Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 16
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201416 Fréttir
Þ
eir lögreglumenn sem DV
hefur rætt við í kjölfar af-
hjúpunar á að til stæði að
koma fyrir MP5 hríðskota-
byssum í flest alla lögreglu-
bíla hafa haft orð á því að mesta
hneykslið sé hlægilega létt skotpróf
sem ætlast er að lögreglumenn nái.
Að þeirra sögn viti þeir ekki til að
neinn hafi fallið á prófinu og að elstu
lögreglumenn, sem séu í raun í engu
formi, nái prófinu.
„Það pirrar okkur lögreglumenn
að aðilar sem eru ekki í formi fái
aðgang að þessum vopnum. Ef
lögreglan á að vopnast þá þarf að
þjálfa menn miklu betur og prófa
þá undir álagi. Þetta er gert til dæm-
is með því að láta menn hlaupa 500
metra og síðan skjóta af byssunni.
Menn þurfa að læra að hægja á
hjartslættinum og róa sig niður svo
þeir skjóti ekki bara út í loftið,“ segir
einn af þeim lögreglumönnum sem
DV ræddi við.
Líkt og DV hefur greint frá fóru
fram umfangsmikil námskeið á
dögunum meðal lögreglumanna í
notkun á MP5 hríðskotabyssum. Í
heildina voru um 200 lögreglumenn
sem sóttu nýverið námskeið á æf-
ingasvæði sérsveitarinnar á öryggis-
svæði Keflavíkurflugvallar.
Þurfa að hæfa A3-blað
Samkvæmt heimildum DV innan
lögreglunnar þá er prófið fyrir MP5-
vélbyssuna fremur einfalt. Lögreglu-
menn taka sér stöðu 15, 20 og 25
metrum frá skotmarkinu sem er A3
blað, 297 millimetrar á breidd og 420
millimetrar á lengd. Þess má geta að
síðan sem þú ert að lesa nú er örlítið
minni en skotmarkið. Engin tíma-
mörk eru á prófinu en lögreglumenn
þurfa að hæfa A3-blaðið fjórum
sinnum og hafa til þess fimm skot.
Lögreglumennirnir þurfa ekki
að gangast undir nein önnur próf,
hvorki þolpróf eða gangast undir
geðmat. Sérsveitarmenn þurfa hins
vegar að gangast undir mun erfiðari
próf og eru þeir bæði álags- og þol-
prófaðir.
„Þetta próf er bara algjört djók.
Þú þarft í raun og veru litla sem enga
þjálfun til þess að ná skotprófinu.
Glock-skotprófið er tekið í 7 og 10
metra fjarlægð en þar er notast við
A4-blað. Að sama skapi höfum við
fimm skot og þurfum að hitta fjórum
þeirra í blaðið.“
Tveggja daga námskeið
Þjálfun lögreglumanna stendur nú
yfir en samkvæmt heimildum DV
hafa um 200 lögreglumenn sótt
sérstakt tveggja daga námskeið þar
sem farið var yfir notkun á þess-
um vopnum. Fyrir hádegi var farið
í handtökuæfingar og eftir hádegi
fræðslu og þjálfun í notkun MP5.
Daginn eftir var enn og aftur far-
ið í handtökuæfingar fyrir hádegi
og eftir hádegi fræðslu og þjálfun
á Glock, þessa sígildu hálfsjálfvirku
skammbyssu sem flest lögregluyf-
irvöld í hinum vestræna heimi not-
ast við.
Annar lögreglumaður sem DV
ræddi við sagði skotprófið „barna-
leik“ og að nánast hver sem er gæti
staðist slíkt próf eftir að hafa að-
eins skotið tvisvar sinnum úr byssu
undir handleiðslu kennara: „Þér er
kennt að taka öryggið af og skjóta
á blað.“ Aldurstakmark í lögregluna
er 20 ár og því gætu mjög ungir lög-
reglumenn þurft að taka upp vopn
við erfiðar aðstæður.
