Fréttablaðið - 29.04.2016, Síða 68
Spáin gildir fyrir maí
Lengri útgáfa af stjörnuspá á visir.is/SiggaKlingStjörnuspá Siggu Kling
21. mars–19. apríl
Hrúturinn
20. apríl–20. maí
Nautið
21. maí–20. júní
Tvíburi Krabbinn
23. júlí–22. ágúst
Ljónið
23. ágúst–22. september
Meyjan
23. september–22. október
Vogin
23. október–21. nóvember
Sporðdrekinn
22. nóvember–21. desember
Bogmaðurinn
22. desember–19. janúar
Steingeitin
20. janúar–18. febrúar
Vatnsberinn
19. febrúar–20. mars
Fiskarnir
21. júní–22. júlí
Slakaðu aðeins á
Elsku hjartans kraftmikli og þrjóski Hrúturinn
minn. Það er búin að vera sérlega mikil spenna
hjá þér og þér hefur fundist eins og þú hafir
ekki framkvæmt nóg eða gert allt sem þú
ætlaðir þér að gera og þar af leiðandi er einhver
smá pirringur á sveimi í kringum þig.
Ástæðan fyrir þessu er að plánetan Mars fer
aftur á bak fram í júní. Það hægir aðeins á fram-
kvæmdum og núna vill alheimurinn kenna þér
að slaka aðeins á, því lífið heldur áfram þó að
þú gerir ekki allt sjálfur.
Maí gerir undirstöðurnar þínar fyrir ótrúlega
skemmtilegt sumar svo sterkar. Verkefnin verða
fleiri og öðruvísi en þú bjóst við og þú munt
elska að láta koma þér á óvart!
Ljómar svo fallega
Elsku Nautið mitt. Það er eins og þú rísir upp og
ljómir svo fallega eftir miðjan mánuðinn og það
verður skemmtileg orka í kringum þig.
Þú ert búið að vera titrandi á beinunum yfir
því að þú sért ekki á réttri braut og hafir tekið
að þér allt of mikið af verkefnum. Einmitt þá
virðist þú fá hjálp úr öllum áttum og hrós frá
alls konar fólki.
Mundu bara að elska fyrst og fremst þig og
hugsa að þú ætlar að vera að hanga með þér
alla ævi. Þú getur náttúrulega skilið við maka og
vini, flutt úr landi eða hvað sem er en þú situr
alltaf uppi með sjálft þig, elskan mín!
Slagorðið þitt þegar þú vaknar í maí er: Ég
elska mig, ég elska lífið, og allt mun leysast!
Tekur ákvarðanir
Elsku smekklegi Tvíburinn minn. Þú ert að fara
inn í diskó friskó tímabil. Þú elskar sumarið og
sumarið elskar þig!
Þér er mikilvægt að hafa mikla birtu í kringum
þig. Hentu gluggatjöldunum eða dragðu frá,
því að sólin og birtan hafa góð áhrif. Þú klárar
málin, tekur ákvarðanir, lendir á fjórum fótum
og hláturinn ómar allt í kring.
Þótt þér finnist eins og þú hafir gert mistök
þá er öllum skítsama. Mistök gera þig merkilegri
og að vera fullkominn er fjári leiðinlegt!
Þú þarft að sleppa þér í ástinni og vera djarfur,
hvort sem það er við maka eða bara eitthvert
fling. Það er eitthvað svo mikil spenna í kringum
þig og það þarf að losa hana.
Hamingjutilfinningin í maí
Elsku Krabbinn minn. Það er svo dásamlega
magnað og magnþrungið loftið allt í kringum
þig. Þú átt eftir að grípa þessa spennu og gera
eitthvað mikið úr henni.
Þó að tilfinningar þínar séu eins og íslenska
veðrið, alltaf að breytast og engin leið að spá
um þær þá er ekki hægt að segja annað en að
þú eigir eftir að skemmta þér vel í byrjun þessa
sumars.
