Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 44

Fréttablaðið - 29.04.2016, Page 44
„Það er mikið í gangi hjá okkur hjá UMFÍ þessa dagana sem allt styður við það markmið okkar að bæta lýðheilsu fólks. Við erum að skipuleggja Landsmót UMFÍ 50+ sem verður á Ísafirði í júní og Unglingalandsmót UMFÍ sem nú verður í Borgarnesi um versl- unarmannahelgina. Stærsta verk- efnið okkar núna er Hreyfivika UMFÍ í maí,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri UMFÍ. Allir hreyfa sig Margir þekkja landsmót UMFÍ og aðra íþróttaviðburði. En UMFÍ gerir margt fleira. „Meirihluti barna- og ungmennastarfs á Ís- landi er innan vébanda UMFÍ. Við héldum sem dæmi stóra ráð- stefnu á Selfossi í mars með 80 ungmennum hvaðanæva af land- inu á aldrinum 16-25 ára um geð- heilbrigðismál ungs fólks,“ segir Auður og leggur áherslu á að UMFÍ vinni stöðugt að því að koma auga á þau tækifæri sem nýta má til að efla hreyfingu og bæta lýðheilsu fólks, bæði and- lega og líkamlega. „Mottó okkar liggur í því að taka þátt,“ segir Auður. „Það þarf ekki að vera afreksmaður. Allir geta til dæmis tekið þátt í Hreyfi- viku UMFÍ á eigin forsendum, á eigin hraða, tíma og getu. Þetta er UMFÍ í hnotskurn. Við erum alltaf að stefna að því að gera gott betra.“ Ómetanlegur sjálfboðaliði Starf sjálfboðaliða er grundvöll- urinn að starfsemi UMFÍ. Meiri- hluti þeirra sem sitja í stjórnum sambandsaðila og aðildarfélaga UMFÍ vinna að verkefnum hreyf- ingarinnar og framgangi hennar í frítíma sínum. „Hlutur sjálfboða- liða er ómetanlegur og á stærst- an þátt í að verkefni UMFÍ beri árangur,“ segir Auður. UMFÍ er góð hreyfing fyrir alla Auður Inga Þorsteinsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) fyrir rúmu ári. Hún segir starf sjálfboðaliða UMFÍ ómetanlegt og gera góð verk betri. Sigmundur er fæddur og uppalinn á Látrum og tók við búi af föður sínum. Látrar hafa alla tíð stað- ið afskekkt og lífsbaráttan getur verið hörð á slíkum stað. „Það var eiginlega nýtt landbúnaðar- kerfi fyrir búfé sem hafði áhrif á flutningana. Við hefðum þurft að breyta svo miklu á Látrum þannig að það var hentugra að færa okkur um set,“ útskýrir Sig- mundur sem er faðir yngsta þing- manns landsins, Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur. Sigmundur segir að þau hjónin hafi leitað nokkuð lengi að réttu jörðinni. Þegar þau duttu niður á Miðgarða í Kolbeinsstaðahreppi í Borgarfirði varð ekki aftur snúið. „Þetta er 240 km leið að vestan þannig að verkefnið var ærið að flytja og því er ekki lokið enn. Það gekk mjög vel að fara með grip- ina, var gert í október á einum degi. Meira mál er að flytja allar græjur og ég er búinn að fara margar ferðir á milli. Veturinn hefur verið léttari hér en fyrir vestan. Hér er enginn snjór að ráði,“ segir Sigmundur sem er með um 100 nautgripi. Hann segist ekki sakna heima- haganna að öðru leyti en að þar var oft mikið logn og kyrrð dögum saman. „Maður saknar þess að sjá ekki sjóinn daglega en ég hef nú verið með annan fótinn á Látrum, á þar sumarhús. Héðan úr Borgarfirði er stutt í allar áttir og við erum bara hálftíma niður í Borgarnes. Lífið hér er mun þægi- legra þar sem maður er kominn yfir miðjan aldur. Auðvitað sakn- ar maður vina sinna fyrir vestan en ég hitti þá stundum. Það er þó orðið rosalega fámennt í Innra- Djúpi. Bærinn á Látrum er í eigu okkar systkinanna og verður það áfram. Krakkarnir mínir höfðu áhuga á búskap en það var erfitt að viðhalda honum í Djúpinu þar sem enginn grunnskóli er leng- ur. Eldri sonur minn er með tvö börn á grunnskólaaldri og yngri sonur minn sækir framhaldsskóla í Borgarnesi. Það breytir miklu að geta keyrt í skólann.“ Sigmundur segist vera ánægð- ur með nýju staðsetninguna. Hann þekkti marga bændur í hreppnum áður enda hefur hann gegnt margvíslegum trúnaðar- störfum innan Bændasamtak- anna. „Borgarfjörður hentar okkur vel að flestu leyti og hér erum við sátt,“ segir Sigmundur bóndi hress í bragði. Flutti allt sitt frá Djúpinu í Borgarfjörð Sigmundur H. Sigmundsson bóndi og eiginkona hans, Jóhanna María Karlsdóttir, fluttu ásamt fjölskyldu og bústofni frá Látrum í Mjóafirði í Ísafjarðarsýsu í Borgarfjörðinn síðastliðið haust. Ferðalagið var erfitt en fjölskyldan er ánægð. Sigmundur bóndi meðan hann bjó enn á Látrum í Mjóafirði með hundinn Vamos. Þeir félagar voru við girðingavinnu.Sigmundur á aðalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða. HREYFIVIKA UMFÍ 23.- 29. MAÍ Ungmennafélag Íslands | Sigtúni 42 | 105 Reykjavík | 568 2929 | www.umfi.is LANDSMÓT 50+ 10. - 12. JÚNÍ 2016 UNGLINGA- LANDSMÓT VERSLUNARMANNAHELGIN NÆSTU VIÐBURÐIR! Hreyfivika UMFÍ snýst um að kynna kostina sem felast í virkri hreyfingu. UMFÍ hvetur alla til að finna sína uppáhalds hreyfingu og stunda hana reglulega eða að minnsta kosti í 30 mínútur daglega. Allir geta tekið þátt. Skráðu þig á heimasíðu UMFÍ og láttu aðra vita af þér á samfélagsmiðlum undir merkinu #minhreyfing. Skemmtilegt íþróttamót fyrir alla 50 ára og eldri þar sem keppt er í hefðbundnum og óhefðbundnum íþróttagreinum Mótið verður haldið á Ísafirði skráning hefst 10. maí á heimasíðu umfi.is Vímulaus íþrótta- og fjölskyldu- hátíð fyrir ungmenni á aldrinum 11 – 18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé í íþróttafélagi eða ekki. Dagskrá er fjölbreytt með afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Mótið fer fram í Borgarnesi. Skráning hefst 1. júlí á heimasíðu umfi.is Við erum að skipuleggja Landsmót UMFÍ 50+ og Unglingalandsmót UMFÍ en stærsta verkefnið okkar núna er Hreyfivika UMFÍ. Auður Inga Þorsteinsdóttir koMDU VeStUr kynningarblað 29. apríl 201616 2 9 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 4 1 -8 C D 8 1 9 4 1 -8 B 9 C 1 9 4 1 -8 A 6 0 1 9 4 1 -8 9 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 8 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.