Þess má geta að ítrekuðum fyrir-
spurnum DV til ríkislögreglustjóra
hefur ekki verið svarað.
Próf veiðimanna erfiðara
Til að sýna fram á hve auðvelt sé
að standast skotpróf lögreglunn-
ar er hægt að bera prófið saman við
það sem hreindýraveiðimenn þurfa
að standast til að fá að fara á veiði.
Að vísu er notkun á riffli prófuð hjá
veiðimönnum meðan lögreglumenn
eru prófaðir á MP5 hríðskotabys-
sum, sem vissulega eru frábrugð-
in vopn. Samanburðurinn felst fyrst
og fremst í því hve mikill munur er
á erfiðleika að hitta skotmark miðað
við vopn. Meðan nokkuð algengt sé
að veiðimenn falli á sínu prófi er hið
sama óþekkt meðal lögreglumanna.
Meiri nákvæmni
Á vef Umhverfisstofnunar er ræki-
lega farið yfir framkvæmd skotprófs
fyrir hreindýraveiðimenn sem og
ströng skilyrði sem nauðsynleg eru
til að ná því. „Skotið er á 100 m færi
og þú átt að skjóta fimm skotum á
innan við fimm mínútum. Öll skot-
in eiga að snerta eða hafna innan
hrings á skotskífunni sem er 14 sm
að þvermáli,“ segir á vefnum. Líkt og
sjá má er ætlast til talsvert meiri ná-
kvæmni af hreindýraveiðimönnum
en lögreglumönnum; veiðimenn
mega ekki missa marks ólíkt lög-
reglumönnum. n
S
íðastliðinn miðvikudag
fór fram opinn fundur um
vopnaburð lögreglu í Stúd-
entakjallaranum. Einn þátt-
takenda var Katrín Oddsdóttir lög-
maður og færði hún rök fyrir því
að ekki væri lagaleg heimild hjá
lögreglu til vopnaburðar. „Þetta
er á mjög gráu svæði. Sérstaklega
þar sem einu fyrirmælin sem eru
til um þetta eru reglur frá ráðherra
sem eru ekki birtar, og það er í al-
gjörri andstöðu við stjórnarskrá
og lög sem segja að allar reglur
eigi að birta, annars séu þær ekki
bindandi fyrir borgarana, þannig
að ef lögreglan byggir byssueign
sína á einhverjum reglum sem
hvergi eru birtar þá er hún á ein-
hverju lagalega mjög gráu svæði
vegna þess að það er ekki hægt
að sjá hvort það sem hún gerir
sé í raun og veru í samræmi við
reglurnar eða ekki, og borgurun-
um bara ætlað að treysta henni
blint og því að eftirlit sé til staðar.
En það er í andstöðu við megin-
reglur réttarríkisins,“ segir Katrín í
samtali við DV.
Nauðsynlegt að birta reglur
Katrín segir enn fremur að ekki
sé heimild til að halda lögum um
vopnaburð lögreglu leyndum frá
almenningi. „Það sem er svo alvar-
legt við það er að í þessari 3. grein
vopnalaga þar sem er talað um að
löggan og Landhelgisgæslan og
fleiri falli ekki undir þetta, né vopn
í þeirra eigu, þar stendur „Ráð-
herra setur sérstakar reglur um
þessa vopnaeign“ en það eru þess-
ar reglur sem eru óbirtar. En það
stendur ekkert í lögunum að þær
megi vera leynilegar og almenna
reglan í landinu er sú að það verði
að birta allar reglur. Þannig að
þetta er bara beint á skjön við allt
sem stjórnarskráin segir okkur og
þar kemur fram í 26. grein að það
á að birta lög. Það sama á við um
lög og reglugerðir. Þannig að það
er ekki einu sinni heimild til þess
að halda þessu leyndu sérstaklega
í lögum,“ segir Katrín og telur hún
mikilvægt að búinn sé skýr lagara-
mmi um hvaða vopn lögreglan
megi beita, við hvaða tilefni, sem
og verklag komi til þess að þeim sé
misbeitt.
