Fréttablaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 66
Eftir að ég sá frétt um að Sverrir Bergmann og Steindi væru að gera þessa mynd á íslensku hugsaði ég með mér að ég yrði að vera með
ef ég gæti það. Ég sendi Sverri sms
og útskýrði í rauninni bara fyrir
honum hvað ég hefði mikinn áhuga
og spurði hvort ég gæti einhvern
veginn komist inn í þetta. Hann
sagði að það væri búið að ráða í öll
hlutverkin en hann sagðist samt
ætla að tala við Steinda og reyna
að redda þessu,“ segir Daniel Hans
Erlendsson, sérlegur áhugamaður
um Ratchet og Clank, en hann
fer með lítið hlutverk í íslenskun
myndarinnar.
Teiknimyndin Ratchet og Clank
verður frumsýnd í dag en hún er
byggð á samnefndum tölvuleik sem
kom út árið 2002. Myndin fjallar um
félagana Ratchet og Clank og tilraun
þeirra til að hindra hinn illa Drek í
því að eyðileggja plánetur í Solana-
vetrarbrautinni. Þeir ganga síðan til
liðs við Alheimsverðina og saman
keppast þeir við að bjarga sólkerfinu.
Daniel segist hafa spilað leikinn
mikið í grunnskóla og að áhug-
inn hafi fylgt honum síðan þá. „Ég
spilaði leikinn mikið með vinum
mínum þegar ég var yngri. Ég hef
líka alltaf haft áhuga á tölvuleikj-
um. Bróðir minn átti PlayStation
eitt tölvu, svo tölvuleikir hafa alltaf
verið talsvert í kringum mig.
Daniel segir það hafa verið mjög
skemmtilegt að taka þátt og sjá
hvernig talsetningin fór fram. „Ég
var eiginlega búinn að gleyma
þessu, það leið frekar langur tími frá
því að ég hafði samband þangað til
þeir kölluðu í mig. Ég fékk bara allt
í einu skilaboð og var spurður hvort
ég gæti komið núna. Ég var sem
betur fer laus svo ég fór og talaði
inn á myndina, það tók ekki nema
kannski hálftíma. Þetta var mjög
gaman og ég væri alveg hundrað
prósent til í að gera þetta aftur.“
Daniel segist hafa haft áhuga á
kvikmyndum síðan hann man eftir
sér en þegar bróðir hans ákvað að
gerast leikari hafi áhuginn orðið
enn meiri. „Ég hef áhuga á alls konar
myndum, en samt aðallega drama-
myndum. Uppáhaldsmyndin mín
er Django Unchained og uppá-
halds leikstjórinn minn er Quinten
Tarantino, ég er mjög mikill Tarant-
ino-aðdáandi.“ – sbv
Fékk hlutverk í
Ratchet og Clank
Daniel Hans er mikill áhugamaður um Ratchet og Clank en hann
fékk að taka þátt í íslenskri talsetningu myndarinnar.
Daniel Hans Erlendsson fékk aukahlutverk í Ratchet og Clank. MynD/HaukuR Húni ÁRnason
Ratchet og Clank. MynD/sEna
Húsvörður
leikur húsvörð
Þorvaldur Hilmar Kolbeinsson
talar fyrir húsvörð í myndinni en
hann vinnur einnig sem hús-
vörður í Háskólabíói. Þorvaldur
segir að honum hafi einfaldlega
verið kippt inn í myndina. „Hann
Dóri Fjallabróðir er hérna með
aðstöðu, og hann er að vinna í
allavega hljóðvinnslu. Hann kippti
mér inn í þetta og bað mig um að
lesa nokkrar línur fyrir sig, og ég
græjaði það auðvitað bara.“
Spurður út í hvort það hafi verið
tilviljun að hann talaði fyrir hús-
vörð segir hann ekki vera svo. „Þeir
voru búnir að sjá þetta fyrirfram.
Þeir sjá alveg þegar maður er að
rassakastast hérna í húsinu og
þegar þeir sáu fyrirmyndina þá
vildu þeir nota mig. Það var mikið
djók í kringum þetta og hlegið að
þessu,“ segir Þorvaldur.
34 2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r
Lífið
Áhugamálakrísan Ein af mínum
bestu vínkonum viðraði þungar
áhyggjur yfir stöðu áhugamála sinna
á dögunum. Áhyggjurnar fólust í því
að fyrrnefnd áhugamál væru engin
og á því vildi hún ráða bót sem fyrst.
Eftir ákaft símtal þar sem ég viðraði
margra frábærar hugmyndir að fram-
tíðaráhugamálum féll ég í svipaðan
hugsanapytt og stútfylltist í kjölfarið
af alls konar komplexum yfir mínum
eigin. Eftir smá yfirlegu komst ég
að því að þau eru ekki nógu exótísk,
aktív eða spennandi. En eins og ég
hef nefnt hér áður felast þau að
miklu leyti í þykkblöðungum, krydd-
söfnun og kokteilagerð. Sum er ég
líka búin að eiga svo lengi að þau
eru nánast orðin sjálfsagður hluti af
hversdeginum og það er náttúru-
lega ekkert framandi eða spennandi
við daglegt líf og amstur. Svona
pínu eins og gamlar nærbuxur bara,
kannski voða þægilegar en gera ekki
neitt fyrir neinn.
