Fréttablaðið - 29.04.2016, Qupperneq 48
Svínarif eru í uppáhaldi hjá öllum.
Það þarf að hugsa vel um svínarif-
in í eldun svo kjötið verði laust af
beinum og bragðgott. Með heima-
gerðri BBQ-sósu er þetta sannkall-
aður veislumatur. Uppskriftin mið-
ast við fjóra.
Svínarif með grilluðum
maíS og BBQ-SóSu
2 stykki svínarif
Kryddblanda
125 g púðursykur
160 g sykur
50 g paprikuduft
25 g hvítlauksduft
75 g salt
25 g nýmalaður svartur pipar
10 g engiferduft
15 g laukduft
7 g kummen
4 g chili-duft
BBQ-sósa
2 msk. olía
1 laukur
2 hvítlauksrif
1½ tsk. chili-pipar
½ tsk. salt
4 tsk. chili-duft
1¼ dl sterkt kaffi
1¼ dl worchestershire-sósa
2¼ dl tómatsósa
1¼ dl eplaedik
100 g púðursykur
meðlæti
4 maískólfar
Smjör
Salt
Hitið grillið upp í hæsta hita en
lækkið síðan niður á minnsta.
Blandið öllu saman sem á
að fara í kryddblönduna. Best
að setja allt í matvinnsluvél og
blanda létt saman.
Uppskriftin er frekar stór. Setj-
ið afganginn í lokaða krukku og
notið hvort sem er á svínakjöt
eða kjúkling.
Fjarlægið alla himnu af kjötinu
ef með þarf. Stráið kryddinu yfir
og nuddið vel inn í kjötið. Legg-
ið kjötið á grillið, gott er að hafa
reyksag á botninum. Grillið kjöt-
ið í 2-3 tíma. Ef reyksag er sett í
grillið þarf að hafa vatn í sprey-
brúsa við höndina og væta kjöt-
ið nokkrum sinnum á steikingar-
tímanum.
Hitið upp BBQ-sósuna. Skrælið
lauk og hvítlauk og skerið smátt.
Setjið olíu í pottinn og steikið
laukinn. Bætið síðan við chili-pip-
ar, chili-dufti og salti. Hrærið.
Bætið öllum öðrum innihalds-
efnum í pottinn og látið sósuna
sjóða. Takið síðan af hitanum og
maukið með töfrasprota. Setj-
ið sósuna í krukku. Í lok eldunar-
tímans er kjötið penslað með sós-
unni. Hún er einnig borin fram
með kjötinu.
Grillið maísinn og berið fram
með svínarifjunum. Einnig er gott
að hafa hrásalat með.
grillaður ananaS
með rommSóSu
Grillaður ananas er einstaklega
ljúffengur. Með honum má bera
fram ís og rommsósu eins og hér er
gert. Uppskriftin miðast við fjóra.
1 stór ananas
2 msk. sykur
½ tsk. kanill
75 g ósaltað smjör
75 g púðursykur
1 límóna, safi og börkur
2 msk. dökkt romm
400 g vanilluís
Skerið toppinn af ferskum ananas
og skerið hann síðan í báta. Fjar-
lægið kjarnann í miðjunni. Blandið
saman sykri og kanil og dreifið yfir
ananasinn á báðum hliðum. Grillið á
heitu grilli í 4-5 mínútur þar til syk-
urinn er orðinn að karamellu.
Bræðið smjörið á pönnu, bætið
sykri, límónusafa og berki út í.
Bætið þá rommi út í og látið malla
þar til blandan er orðin að glassúr.
Leggið ananas á disk ásamt
góðri kúlu af vanilluís. Hellið sós-
unni yfir. Einnig má setja nokkur
ber með; bláber, jarðarber, hindber
eða brómber. Þessi uppskrift hent-
ar einnig fyrir banana. Grillið ban-
anann með hýðinu þar til það verð-
ur svart. Takið bananann úr hýðinu,
leggið á disk með ís og rommsósu.
uppSkriftir á Sumargrillið
Sumardagurinn fyrsti er kominn og farinn og tími grillsins runninn upp. Flestir byrja um þetta leyti og hvað er
sumarlegra en grilluð, ljúffeng svínaríf og grillaður ananas með ís á eftir. Hér koma uppskriftir. að þessum góðu réttum.
Grillaður ananas með ís og rommsósu. Einnig má skipta út ananas fyrir banana.Svínarif er afskaplega góður réttur. Hann passar mjög vel á degi sem þessum.
Fáðu Fréttablaðið ókeypis
í símann eða spjaldtölvuna.
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
NÝTT OG
BETRA APP
Smelltu þér á
Fréttablaðsappið
og lestu blaðið hvar
og hvenær sem er.
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r12 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
4
1
-7
4
2
8
1
9
4
1
-7
2
E
C
1
9
4
1
-7
1
B
0
1
9
4
1
-7
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K