Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 36
36 Neytendur Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014
Hollráð fyrir Heimilissaltið
n Þú getur notað salt í fjölmargt annað en matargerð n Ótal snjöll húsráð til að prófa
Þ
að er alltaf gaman að upp-
götva ýmiss konar gagnleg
húsráð sem oftar en ekki
eru falinn fjársjóður, nyt-
samlegir hlutir sem fæst-
ir eru meðvitaðir um. Hvern hefði
til dæmis grunað að nota mætti
salt til að leysa margvísleg hvers-
dagsleg vandamál á heimilinu á
hagkvæman og umhverfisvænan
hátt og þannig komast hjá kaupum
á sértækum og dýrum spilliefnum
sem síðan eru sjaldan eða aldrei
notuð aftur og taka skápapláss.
Salt er til á flestum heimilum og
þekkja það margir að kaupa stór-
an dunk af borðsalti sem þeir eiga
síðan til svo árum skiptir þrátt fyrir
hófsama notkun í eldhúsinu. Salt
er tiltölulega ódýrt þó að vissulega
megi fá það í fínum og dýrum út-
gáfum eins og sjávarsaltsflögum
og öðru fíneríi. DV rakst á áhuga-
verða grein um notagildi salts á vef
Consumer Reports á dögunum og
fór á stúfana. Þá kom í ljós að til er
aragrúi af húsráðum fyrir salt. Hér
er brot af því besta, sumt af þessu
hefði manni aldrei dottið í hug að
prófa. Fjölmörg virt tímarit á borð
við Reader's Digest og fleiri ábyrgj-
ast þessi bráðsnjöllu húsráð. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Blettahreinsun og hreingerning
n Kaffikannan fær nýtt líf Til að fjarlægja
þráláta kaffibletti úr glerkaffikönnum getur
þú sett fjórar teskeiðar af salti, einn bolla af
ísmulningi og eina matskeið af vatni. Hrærðu
í þar til kannan er hrein og skolaðu síðan.
Kannan þarf að vera við stofuhita áður en
hún er hreinsuð með þessum hætti, ekki nota
þetta ráð ef hún er brotin.
n Brotið egg
ekkert vandamál
Þeir sem lent hafa í
því að missa egg í gólfið
vita að það getur verið þrautin þyngri að ná
gumsinu upp. Vandamálið er úr sögunni ef
þú hellir salti yfir eggið. Svo þarftu bara að
þurrka það upp með eldhúsþurrku.
n Fjarlægðu ryð Með
réttu blöndunni virkar
salt vel til að fjarlægja
ryð. Til að hreinsa
ryð af t.d. ryðguðu
stýri á reiðhjóli og
dekkjagjörðum getur
þú blandað saman
sex teskeiðum af salti og
um tveimur matskeiðum
af sítrónusafa þar til efnin mynda
mauk. Berið maukið á ryðgaða yfirborðið
með þurrum klút og nuddið. Skolið og
þurrkið. Sömu aðferð má nota á ryðgað-
an borðbúnað og fleira, t.d. ryðguð skæri.
Búið til mauk með einni teskeið af salti og
sítrónusafa og berið á og þrífið.
n Silkiblómin gleðja á ný Það er auðvelt
að henda bara fallegum silkiblómum þegar
þau verða rykfallin og óaðlaðandi með
tímanum. En það er óþarfi. Settu blómið
í plastpoka, helltu rúmum 200 grömmum
af salti í pokann og hristu svo hraustlega.
Blómið er nú hreint.
n Vínblettinn úr
fötunum Það er
erfitt að njóta þess
að drekka gott vín
ef það eyðileggur
þína fínustu skyrtu í
kjölfarið. Til að nota
salt sem blettahreinsi
á bómullarefni helltu
strax nægu salti beint á blett-
inn til að láta efnið draga í sig vökvann. Að því
loknu skaltu láta skyrtuna liggja í bleyti í hálf-
tíma í köldu vatni. Skelltu svo í þvottavélina.
n Bjargaðu teppinu Þú þarft heldur ekki
að örvænta ef þú hellir rauðvíni á hvítt teppi.
Það er von um að bjarga því með því að hella
strax smá hvítvíni á blettinn til að þynna út
litinn. Þrífðu svo blettinn með svampi og
köldu vatni. Stráðu salti yfir og láttu standa í
um 10 mínútur. Ryksugaðu allt saman upp og
vonaðu það besta.
n Málmhreinsir
Hlutir úr kopar eða
látúni geta orðið
dauflegir með tíman-
um. Það getur komið
græn slikja á gamla
koparpotta svo dæmi
sé nefnt. Til að ná aftur
gljáanum getur þú búið til
þitt eigið hreinsiefni með blöndu
af salti, hveiti og ediki í jöfnun hlutföllum
þannig að úr verði mauk. Notaðu mjúkan klút
til að bera maukið á stássið, skolaðu svo með
heitu sápuvatni og fægðu loks gripinn til að
ná fram gamla góða gljáanum.
n Svampurinn eins og nýr Litlir svampar
og skúringasvampar geta orðið skítugir og
ógeðslegir löngu áður en þeir syngja sitt síð-
asta. Til að endurnýja ástand svampsins settu
ríflega 50 grömm af salti í lítra af vatni og láttu
liggja yfir nótt.
n Ekki láta matinn harðna í ofninum
Þegar þú eldar eitthvað í
ofninum, t.d. lasanja, þá
getur það gerst að það
flæði upp úr eldfasta
mótinu og niður á
ofnbotninn. En það
er óþarfi að láta sullið
bakast og harðna.
Skelltu smá salti á gumsið
meðan það er enn í fljótandi
formi og þegar ofninn kólnar getur
þú strokið það burtu með tusku. Sama á við ef
þetta gerist þegar þú ert að matreiða á hellu.
n Fjarlægðu svitabletti
Salt er lausnin við þessum þrálátu gulu
svitablettum sem myndast geta
í handarkrikanum á bolum
og skyrtum. Leystu fjórar
teskeiðar af salti upp í lítra
af heitu vatni og strjúktu
yfir blettinn með lausninni
þar til hann hverfur.
Endalaust notagildi
Það má nota salt til ótrúleg-
ustu verka. Það er hreinsiefni,
bletta-, lyktar- og stíflueyðir
og arfaskelfir svo eitthvað sé
nefnt. Mynd ShuttErStock