Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Qupperneq 6
6 Fréttir Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014
VIÐ ERUM GÓÐIR Í GÍRUM
• 0,12 - 200 kW
• 10 - 200.000 Nm
• 0,01 - 1.100 RPM
• Sniðið að þínum þörfum
Knarrarvogi 4 104 Rvk. Sími 585 1070
vov@vov.is www.vov.is
G
ra
fik
a 1
1
Áratuga reynsla og þýsk nákvæmni
Drifbúnaður
Ólafur hefur tekið
rúman milljarð í arð
Rekstur Samskipa gengur vel og hefur eigandinn getað tekið sér drjúgan arð tvö ár í röð
H
ollensk eignarhaldsfélög í
eigu Ólafs Ólafssonar fengu
greiddar 2,3 milljónir evra,
samtals tæplega 365 milljón-
ir króna, í arðgreiðslur út úr
Samskipum í fyrra. Þetta kemur fram
í nýbirtum ársreikningi Samskipa fyr-
ir árið 2013. Arðgreiðslan lækkaði
um nærri tvær milljónir evra á milli
ára en árið 2012 nam hún 4,4 millj-
ónum evra, eða tæplega 750 milljón-
um króna. Á tveimur árum nema arð-
greiðslurnar því rúmum milljarði.
Samskip hefur verið talsvert í um-
ræðunni liðnar vikur vegna kæru fyr-
ir meint samkeppnislagabrot sem
Samkeppniseftirlitið sendi til til
embættis sérstaks saksóknara fyrr á
árinu. Kæran snýst líka um Eimskip.
Kastljós greindi frá kærunni fyrir
skömmu. Nokkrir af helstu ráða-
mönnum fyrirtækjanna tveggja eru
kærðir persónulega. Rannsóknin er
skammt á veg komin hjá embætti
sérstaks saksóknara. Bæði fyrirtæk-
in, og stjórnendur þeirra, neita sök
í málinu. Fyrirtækin hafa auk þess
kært leka á upplýsingum um kæruna
til lögreglunnar.
Hagnaður dregst saman
Hagnaður Samskipa dróst nokkuð
saman á milli áranna 2012 og 2013.
Árið 2012 nam hann tæplega 2,4
milljónum evra, um 380 milljónum
króna, en tæplega 930 þúsund evr-
um í fyrra, tæplega 150 milljónum
króna. Athygli vekur að í fyrra var
nær allur hagnaður félagsins frá því
árið 2012 var tekinn út í arð í fyrra.
Eigendur Samskipa eru tvo hol-
lensk eignarhaldsfélög, Samskip B.V.
og Samskip Holding B.V. en Ólafur
Ólafsson hefur í gegnum tíðina not-
ast mikið við hollensk eignarhalds-
félög til að halda utan um eignir sín-
ar á Íslandi. Til að mynda átti hann
hlutabréf í Kaupþingi fyrir hrun í
gegnum félagið Kjalar Invest B.V.
Á enn þá miklar eignir
Ólafur á ennþá miklar eignir á Ís-
landi þrátt fyrir að tvær af hans
stærstu eignum, hlutabréfin í Kaup-
þingi og þriðjungshlutur í sjávarút-
vegsrisanum HB Granda, hafi tapast
í hruninu. Ólafur á til dæmis eigna-
mikið fasteignafélag, Festingu ehf.,
sem á eignir upp á nærri 16 millj-
arða króna samkvæmt nýjasta árs-
reikningi þess. Félagið heldur með-
al annars utan um fasteignirnar sem
hýsa starfsemi Samskipa.
Samskip á í dag eignir upp á ríf-
lega 48 milljónir evra en skuldar
tæplega 39 milljónir. Þar með er hins
vegar ekki öll sagan sögð þar sem
hluti skulda Samskipa er víkjandi lán
upp á ríflega 12 milljónir evra, vænt-
anlega frá hluthafa félagsins. Þegar
þetta lán er tekið frá skuldunum er
eiginfjárstaða félagsins jákvæð um
44,5 prósent og Samskip því í ágæt-
um málum.
Þrýstingur frá Hollandi
Líkt og komið hefur fram í fjölmiðl-
um náði Ólafur Ólafsson að halda yf-
irráðum yfir Samskipum eftir hrun
með stuðningi belgíska bankans
Fortis sem var í lykilstöðu í endur-
skipulagningarferli skipafélagsins.