Frami er þér dálítið mikilvægur. Þú þarft að
spyrja þig hvað sé frami fyrir þér. Er það ekki að
vera sáttur og hamingjusamur? Þú munt finna
hamingjutilfinninguna þegar líða tekur á maí.
Ekki leika þér að ástinni því ef þú gerir það þá
gætir þú brennt þig.
Dekraðu við sjálft þig
Elsku Ljónið mitt. Þú þarft að tengja saman hug
þinn og hjarta . Þótt þú sjáir það ekki skýrt akk-
úrat núna þá er að koma að uppskeru og þú færð
viðurkenningu fyrir það sem þú hefur lagt fram.
Þú getur átt það til að vera latt en það er
mikilvægt að standa upp, sýna sig og mæta á
staðinn. 80% af velgengni felast í því að mæta á
staðinn sagði Woody Allen!
Ekki draga þig niður og hanga yfir sjónvarpinu
ef þú getur gert eitthvað annað því lífið er að
sýna þér breytingar og möguleika. Flettu blað-
síðunni og farðu yfir í næsta kafla.
Þetta er rómantískt tímabil sem þú ert að
fara inn í núna svo dekraðu við sjálft þig og þú
munt sjá ástina í hverju horni!
Verður full af stolti
Elsku Meyjan mín. Þú ert svo mikið að laga
sjálfa þig til og hressa upp á umhverfið. Þú þarft
ekki að biðja neinn um leyfi til að vera besta út-
gáfan af þér og þó að þú stígir óvart á einhvern
í leiðinni þá segir þú bara fyrirgefðu og heldur
áfram. Það er nefnilega alveg magnað hvað það
orð er merkilegt og hefur mikla þýðingu.
Aflið þitt verður svo mikið að þú verður eins
og fuglinn Fönix. Þú ríst upp úr eldinum og
verður full af stolti. Láttu ekki of mikið af til-
finningum flækjast fyrir þér og einfaldaðu lífið
þitt, það eru skilaboðin fyrir þinn maímánuð.
Venus er í orkunni þinni, ef þig vantar ástina
inn í líf þitt eða vilt skerpa á ástinni sem er
þegar til staðar þá skalt þú nýta þér það.
Hamingjusöm og ánægð
Elsku Vogin mín. Þú átt eftir að fara á skemmti-
legu brokki inn í sumarið.
Þú nærð góðri tengingu við Móður jörð,
finnur kraftinn frá henni og kemst í andlegt
jafnvægi. Þú hættir að láta aðra koma þér í upp-
nám og verður með skýr skilaboð til sjálfrar þín
um hvernig þú ætlar að leysa þetta sumar.
Þú átt eftir að finna að þú ert hamingju-
söm og ánægð með þær ákvarðanir sem þú
tekur í þessum mánuði og það á eftir að hjálpa
þér mikið til þess að ráða fram úr erfiðum og
flóknum verkefnum.
Þú átt eftir að taka þátt í lífinu af miklum eld-
móði og ferðast mikið yfir sumarmánuðina og
vittu til; þú ert bara í startholunum.
Elskaðu hvatvísina
Elsku Sporðdrekinn minn. Það er bara allt að
gerast og það er há tíðni yfir orkunni þinni
og búnar að vera miklar sveiflur. Alveg niður í
angist og kvíða og upp í bjartsýni og kraft. Núna
ferð þú að sjá að það er að koma einhver lausn
á þessu öllu saman.
Það er mikil frjósemi í kortunum hjá þér, svo
ef þú ætlar ekki að verða ófrísk eða verða pabbi
á næstunni þá þarf að gera varúðarráðstafanir!
Frjósemin færir þér líka hugmyndir og sýnir þér
leiðir til þess að losa þig við það gamla og byrja
á nýjum hlutum.