D
V leitaði til Guðmund-
ar Kr. Gíslasonar, fram-
kvæmdastjóra Skotfélags
Reykjavíkur og skotmanns
ársins 2003, til að kanna hversu
auðvelt próf lögreglumanna væri
samkvæmt sérfræðingi í skotvopn-
um. „Þetta er færi sem við inn-
an íþróttahreyfingarinnar þekkj-
um ekki mjög til því við skjótum á
25 metra færi að lágmarki. Þannig
að eins og þetta er hjá skotveiðifé-
lögum þá er sjö metra færi notað
til að kynna fólki skammbyssum til
að byrja með. Það er voðalega erfitt
að bera það saman, MP5 eru níu
millimetra byssur, sama og Glock,
þannig að þetta verður aldrei lang-
drægt varðandi nákvæmni. Fæst-
ir okkar myndu treysta okkur til
að skjóta af nokkurri nákvæmni á
lengra færi,“ segir Guðmundur.
Símenntun nauðsynleg
Hann leggur mikla áherslu á að
tveggja daga námskeið sé ekki
nægileg þjálfun til að viðkomandi
geti notað byssur svo sem MP5 af
nokkurri nákvæmni. „Auðvitað, til
að þjálfa fólk í svona skotvopnum,
þá þurfa menn að vera í því sem við
getum kallað símenntun, þú verð-
ur að skjóta reglulega til að ráða
við þetta almennilega. Ég er enginn
sérfræðingur í svona tólum en ég
veit að þessar kúlur sem þau eru að
nota, sem sagt í Glockinn og MP5,
það er bara helvíti erfitt á þessu færi,
hvað þá lengra,“ segir Guðmundur.
Engin síun
Spurður um hvað
honum finnist um að ekki sé vit-
að um neitt fall í skotveiðiprófi
lögreglumanna segir Guðmundur
það merki um að það sé ekki raun-
verulegt próf. „Ef það er ekkert fall
í prófi þá veistu það jafn vel og ég
að það er eitthvað að því. Breyturn-
ar verða að vera þannig að það sé
fall. Við höfum mjög mikla reynslu
af próftöku í skotfimi, þá erum við
að tala um hreindýraprófin sem
eru haldin á höfuðborgarsvæð-
inu hjá Skotfélagi Reykjavíkur. Þar
er bara mjög algengt hjá flestum
próftökum um allt landið að fallið
sé í kringum 30 prósent. Ég myndi
halda það að ef lögreglan ætlaði að
fá fólk til að kyngja því að viðkom-
andi væri hæfur til að nota þetta þá
hafi hann farið í gegnum síun sem
ekki allir hafa komist í gegnum,“
segir Guðmundur.
Erfitt að ná leikni
Hann telur að ef lögreglumenn
ætli að nota skotvopn við störf sín
þá verði að efla þjálfun. „Við höf-
um rætt þetta innan okkar hóps,
sérstaklega eftir að þetta MP5 mál
kom upp, að við vitum að það er
erfitt að skjóta af þessu og til þess
að ná leikninni þá verðurðu að
mæta oftar. Þú ferð ekki á helgar-
námskeið og ætlar svo að svara
kalli eftir tvö ár þar sem þú þarft
að beita henni. Nei, það virkar ekki
svona,“ segir Guðmundur.
AuðveldArA
Að fá leyfi til Að
skjótA menn en dýr
n Lögreglumenn voru ekki þol- eða álagsprófaðir á tveggja daga byssunámskeiði
Atli Már Gylfason
Hjálmar Friðriksson
atli@dv.is / hjalmar@dv.is Leynd í andstöðu við
meginreglur réttarríkis
Engin síun í skotprófi
lögreglunnar
n MP5 vandmeðfarið skotvopn
n Regluleg þjálfun undirstaða skotvopna