Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Page 4
4 Fréttir Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014
Blekhylki.is
Við seljum
ódýra
tónera og
blekhylki
Fjarðargötu 11 og Smáralind • S: 517-0150
T
veggja sólarhringa verkfall
hjá flæðisviði og aðgerðasviði
Landspítala hefst á miðnætti
aðfaranótt næsta mánudags.
Undir flæðisviði er bráðamóttaka
Landspítalans. Að sögn Guðlaugar
Rakelar Guðjónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra flæðisviðs, má búast
við röskun á starfsemi sökum verk-
fallsins. „Öll bráðaþjónusta verður
tryggð. Það verður unnið samkvæmt
verkfallslistum og með lágmarks-
mönnun,“ segir hún.
Læknar áttu stuttan fund með við-
semjendum sínum í gær, fimmtudag,
og hefur sá næsti verið boðaður eftir
hádegi á mánudag. Að sögn Þorbjörns
Jónssonar, formanns Læknafélags Ís-
lands, hefur ekki þokast í samkomu-
lagsátt. Aðspurður hvort læknar hafi
átt von á að svo hægt myndi ganga að
semja þrátt fyrir að verkfall væri skoll-
ið á segir hann þá einfaldlega ekki
hafa vitað við hverju var að búast.
„Verkfallsloturnar ná yfir sjö vikur því
við vissum ekki við hverju væri að bú-
ast.“ Að sögn hans snúa meginkröfur
lækna að launamálum. „Stærstu mál-
in, að okkar mati, hafa ekki mikið ver-
ið til umfjöllunar og menn hafa ekki
nálgast lausn.“ n
dagny@dv.is
Líkur á verkfalli á bráðamóttöku
Samkomulag ekki í sjónmáli í kjaradeilu lækna
Verkfall
Bráðaþjónusta
verður tryggð.
Stundar vændi
á pabbahelgum
n Íslensk móðir er ekki hrædd við afskipti lögreglu n Munnmök og samfarir kosta 30 þúsund kr.
Í
slensk móðir á fimmtugsaldri
stundar vændi í Reykjavík til þess
að framfæra sjálfri sér og syni sín-
um. Vændið stundar hún heima
hjá sér þegar sonur hennar er hjá
pabba sínum.
Móðirin segist ekkert óttast af-
skipti lögreglu enda sé hún ekki að
gera neitt ólöglegt. Hún hefur rétt
fyrir sér enda eru viðskiptavinir
hennar þeir einu sem eru að brjóta
206. grein almennra hegningarlaga.
Í greininni kemur fram að hver sem
greiðir eða heitir greiðslu eða annars
konar endurgjaldi fyrir vændi skal
sæta sektum eða fangelsi allt að einu
ári.
Vændið auglýsir konan á vef sem
heldur utan um „fylgdarkonur“ í
Reykjavík en auk hennar er fjöldi
kvenna sem auglýsa þjónustu sína
á höfuðborgarsvæðinu en með aug-
lýsingunum fylgja númer þeirra. Þá
segir á vefsíðunni að rauða hverfið í
Reykjavík sé á horni Laugavegar og
Frakkastígs.
Starfa víðs vegar um borgina
DV hafði samband við nokkr-
ar vændiskonur sem virtust starfa
í hinum ýmsu hverfum Reykjavík-
ur, meðal annars í miðborginni.
Einhverjar vændiskonur virtust þó
starfa í sama húsi í Breiðholtinu.
Blaðamanni var ítrekað vísað á sama
heimilisfangið þar, af mismunandi
konum.
Verðið á munnmökum og samför-
um virðist nokkurn veginn það sama
hjá flestum af þeim erlendu vænd-
iskonum sem DV hafði samband við
en sú íslenska sló þeim reyndar við
í verði og var um 10 þúsund krón-
um ódýrari. Þannig kostuðu munn-
mök og samfarir 30 þúsund krónur
á klukkutímann hjá íslensku móður-
inni en um 40 þúsund krónur hjá er-
lendum starfssystrum hennar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þá taka þær allar aukagjald ef ósk-
að er eftir einhverju meira en munn-
mökum og samförum. Íslenska
konan býður til að mynda upp á
endaþarmsmök og er það fimm þús-
und króna aukagjald sem þá er lagt
ofan á þær 30 þúsund krónur sem
hún tekur fyrir klukkutímann.
Ekki hrædd við lögguna
„Ég á son sem býr til skiptis hjá mér
og pabba sínum og ég er eingöngu
í þessu þegar að sonur minn er hjá
pabba sínum. Starfsemin er því í
lágmarki. Lögreglan hefur aðallega
áhuga á starfsemi þar sem hún grun-
ar að sé verið að stunda mansal. Að
þetta sé skipulögð vændisstarfsemi
þar sem einhver þriðji aðili er að
hagnast. Það er það sem þeir leggja
áherslu á að fylgjast með,“ segir kon-
an og bætir við að það sé af þessum
ástæðum sem hún sé ekki hrædd við
að auglýsa símanúmerið sitt á vefn-
um.
„Þó að símanúmerið mitt sé
þarna, og þeir hafa vafalaust séð
það, þá eru þetta bara örfáir dagar
í mánuði þannig að þó að þeir hafi
fylgst með húsinu mínu þá geta þeir
ekki hafa séð neitt því þetta er bara
ósköp venjulegt íbúðarhús. Síma-
númerið mitt er búið að vera þarna
í tvö ár og enginn hefur lent í yfir-
heyrslu. Ég hef enga ástæðu til að
gruna að ein-
hver sé að fylgj-
ast með mér.“
Tekið skal
fram að blaða-
maður kynnti
sig ekki sem
slíkan í sam-
tölum hans við
vændiskonur í
Reykjavík. Það
var gert til þess
að fá innsýn
inn í vændis-
starfsemina
á Íslandi og
líf þeirra sem
hana stunda.
Nöfn og
persónulegar
upplýsingar
hafa verið
fjarlægðar og
tekin var sú
ákvörðun að
nefna ekki
lén vefsíð-
unnar. DV
hefur að undanförnu fjallað mikið
um vændi á Íslandi. Í síðasta helgar-
blaði var ítarleg umfjöllun um þann
skort á úrræðum sem til staðar er
fyrir fólk sem stundar vændi og að
ekkert athvarf er fyrir fólk sem hefur
verið selt mansali. n
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Óhrædd við lögregluna
Konan segist ekki vera að
gera neitt ólöglegt enda
er það aðeins refsivert að
kaupa vændi.
Ekkert „photoshop“
Konan segist ekkert hafa
átt við myndirnar sem
hún birtir af sér á netinu.
30–40 þúsund fyrir klukkutímann
Hægt er að fá alls kyns aukaþjónustu en
það er þá lagt ofan á upprunalega verðið.