Frjáls Palestína - 01.11.2015, Qupperneq 15

Frjáls Palestína - 01.11.2015, Qupperneq 15
FRJÁLS PALESTÍNA 15 hafi komið að því. Staða sérfræðingsins var styrkt af utanríkisráðuneytinu í gegn um UNICEF. Tölur sýna að mæðra- og ung barna- dauði hefur minnkað og skrifstofustjóri heilbrigðiráðuneytisins sagði að þá þróun mætti ekki síst rekja til þessa starfs. UNICEF er sammála því.“ Ísland styðurstyðja UNICEF í Pal- est ínu með fjárframlögum og með því að kosta stöður sérfræðinga á vettvangi. Ramallah „Daginn eftir fórum við til Ramallah og gistum þar. Það er alltaf gaman að koma til Ramallah. Við Einar átt- um fund, pólitískt samráð við vara- utanríkisráðherra Palestínu o.fl. starfs fólki utanríksráðuneytisins. Þar var farið yfir ástandið í Palestínu. Við vor um upplýst um stöðu mála, hvernig hlutirnir gengju fyrir sig. Þá var nýlokið ráðstefnu í Kairó þar sem fjölmargar þjóðir hétu miklum fjárhæðum til upp- byggingar á Gaza og það skipti íbúana miklu máli. Það er mikil uppbygging í Ram- allah, mikið af nýbyggingum og nokk - ur gróska. En þrátt fyrir það er mik il þörf fyrir þróunarsamvinnu og mann- úðaraðstoð í borginni og ná grenni henn ar.“ Betlehem Næsti áfangastaður Maríu Erlu og Einars og starfsmanna utanríkis- ráðu neytis Palestínu var Betlehem. „Það sem þar er áhrifaríkast að sjá eru landtökubyggðirnar,“ segir hún. „Þær færast nær og nær Betlehem og þrengja sífellt meira að íbúum borg- arinnar. Við hittum borgarstjóra Betlehem, Veru Baboun. Hún er mjög áhrifamikil kona og hefur góða útgeislun. Segir vel frá. Hún er kristin og palestínsk. Betlehem er lítil borg og Vera sagði okkur að ekki væri hægt að byggja meira innan borgarmarkanna vegna þrengsla, ekki einu sinni leikvöll. Og plássið verður sífellt minna með fjölgun landtökubyggða. Þótt við sæjum kannski ekki mikið í Betlehem þá urðum við vitni að nokkrum átökum milli Palestínumanna og Ísraela. Þarna voru ekki notaðar byssur heldur köstuðu menn grjóti; þetta hefðbundna sem maður sér í fjölmiðlum. Síðan fórum við og heimsóttum flóttamannabúðir hjá UNRWA. Við styðjum UNRWA með fjárframlögum og með því að kosta stöður íslenskra sérfræðinga, en það höfum við gert í mörg ár. Tveir íslenskir sér fræð ing ar starfa hjá UNRWA, annar í Jerúsalem og hinn í Jórdaníu. Verkefni á sviði viðlagastjórnunar Daginn eftir fórum við aftur til Ram- allah og heimsóttum annað verkefni sem við erum að styðja í gegnum UNDP, en um er að ræða verkefni á sviði viðlagastjórnunar. Innan al þjóða- stofnana hefur orðið vakning varð- andi mikilvægi viðlagastjórnunar til að takmarka það tjón sem hlýst af nátt- úruhamförum. Við Íslendingar búum yfir talsverðri þekkingu á þessu sviði. Við funduðum með almannavörnum þeirra og einnig með skrifstofu for seta Palestínu sem einnig kemur að þessu verkefni. Hluti af Palestínu er á jarðskjálfta- svæði og búist er við stórum skjálftum á svæðinu í fram tíðinni. Stjórnvöld í Palestínu taka þetta mjög alvarlega og vilja vera viðbúin ef það gerist. Húsa kosturinn þarna er eins og hann er og mannfall gæti orðið mik- ið. Þess vegna er reynt að koma góðu skipulagi á viðbrögðin. Það er svo mikið af hindrunum, ekki síst á Vesturbakkanum. Þar eru svæði sem ekki má fara inn á og mikið af varð- stöðvum. Eins og Palestínumenn sögðu við okkur er óljóst hvort þeir mundu fá að fara frjálst um landið til þess að sinna hjálparstarfi ef það yrði jarðskjálfti. Það veit enginn. Þess vegna verði að miða viðbúnaðinn við landið eins og það er í dag; svæðið er hernumið með þeirri skiptingu sem þar er. Við hér heima erum með okkar Landsbjörgu og fullt af sjálfboðaliðum út um land allt með skipulögð teymi. Þarna er fólk á afmörkuðu, lokuðu svæði. Þetta er algert frumkvöðlastarf; það kom beiðni árið 2012 frá UNDP og palestínskum yfirvöldum, um að­ stoð við uppbyggingu svona kerfis. Ís lenskur sérfræðingur sem við kost- uðum, Sólveig Þorvaldsdóttir, fór út til að meta þörfina. Sólveig gerði greiningu á ástandinu og í fram haldinu var ákveðið að gerð Ljósmynd úr safni

x

Frjáls Palestína

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls Palestína
https://timarit.is/publication/1150

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.