til skilningarvitanna og gest-
ir hvattir til að smakka, lykta
og reyna. Sýningin hefur fengið
góða dóma gesta í gegnum árin og
höfðar til barna jafnt sem fullorð-
inna. Á gestastofunni veita land-
verðir upplýsingar um þjóðgarð-
inn og nágrenni hans, svo sem
gönguleiðir, en einnig almenn-
ar upplýsingar um veður, færð,
kaffihús í nágrenninu, sundlaug-
ar og fleira. Ekki má gleyma
að þar eru salerni og verða tvö
þeirra opin allan sólarhringinn.
Gestastofan er opin allan ársins
hring.“
Malarrif er fallegt og fjöl-
breytilegt svæði og frábært til
alls kyns fræðslu og útivistar
fyrir fjölskyldur að sögn Guð-
bjargar. Hún nefnir að síðustu ár
hafi þjóðgarðurinn fengið aukið
fé til framkvæmda og hafi verið
unnið að því að bæta aðgengi og
vernda náttúruna um leið gegn
átroðningi. „Ekki veitir af en
á milli áranna 2014 og 2015 fór
fjöldi gesta sem komu á gesta-
stofuna úr rúmum átján þúsund-
um í tæp 28 þúsund. Við höfum
meðal annars sett upp fræðslu-
skilti, byggt upp göngustíga, og
útsýnis- og öryggispalla á völd-
um stöðum. Má þar nefna staði
eins og við Skálasnagavita, Sval-
þúfu, Djúpalónssand og Saxhól.
Enn vantar þó fjármagn til fram-
kvæmda því margt þarf enn að
gera til að undirbúa svæðið fyrir
komu fleiri ferðamanna. Við feng-
um nýlega þær góðu fréttir að við
fengjum meira fjármagn í land-
Fallegt og fjölbreytilegt svæði
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull verður fimmtán ára þann 28. júní næstkomandi. Gestastofa þjóðgarðsins verður opnuð á Malarrifi í maí en
hún hefur verið á Hellnum frá árinu 2004. Sýning stofunnar hefur fengið góða dóma og höfðar til bæði barna og fullorðinna.
Yfir sumartímann býður þjóðgarðurinn upp á gönguferðir með landvörðum og
leggja þeir áherslu á fræðslu um náttúru og sögu svæðisins. Meðal annars er
gengið um svæðið nærri Tröllakirkju.
Að undanförnu hafa verið sett upp fræðsluskilti, byggðir upp göngustígar og
útsýnis- og öryggispallar á völdum stöðum í þjóðgarðinum meðal annars á Sval-
þúfu, Lóndrangar fjær.
Guðbjörg Gunnarsdóttir, fráfarandi þjóðgarðsvörður. Hún gegndi starfinu frá
haustinu 2001.
„Námið hefur algerlega staðist
væntingar. Það er þverfaglegt og
gengur því þvert á alla þætti ís-
lenskrar náttúru og umhverfis,“
segir Björk sem er fædd og uppal-
in á Hvanneyri en flutti til Reykja-
víkur til að ganga í menntaskóla
og æfa knattspyrnu. „Ég hef alltaf
elskað sveitina og fann mig ekki í
borginni,“ segir Björk. Þegar kom
að því að velja framhaldsnám
ákvað hún að skoða hvað Landbún-
aðarháskólinn hefði upp á að bjóða.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
raungreinum og náttúrufræði, en
samt var ég ekki viss um hvað mig
langaði að gera í framtíðinni. Þá
datt ég niður á þetta nám í náttúru-
og umhverfisfræði hér á Hvann-
eyri. Mér þótti mikill kostur hvað
það var fjölbreytt og tók á mörgum
þáttum náttúrufræðinnar,“ segir
Björk. Hún hóf námið haustið 2014
og lýkur því vorið 2017.
Gestakennarar úr atvinnulífinu
Björk er afar ánægð með námið
og telur það gefa sér mjög góðan
grunn. „Þá finnst mér mjög mik-
ilvægt að námið fari fram á
stað eins og Hvanneyri sem er á
RAMSA votlendisverndarskrá
vegna sérstæðrar náttúru og dýra-
lífs.“
Einn af helstu kostum námsins
að mati Bjarkar er hin góða teng-
ing þess við atvinnulífið. „Áfang-
arnir í náminu eru mjög fjölbreytt-
ir og við fáum reglulega gesta-
kennara sem koma frá hinum
ýmsu stofnunum og fyrirtækj-
um. Þeir hafa mörgu að miðla og
með þessu fær maður góða tilfinn-
ingu fyrir því sem er að gerast í at-
vinnulífinu.“
Borgarbörnin ánægð í sveitinni
Björk sjálf er afar ánægð með lífið
á Hvanneyri og hún segir að sam-
nemendum hennar, sem marg-
ir hverjir eru borgarbörn, finnist
frábært að búa í þessum litla bæ.
„Flestum finnst afar jákvætt að
vera ekki í borginni. En þó þetta
sé í sveit er Hvanneyri orðin tals-
vert stór bær í dag og á veturna
er hér mjög gott félags- og menn-
ingarlíf og mikil stemning á nem-
endagörðunum. Þá má líka benda á
að stutt er í Borgarnes þar sem er
að finna alla þjónustu,“ segir Björk
og bætir við að aðeins taki klukku-
stund að renna til Reykjavíkur.
Björk ætlar í frekara nám eftir
útskrift og hugurinn stefnir til
útlanda. „Mig langar í nám sem
tengist náttúru eða landbúnaði og
þar koma Þýskaland og Holland
sterkt inn,“ segir Björk. Hún telur
sig vel stadda með þann grunn sem
hún hefur fengið á Hvanneyri. „Ég
mæli eindregið með þessu námi,
sér í lagi fyrir þá sem eru ekki til-
búnir til að sérhæfa sig í einhverju
einu en hafa áhuga á raunvísindum
og náttúrufræði.“
Góður andi
og tenging
við atvinnulífið
Björk Lárusdóttir stundar nám í náttúru- og
umhverfisfræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Björk er afar ánægð með lífið á Hvanneyri og segir yndislegt að vera fjarri ys og þys borgarinnar.
vörslu í sumar en áður sem skipt-
ir gríðarlegu máli fyrir allt starf
hér í þjóðgarðinum og í friðlönd-
unum sem eru í umsjón okkar en
það eru ströndin við Arnarstapa
og Hellnar og Búðahraun. Auk
landvarða koma fimm erlendir
sjálfboðaliðar til okkar í vinnu í
átta vikur.“
Yfir sumartímann býður þjóð-
garðurinn upp á gönguferðir
með landvörðum og leggja þeir
áherslu á fræðslu um náttúru og
sögu svæðisins. „Við hvetjum fólk
til að nýta sér þessa þjónustu og
koma í ferðir en þær eru ókeyp-
is og oftast við flestra hæfi. Við
auglýsum þær meðal annars á
Face book-síðu þjóðgarðsins,“
segir Guðbjörg.
Kynningarblað KoMdu veSTur
29. apríl 2016 15
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
4
1
-8
7
E
8
1
9
4
1
-8
6
A
C
1
9
4
1
-8
5
7
0
1
9
4
1
-8
4
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K