Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 5

Frjáls Palestína - 01.11.2015, Síða 5
FRJÁLS PALESTÍNA 5 Sniðganga og sjálfboða- störf eru svarið Það kom fram í fréttum nú í haust að ísraelsk yfirvöld og viðskiptajöfrar kvarta nú undan viðskiptaþvingunum sem eru farnar að segja verulega til sín. Gleðilegasta fréttin var um að her- gagnasala Ísraela út fyrir land steinanna hafði dregist saman um nær 40%. Það þótti okkur friðarkonum í Palestínu alveg sérstaklega ánægjulegt, enda trúum við ekki á hervald til að koma á friði. Hver og einn getur tekið þátt í að sniðganga ísraelskar vörur og hvet ég eindregið til þess. Nú hef ur Evrópusambandið ákveðið að sér- merkja vörur frá ólöglegum land- tökubyggðum á Vesturbakkanum og það mun vafalaust hjálpa til við snið- gönguna. En gleymum því ekki að landtökubyggðirnar eru reistar með vilja Ísraelsstjórnar og eru á þeirra ábyrgð. Við eigum því að sniðganga allar vörur frá Ísrael. Það er mikill stuðn ingur fyrir Palestínumenn,að hafa með sér alþjóðlega sjálfboðaliða. Að sama skapi er það angur fyrir Ísra el að hafa erlent fólk í Palestínu sem sér hvernig tekið er á málum. Þeir vita að því fleiri sem sjá hvernig þeir beita valdi og vopnum, því færri styðja þá. Því hefur haustið einkennst af ógnunum við sjálfboðaliða. Þekkt samtök eins og ISM (International Soli darity Movement), CPT (Christian Peacemaker Team) og EAPPI (Sam- kirkjulega friðarþjónustan) hafa öll þurft að hrökklast tímabundið frá Al Khalil/Hebron vegna árása land- tökufólksins og hersins þar í borg. Þeirra vitnisburður er of erfiður fyrir Ísrael, en samt sá mikilvægasti fyrir Palestínumenn sem verða að treysta á frjálsa fjölmiðlun og samfélagsmiðla þar sem margir helstu fjölmiðlar heims eru í eigu gyðinga sem styðja ísra- elsríki. Við megum því ekki gefast upp og Félagið Ísland-Palestína þarf að halda áfram að senda sjálfboðaliða til að taka þátt í þessum mikilvægu störf- um. Háðung gegn hernámi Nabu Salih er rúmlega 500 manna byggð norðan við Ramallah. Í fimm ár hafa bæjarbúar mótmælt í hverri viku landtökubyggðinni sem sett var niður við bæjarmörkin. Harka hers ins gagnvart bæjarbúum er einstök. Í ok- tóber sl. handtók herinn á 2 vik um 15 ungmenni frá Nabu Salih og eru þau öll enn í haldi og beðið er réttarhalda þar sem þau eru ákærð fyrir grjótkast í átt að hermönnum. 7 önnur ungmenni höfðu áður verið handtekin og því eru 22 ungmenni í varðhaldi þegar þetta er skrifað um miðjan nóvember, sem er um helmingur þorpsbúa á aldursbi- linu 18 – 27 ára. Það er rétt að ungt fólk, kastar grjóti að fullvopnuðum her- mönnum í mótmælum í Nabi Saleh. Slíkt er þó einungis táknrænt sem sjá má á því að margir Palestínumenn hafa særst í mótmælunum en engum sögum fer af særðum hermönnum á þessu svæði. Þegar við friðarkonur komum í mótmæli í Nabu Saleh í lok október byrjaði herinn að skjóta tára- gasi að mótmælendum áður en nok- kur kastaði grjóti. Það reyndist einnig lítið grjótkast þann föstudaginn enda flestir í gæsluvarðhaldi sem höfðu tekið þátt í því. Þar sem Ísraelsher er þekktur í Nabi Saleh fyrir að beita óhó- flegu táragasi hafa íbúar tekið saman tómar táragassprengjur og búið til úr þeim allskyns „listaverk“ sem mæta hernum þegar hann kemur inn í bæinn – þeim til háðungar. Janna 9 ára, sem er með mér á myndinni, hefur einnig útbúið blómavasa úr táragashylkjum. Hún og 2 frænkur hennar tóku við mig Drepið án dóms og laga í októbermánuði sl. voru 72 pal est- ínumenn myrtir af Ísralesher og eða landnemum og morðin héldu áfram í nóvember. Enginn var handtekinn vegna þessara drápa og engin ákæra hefur verið gefin út. Á sama tíma voru 9 Ísraelsmenn drepnir af palestínumönnum utan mótmæla. Þeir sem komu að þeim drápum voru hins vegar allir drepnir á staðnum, án dóms og laga. Í flestum tilfellum hefði verið mjög auðvelt að handtaka og jafnvel særa fólkið sem átti í hlut, en það þótti ekki ástæða til dómsmeðferðar. En það eru ekki bara þeir sem beita ofbeldi sem eru drepnir af Ísra elsher. Flestir eru drepnir í friðsömum mót mælum gegn þessu gengdarlausa ofbeldi, frelsiskerðingum og land ráni. Engin Ísra lels maður hefur lát ist vegna aðgerða mót- sprengjum og skítavatni. Refsingar sem bein ast að öllum bæjarbúum eru því marg víslegar. viðtal og þá varð mér ljóst hvað ung- ir krakkar geta verið meðvitaðir um frelsisskerðinguna sem herinn beitir þau. Það hefur margoft komið fram í viðtölum mínum við börn og unglinga sem oft eru með í olífutínslu að þau fá ekki að ferðast. Þau hafa aldrei séð sjóinn þó Miðjarðahafið sé bara 15– 25 km frá heimkynnum þeirra. En til að komast þangað þarf að fara til Ísraels, og þangað komast þau ekki því þau eru ekki réttar trúar né þjóðernis. uðu á læknismeðferð. Læknir og frið- araktivisti í Hebron, 54 ára að aldri, dó af völdum táragass, en víða eru mikil þrengsl í Gömlu borginni þar sem táragasi er beitt og eitrunin því mikil. Í október særðust 80 ísraelsmenn. 80 eru of margir, en samanburðurinn við 6000 segir hvernig hlutföllin eru á milli milli Palestínu og Ísraels í beitingu ofbeldis. mæl enda því þeir sem létust voru drepnir af Palestínumönnum ut a- n mótmæla. Í októ ber voru um 6000 pal estínumenn særðir í mótmælum. Flestir urðu fyrir skotum og margir hlutu örkuml til lífstíðar á meðan aðrir fengu ofskammt af táragasi þannig að öndunarerfiðleikar köll­

x

Frjáls Palestína

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.