Fréttablaðið - 29.04.2016, Side 58
V ið óperusöngvarar tökum okkur oft svo alvarlega en í þessari dagskrá gerum við óspart grín að okkur
sjálfum, söngvaratýpunum og
ýmsu sem einkennir óperu-
formið,“ segir Erla Björg Kára-
dóttir söngkona um sýninguna
Ópera hvað? sem flutt verður í
Salnum í Kópavogi annað kvöld
og hefst klukkan 20. Erla Björg
er ein þeirra sem tilheyra Óp-
hópnum sem skrifaði handritið og
sér um flutninginn. Hin eru Bylgja
Dís Gunnarsdóttir, Hörn Hrafns-
dóttir, Rósalind Gísladóttir og
Egill Árni Pálsson. Antonía Hevesí
verður á flyglinum og Erla Ruth
Harðardóttir leikstýrir.
„Upprunalega hugmyndin var sú
að fræða fólk um óperur og óperu-
söguna en svo varð úr þessu hálfgert
gamanleikrit,“ segir Erla Björg og
heldur áfram. „Við stiklum á stóru,
byrjum á barokkinu og færum
okkur svo í rómantíkina. Þetta er
klárlega dagskrá fyrir óperuunn-
endur en líka algera byrjendur, því
þeir sem mæta læra alla grunnþætt-
ina og segja má að þeir útskrifist úr
áfanga 101 í óperufræðum. Píanist-
inn okkar, hún Antonía, sér um að
uppfræða gesti og við hin skiptumst
á að syngja bæði einsöngsaríur og
samsöngsatriði.“
Kjarninn í hópnum er kven-
kyns en Egill Árni er með í þetta
sinn eins og fram hefur komið. „Við
veljum okkur karla eftir hentug-
leikum,“ segir Erla sposk. „Þeir hafa
nokkrir komið og farið en Egill Árni
er búinn að vera viðloðandi, hann
er svolítið skotinn í okkur!“ Hún
Verður að vera daðrari þegar óperusagan er kynnt
Á sýningunni Ópera hvað? í Salnum annað kvöld ætlar Óp-hópurinn að kynna sögu og listform óperunnar
í tali og tónum og freista þess líka að kitla eina og eina hláturtaug því að sýningin verður á léttum nótum.
Óp-hópurinn fyrir utan einn. Fremri röð: Erla Rut, Bylgja Dís og Rósalind. Aftari röð: Antonía, Hörn og Erla Björg. FRéttABlAðið/VilHElm
tekur fram að hann verði hinn eig-
inlegi tenór í þessari sýningu. „Það
verður að vera einn daðrari þegar
farið er yfir óperusöguna!“
Erla Björg fer lofsamlegum
orðum um nöfnu sína Erlu
Ruth sem heldur utan um alla
þræði. „Erla Ruth er að gera
skemmtilega hluti. Hún vissi ekk-
ert um óperur fyrir – ekki neitt –
og er búin að læra alveg helling því
hún hefur þurft að spyrja út í svo
margt sem er auðvitað frábært …
„bíddu, hvað er buxnarulla?“
Óp-hópurinn á ólíkar sýningar
að baki á síðustu árum. „Við höfum
starfað frá 2010 og sett upp kvenna-
óperu og barnaóperu, sýningu um
Maríu Callas og líka Verdi og aftur
Verdi sem Randver Þorláksson
var með okkur í,“ rifjar Erla Björg
upp. Hún segir Ópera hvað? vera
sakleysis lega framan af en magn-
ast stig af stigi og enda í rosalegri
dramatík. „Allt er samt ýkt og í létt-
ari kantinum,“ segir hún. „Það hefur
verið gaman á æfingunum og von-
andi smitast gleðin til gestanna.“
BÆKUR
Tappi á himninum
HHHHH
Eva Rún Snorradóttir
Kápuhönnun: Katrín Helena Jóns-
dóttir
Útgefandi: Bjartur
Fjöldi síðna: 61 bls.
„Allir eru mjög spenntir fyrir inter-
netinu, skerandi hringihljóðið
heyrist úr hverri íbúð, út á stéttir
og bílastæði.“ Svona hefst ljóðið
Kóðar að heiminum eftir Evu Rún
Snorradóttur í ljóðabókinni Tappi
á himninum. Þar er á ferðinni önnur
bók Evu Rúnar sem er einnig sviðs-
listakona úr hópnum Kviss búmm
bang. Ljóð Evu Rúnar eru reyndar
á mörkum ljóðs og sögu, haganlega
smíðaðir prósatextar, og tilheyra
öll einum og sama ljóðmæland-
anum eða sögumanninum eftir því
hvernig er á litið. Í Tappi á himn-
inum ómar rödd unglingsstúlku í
Breiðholtinu á tíunda áratug síðustu
aldar og tíðarandinn er aldrei langt
undan eins og dæmið hér að framan
sýnir ágætlega. Það er gleðiefni að
Breiðholt þessara daga skuli eiga
sitt skáld, sína rödd, enda er það
eins og svo mörg skemmtileg hverfi
sjálfstæður heimur sem aðeins þeir
sem þar hafa vaxið úr grasi þekkja
til fulls.
