Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 31. október–3. nóvember 201434 Fólk Viðtal É g vissi að þetta væri býsna skemmtilegt en ætli vinsæld- irnar hafi ekki farið fram úr okkar svokölluðu björtustu vonum. Það hefur líka verið gaman að sjá hversu breiður hóp- ur hefur verið að horfa – ekki bara íslenskunördarnir heldur hið ótrú- legasta fólk. Það sannar það sem við héldum og vissum; það hafa allir gaman af tungumálinu,“ segir Bragi Valdimar Skúlason um sjónvarps- þáttinn Orðbragð sem hann stjórn- ar ásamt Brynju Þorgeirsdóttur en ný sería hefst nú á sunnudaginn. Óttalegur bókagrís Bragi Valdimar íslenskufræðingur, sjónvarpsmaður, textasmiður, aug- lýsingamaður og Baggalútur með meiru, segist alltaf hafa haft áhuga á tungumálinu. „Ég var óttalegur bókagrís þegar ég var yngri en það að leika sér að tungumálinu eða hugsa sérstaklega um það kom til- tölulega seint. En ég skellti mér í ís- lensku í háskólanum svo einhver áhugi hefur verið orðinn þá,“ segir hann en neitar því að hafa haft ís- lenskuþáttarstjórnadrauma í mag- anum. „Ég er ekki enn búinn að ákveða hvað ég ætla að verða svo ég var ekki búinn að ákveða það þegar ég fór í námið. Íslenskan hentaði mér. Ég hef alltaf haft gaman af því að pæla í tungumálinu en held að ég hafi ekki haft neinar sérstakar von- ir um að námið myndi nýtast mér eitthvað en það gerði það. Þetta er bara eins og með allt nám, það er það sem maður gerir við námið sem skiptir máli. Maður þarf kannski að hafa meira fyrir því að nýta sér þetta en ýmislegt annað.“ Ryksugaði upp bókasöfn Bragi Valdimar var alinn upp fyrir vestan, nánar tiltekið í Hnífsdal þar sem hann bjó til 1991 þegar hann flutti suður til að fara í Menntaskól- ann við Hamrahlíð. „Það var ljóm- andi gott að búa fyrir vestan – svona þegar það var rafmagn og maður komst út úr húsi fyrir snjó. Þessi ára- tugur var veðurfarslega mjög snjó- þungur og þar af leiðandi var gaman að leika sér úti. Þetta var afskaplega góður staður fyrir krakka til að ráfa um og rasa út fram eftir aldri,“ segir Bragi sem gekk vel í skóla. „Ætli það sé ekki óhætt að segja það, jafnvel opinberlega. Ég var alltaf voðalega duglegur í heimanáminu og ótta- legur bókabéus, ryksugaði upp hin og þessi bókasöfn. Það var heilmikill uppgangur þarna í kringum 1980 og í mínum bekk voru alveg tólf nemendur, sem þótti gott. Það var mikið sprellað. Þarna voru komin bæði vídeó- og sódastreamtæki svo þetta var mikið menningarbæli.“ Stjórnaði heimilinu Foreldrar Braga eru þau Ingibjörg Valdimarsdóttir og Guðmundur Skúli Bragason. Bragi á tvær hálf- systur en þar sem þær bjuggu á Raufarhöfn var hann að mestu alinn upp sem einbirni og naut þess að stýra heimilinu, ásamt heimilisk- ettinum. „Auðvitað hefði örugg- lega verið gaman að hafa systkini meira innan seilingar en ef mann vantaði félagsskap var hoppað út í næsta skafl og þá var fljótlega kom- inn snjóbolti í hausinn á manni. Ég var svo sem ekkert mikið að íhuga mína samfélagslegu stöðu á þessum árum – ekki frekar en nokkurn tím- ann.“ Óheppinn með tísku Þegar hann nálgaðist unglingsár- in var stefnan sett á MH eftir að hafa heillast af Rocky Horror-sýn- ingu skólans sem hann fékk veður af í sjónvarpsþættinum Á tali með Hemma Gunn. Fyrsta hálfa árið bjó hann hjá ömmu sinni en svo komu foreldrar hans á eftir honum suður. „Ég held að þau hafi ekki haft neinar áhyggjur af mér enda var ég ekki til mikilla vandræða. Stefnan hjá þeim var alltaf að flytja aftur til baka. Ég var í afskaplega lítilli upp- reisn nema maður telji axlasítt hár mikla félagslega yfirlýsingu. Ég var aðallega að hlusta á þungarokk og láta mömmu setja bætur á galla- jakkann minn með misgeðsleg- um þungarokkhljómsveitum. Ég var ákaflega óheppinn með tísku þessi ár sem fólst að mestu í því að klæðast gallajökkum og ganga með skjalatösku í skólann,“ segir hann og játar því að höfuðborgin hafi ver- ið spennandi staður fyrir saklausan dreng að vestan. „Það voru við- brigði að komast í borgina en þetta gekk allt. Það stóð aldrei til hjá mér að fara að drekka, en það hafðist – og eftir það voru nokkur böll í ein- hverri móðu. Ég held að mér hafi ekki orðið neitt voðalega meint af því.“ Hann viðurkennir að það hafi verið umbreyting að koma úr skóla þar hann þekkti alla í skóla þar sem hann þekkti engan. „Ég þekkti ná- kvæmlega engan þegar ég kom og hefði eiginlega þurft að grípa með mér nafnspjald; Bragi Valdi- mar Hnífsdælingur. Þetta voru að- allega viðbrigði, en það bjargaðist með stofnunum eins og leikfélaginu og kórnum. Ég tók virkan þátt í fé- lagslífinu og við það fór stærðfræði- Íhaldssamur anarkisti og bókabéus Þrátt fyrir að Bragi Valdimar Skúlason hafi ávallt verið mikið íslenskunörd þvertekur hann fyrir að vera svokallaður málfarsfasisti. Bragi Valdimar ræðir hér um tungumálið sem hann ann, sjónvarpsþáttinn Orðbragð, dæturnar þrjár, æskuárin á Vestfjörðum, Baggalútsævintýrið og eiginkonuna sem hann kvæntist í Las Vegas. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is „Það liggur við að hún hafi hengt um hálsinn á mér „Snertið ekki“- skilti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.