Skagfirðingabók - 01.01.1987, Blaðsíða 95
HALLDÓR JÓNSSON DÓMKIRKJUPRESTUR
þessari sókn, eftir þess uppáskrift. Protocollarnir eru
þessir: Víðimýrar kirkjubók,4 Rípur og Viðvíkur minist-
erialbók,5 Hofstaða kirkjubók útskrifuð,6 visitatiubók
Hegraness sýslu frá 1759 til datum,7 Hóladómkirkjubók
yfir natos [fædda], denatos [dauða] og copulatos [gifta],
frá því prófasturinn sálugi hingað kom.8
Salvör Þórðardóttir var vel efnuð kona, þegar hún giftist
Halldóri Jónssyni. Fóstri hennar, Jens Spendrup sýslumaður,
hafði ánafnað henni jörðina Vík áður en hann dó, 1735. Salvör
átti í miklu stímabraki við að ná þessari eign frá öðrum erfingj-
um sýslumanns, og naut þar tilstyrks hinna voldugu ættingja
sinna. Því máli lauk loks sumarið 1742, þegar kveðinn var upp
sá dómur á Alþingi, að hún fengi umráð yfir jörðinni, enda átti
hún mikið fé hjá dánarbúinu.9 Líklega hefur Salvör flutt að Vík
skömmu síðar.
Hinn 22. júlí 1737 var gerð erfðaskrá á Reynistað. Hjónin
Hallsteinn Isleifsson og Þuríður Andrésdóttir arfleiddu þá Sal-
vöru að öllum eigum sínum. Frumrit erfðaskrárinnar er í
Þjóðskjalasafni.10 Að sögn Hannesar Þorsteinssonar hafði Hall-
steinn verið í skóla á Hólum veturinn 1700—1701, og síðar búið
í Glæsibæ (hjáleigu frá Vík) og víðar. Hann var lengi í þjónustu
Jens Spendrups sýslumanns, og hefur kynnzt Salvöru þar. Ekki
kemur fram, hverjar eigur þeirra voru. E.t.v. hefur eitthvað af
4 Glötuð. Með kirkjubók mun átt við prestsþjónustubók og e.t.v. sálna-
registur.
5 Er enn til. A titilblaði hennar stendur: Ríps og Viðvíkur kirkna bók.
6 Glötuð.
7 Er enn til, í skjalasafni prófastanna XVII A 1, í Þjóðskjalasafni.
8 Þetta er prestsþjónustubók Hóladómkirkju 1759 — 1769. Hún er nú glötuð.
9 Sjá Alþingisbtekur íslands XIII, bls. 94-6 og 104-5. Einnig XII. bindi, bls.
580-81 og 583-4.
10 Kansellískjöl KA. 12, 1737—1742. Staðfesting konungs á erfðaskránni er
dagsett 3. janúar 1738, og var auglýst á Alþingi sumarið 1739, sbr. Alþingis-
bœkur íslands XII, bls. 497.
93