Það er mikilvægt að þú drepist ekki úr skyn-
semi, því að hún gerir líf þitt leiðinlegt. Elskaðu
hvatvísina því allt er að gerast á miklum hraða.
Má skipta um skoðun
Elsku Bogmaðurinn minn. Það er búið að vera
töluvert álag á þér og Satúrnus aðeins búinn
að vera að pota í þig en það þarf nú meira
en smá pot til þess að koma þér út af laginu.
Það er mikilvægt að sjá að það má skipta um
skoðun. Það mun breyta svo mörgu fyrir þig
næstu vikurnar að gera akkúrat það. Hættu að
vera strangur við þig og gefðu þér aðeins lausan
tauminn. Það er ekkert fallegra en afslappaður
bogmaður fullur af sjálfstrausti! Níu til fimm
vinna hentar þér ekki alltaf og þú þarft að finna
þinn farveg í vinnu eða skóla.
Þú átt eftir að nýta þér betur þetta dásam-
lega ímyndunarafl og hrífa með þér einhverja
sérstaka manneskju sem mun breyta lífi þínu.
Augun opin fyrir freistingum
Elsku Steingeitin mín. Það er mikið að gerast í
kringum þig. Þú ert að hitta nýtt fólk og sjá lífið í
meiri lit en þú hefur gert undanfarið.
Hafðu augun opin fyrir freistingum. Ef þér
finnst eitthvað svo ótrúlegt að það geti varla
verið satt, þá er það líklega þannig. Hafðu alla
pappíra á hreinu, ekki gefa neitt eftir og vertu
ákveðin með áform þín. En það er náttúrulega
hvort sem er þú í hnotskurn!
Fólk kann svo vel við þig og þú ert svo
dýrmæt. Þú þarft að sjá það sjálf og verðleggja
þig hærra. Þú ert góð í að hrósa og byggja upp
sjálfstraust annarra og ég myndi ráðleggja þér
að fara á námskeið hjá sjálfri þér og nýta þessa
jákvæðni og hæfileika sem þú ert að deila út!
Nýtt upphaf
Elsku Vatnsberinn minn. Mikið ert þú búinn að
vera duglegur. Hrósaðu þér og ekki bíða eftir að
neinn annar geri það.
Þú ert svo miklu sterkari persóna en þig hefur
grunað en stundum hefur álagið verið full-
mikið. Þú vinnur vel undir stressi og síðustu þrír
mánuðir færa þér nýtt upphaf.
Mundu að þú getur ekki stjórnað hvernig
aðrir haga hlutunum og það er gott fyrir þig
að sleppa tökunum á fólkinu í kringum þig
því að sjálfstraustið er að eflast. Þú færð upp
í hendurnar tækifæri sem munu nýtast til að
gera lífið einfaldara og skemmtilegra.
Næsta ást sem svífur inn í lífið gæti verið hin
eina sanna.
Trúðu á eigin mátt
Elsku Fiskurinn minn. Þú ert að verða svo sjó-
aður, steinhættur að taka inn á þig alla hluti og
farinn að treysta því að lífið sé að dekra við þig.
Þú ert skemmtilega meðvirkur og stundum
er hægt að kalla þig svolítið stjórnsaman en
það er af því að þú vilt redda öllu, bjarga, og
láta öllum líða vel.
Núna ertu búinn að finna nýja leið til að
verða afslappaðri gagnvart streitunni í kringum
þig og ert miklu sjálfsöruggari gagnvart vinum
og kunningjum. Það er hægt að segja að þú
nærð svo sannarlega miklu betri tökum með
svona orku heldur en þú hefur áður gert. Hættu
að vera á tánum, trúðu á eigin mátt. Það er
lykillinn til að kalla til sín jafnvægi og hamingju.
2 9 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r36 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
2
9
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
4
1
-5
6
8
8
1
9
4
1
-5
5
4
C
1
9
4
1
-5
4
1
0
1
9
4
1
-5
2
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
7
2
s
_
2
8
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K