Þess má alveg geta að mín áhuga-
málakomplexaða vínkona er í spenn-
andi og krefjandi vinnu sem hún
er mjög góð í og lifir að mínu mati
innihaldsríku og skemmtilegu lífi.
Hún er meira að segja í spilaklúbb. En
við eigum auðvitað öll líka að vera
í krefjandi, spennandi og ögrandi
vinnu sem að einhverju leyti endur-
speglar áhugasvið okkar og helst
enginn getur sinnt eins vel og við.
lll
að fúnkera Málið er bara að
áhugamál er ekki lengur það sama og
áhugamál. Það að stunda „eðlilega“
hreyfingu og finnast gaman að elda
flokkast ekki sem áhugamál lengur.
Það er bara eitthvað sem maður á
að vera að gera ef maður vill vera,
eða í það minnsta lúkka, eins og
temmilega fúnkerandi einstaklingur í
samfélaginu.
Hreyfing flokkast nefnilega ekki
sem áhugamál nema hún sé dáldið
æst og öðruvísi. Jóga er auðvitað
lífsstíll (namaste) og það að mæta í
World Class, sveifla nokkrum lóðum
og taka smá syrpu á brettinu flokk-
ast ekki sem áhugamál.
Það eru líka alltof margir
valsandi um í Mjölnis-
hettupeysum til þess
að Víkingaþrek falli
í áhugamálakate-
goríuna. Þess vegna
sturluðust svona
margir á gönguskíð-
unum í vetur og hlupu
niður í næstu hjólabúð
sveiflandi kredit-
kortinu síðasta sumar
og settu ógeðslega
dýrt hjól og spandex-
alklæðnað sem klæðir
frekar fáa á raðgreiðslur.
lll
Sous-vide Svo er sjálf-
sagt að pæla mikið í mat-
argerð og eldamennsku. Ég meina,
við fáum náttúrulega bara eitt
musteri og mannslíkaminn er víst
ekki gerður til þess að brjóta niður
hvítan sykur. Svo erum við öll með
glúten- og mjólkuróþol. Við þurfum
alltaf að vera á tánum og hugsa vel
um þennan kropp. Að borða hollan
og góðan mat helst í hendur við það
allt saman og svo lúkkar það líka vel
á samfélagsmiðlum. Það er líka ekk-
ert mál að elda eitthvað girnilegt og
gera nesti fyrir vikuna og matarplan
og borða ótrúlegan morgunmat sem
kemst fyrir í krukku. Það ættu nú
allir að vita það og ef þið eruð ekki
meðvituð um það þá eru til milljón
matreiðslubækur og þúsund og einn
matreiðslusjónvarpsþáttur sem
segja manni það.
Matargerð og eldamennska getur
samt eiginlega ekki flokkast sem
áhugamál nema maður sé all in,
nýbúin að sjoppa Sous-vide pott og
að sjóða aldrað nautakjöt sem er
búið að marínera í alls konar kryddi í
minnst sólarhring, á leiðinni á Noma
í sumar eða að fara í pílagrímsferð
til einhvers fjarlægs lands þar sem
maður ætlar að enduruppgötva
bragðlaukana alla í einu.
lll
allt hitt Svo eigum við öll að vera í
góðum og stöðugum samskiptum við
vini, samferðamenn og skyldfólk. Það
er sem betur fer í flestum tilfellum
gaman en því er ekki hægt að neita að
í þessi samskipti fer tími. Ekki má svo
gleyma því að halda heimilinu huggu-
legu en samt mínímalísku og fylla það
með ýmsum einstökum mublum sem
endurspegla persónuleika manns. Öll
erum við svo meðvitaðir neytendur
sem endurvinnum af fullu kappi, en
það er ekki áhugamál heldur bara
hluti af því að óska plánetunni farsæls
framhaldslífs fyrir komandi kynslóðir.
Svo er það húðumhirðan og það að
drekka nóg vatn. Þetta er auðvitað
bölvuð pressa.
Ofan á þetta allt bætast svo hin
exótísku áhugamál sem maður á að
sinna. Ég er eins og áður sagði búin að
vera alveg brjálæðislega komplexuð
yfir þessu og þegar ég er búin
að sinna öllu ofangreindu
dettur mér ekki einu
sinni neitt spennandi
eða exótískt í hug sem
ég get reynt að gera
að áhugamálinu
mínu.
Og ef þið ætlið
að þykjast ekki tengja
við þetta þá veit ég að
þið eruð lygasjúk og
ættuð að leita ykkur
hjálpar. Ég gerði nefni-
lega óformlega könnun
á Facebook-spjallinu
mínu og þar voru allir
sammála mér.
@gydaloa
gydaloa@frettabladid.is
Sturluð af
komplexum
leitandi að
exótísku
áhugamáli
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
4
1
-6
A
4
8
1
9
4
1
-6
9
0
C
1
9
4
1
-6
7
D
0
1
9
4
1
-6
6
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K