En Tappi á himninum er miklu
meira en tíðarandi og langtum
stærri en Breiðholtið. Í tuttugu
og fjórum prósatextum
tekst Eva Rún á við það
að þroskast frá barni til
fullorðinnar manneskju,
frá stúlku til konu. Þessu
fylgja eðlilega innri átök
og sleitulaus sjálfsskoðun
með tilheyrandi efa um
eigið ágæti og ótta við
það sem framtíðin ber í
skauti sér.
Einn helsti styrkur
textans í verkum Evu
Rúnar er að hún fellur
ekki í þá gryfju að
reyna að vera ungling-
ur heldur horfir til baka
með þroska, reynslu og orðfæri sem
felur í sér skilning fjarlægðarinnar
á umbrotum unglingsstúlkunnar
sem verður að konu í Breiðholtinu.
Myndirnar sem Eva Rún bregður
upp eru í senn kunnuglegar en samt
framandi og forvitnilegar því tilfinn-
ingalífið er djúpt og litað af skilningi
ljóðmælandans. Flest þekkjum
við þennan reynsluheim og þau
átök sem því fylgja að láta reyna á
mörkin við veröld hinna fullorðnu.
Þessi kunnugleiki fyllir ljóðheiminn
í senn af húmor og léttleika sem
tekst á við sársauka, ótta og kvíða
unglingsáranna. En í sömu andrá er
unglingsstúlkan í ljóðum Evu Rúnar
líka stödd aðeins á jaðrinum þar sem
hún er að takast á við að uppgötva og
skilja eigin samkynhneigð og í því er
ekki síst fólginn pers-
ónulegasti og inni-
legasti tónn textans.
Tappi á himninum
líður helst fyrir það
að aðrar persónur
en unglingsstúlkan
sem eru settar fram
eru helst til einsleitar
og allt að því staðl-
aðar. Slík er eflaust oft
upplifun unglinga af
umheiminum enda eiga
nú flestir nóg með sig á
þessum árum. Í heildina
er hér á ferðinni falleg
bók þar sem unglingsárin
eru í senn lofuð og kvödd eða eins
og segir m.a. í lokaljóði bókarinnar,
Eyðibýlið: „Ég var dálítið döpur og
hrædd þegar ég kvaddi best upp-
öldu stúlkuna í Breiðholtinu, sagði
henni að skelfa komandi kynslóðir
ásamt hinum draugunum í garð-
inum. Svo stöndum við saman vin-
konurnar í garðinum og öskrum úr
okkur innyflin.“
magnús Guðmundsson
NiðURSTaða: Heildstæð, falleg og
skemmtileg bók um átök og þroska ung-
lingsáranna.
Að breytast í konu í Breiðholti
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Sunna Gunnlaugsdóttir FREttABlAðið/StEFán
Píanóleikarinn Sunna Gunnlaugs
kemur fram á Kexi hosteli á Skúla-
götu 28 annað kvöld, ásamt félögum
sínum. „Við ætlum að spila margar
af perlum Magga Eiríks og erum
búin að setja þær í nýjan búning,
svona djassgalla,“ segir Sunna og
telur upp lög eins og Reyndu aftur,
Ó, þú og Þorparinn.
Með Sunnu leikur félagi hennar í
Tribute tríói, Leifur Gunnarsson
á kontrabassa og Scott McLe-
more lemur húðir í fjarveru Krist-
ofers Rodriguez Svönusonar sem er
á tónleikaferðalagi erlendis.
Aðgangur er ókeypis á tónleikana
á Kexi sem hefjast klukkan 20.30.
Þeir eru liður í dagskrá alþjóðlega
djassdagsins sem fagnað er um allan
heim. Spilað er á tíu stöðum í borg-
inni og hefur Jazzdeild FÍH gefið út
djasskort sem sýnir þá. – gun
Perlur Magga Eiríks í nýjum búningi
2 9 . a p R í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U R26 M E N N i N G ∙ F R É T T a B l a ð i ð
menning
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
4
1
-5
B
7
8
1
9
4
1
-5
A
3
C
1
9
4
1
-5
9
0
0
1
9
4
1
-5
7
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K