Í viðtali við DV í fyrra sagði Finnur
Sveinbjörnsson, sem var bankastjóri
Arion banka um tíma eftir hrun, að
belgíski bankinn hefði sannarlega
beitt sér í málinu. Svo mikil var að-
koma Fortis að bankinn hótaði því
meira að segja að kyrrsetja skip Ólafs
ef Arion banki myndi ekki vilja vinna
með honum áfram. Þá hefði Arion
banki getað tapað miklum fjármun-
um og Fortis raunar líka. En belgíski
bankinn var reiðubúinn að ganga
svo langt fyrir Ólaf.
Finnur sagði í viðtalinu: „Ég talaði
alfarið fyrir bankann á þessum tíma
og greindi frá því að Arion banki
hefði verið í þessari stöðu: Að Fort-
is hefði stutt Ólaf og viljað vinna með
honum áfram. Ég sagði að Arion
banki hefði verið kominn í mjög erf-
iða stöðu og að bankinn hefði fórn-
að meiri hagsmunum fyrir minni ef
ákveðið hefði verið að láta sverfa til
stáls; það er að segja ef Arion banki
hefði ákveðið að vinna ekki með
Fortis-bankanum með þeim hætti
sem bankinn vildi.“
Þannig náði Ólafur að halda Sam-
skipum eftir hrunið og siglir félag-
ið tiltölulega lygnan sjó rekstrarlega
um þessar mundir og Ólafur hefur
tekið sér rúman milljarð í arð út úr
félaginu á síðustu tveimur árum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Kemur ágætlega undan hruninu Ólafur Ólafsson er enginn nýgræðingur í viðskiptum og hefur komið ágætlega undan efnahagshrun-
inu. Arðgreiðslur út úr Samskipum nema rúmum milljarði síðastliðin tvö ár. Mynd SIgtryggur ArI„Að Fortis
hefði stutt
Ólaf og viljað vinna
með honum áfram
Kallaði sig afa
og gaf sælgæti
Hrönn Bergþórsdóttir, skólastjóri
Víðistaðaskóla, sendi foreldrum
og forráðamönnum barna tölvu-
póst síðdegis á miðvikudag um
að maður sem kallar sig afa og
ekur um á hvítum bíl hefði kall-
að í lítinn dreng á leið heim úr
frístundaheimilinu Hraunkoti í
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði og
gefið honum sælgæti í poka.
Drengurinn kom heim með
sælgætið og þannig kom málið
fram. Segir í póstinum að lög-
reglan hafi sagt stjórnendum
skólans frá málinu.
Hrönn biður foreldra og for-
ráðamenn að ræða við börnin
um hvað beri að varast í svona til-
vikum. Ekki sé staðfest hvort um
vafasaman tilgang var að ræða,
en best sé að fara varlega.
Hafa aðgang
að skamm-
byssum
Allir lögreglumenn á Akureyri
hafa aðgang að skammbyssum
ef þarf. Þetta staðfestir Daníel
Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á
Akureyri, í samtali við Akureyri
Vikublað. Í blaðinu segir Dan-
íel íslenska lögreglu hafa fengið
þjálfun í vopnaburði og að hún
hafi haft aðgang að skotvopnum
áratugum saman en þó séu lög-
reglumenn almennt á móti því að
íslenska lögreglan sé vopnuð.
„Enginn vilji er til þess hjá
stjórnendum lögreglunnar,“ seg-
ir Daníel við Akureyri Vikublað.
„Lögreglan verður þó að vera
í stakk búin til að bregðast við
alvarlegum atburðum þar sem
hættulegum vopnum er beitt.
Fjöldi dæma er til um slíkt síðustu
áratugina víðs vegar um landið,
til þess þarf þjálfun og þau verk-
færi sem best eru til þess fallin að
fást við slíkt,“ segir Daníel.
Rannsakar kynferðisbrot á Sólheimum
n Hefur áður verið kærður n Sagður hafa borið áfengi í fatlaða konu
L
ögreglan á Selfossi er með til
rannsóknar kynferðisbrot gegn
fatlaðri konu á Sólheimum í
Grímsnesi. Þorgrímur Óli Sig-
urðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Selfossi, staðfest-
ir þetta í samtali við DV. Málið fór
á borð lögreglunnar á Selfossi fyr-
ir þremur vikum en enn hafa ekki
farið fram neinar yfirheyrslur vegna
málsins. Þá hefur maðurinn sem
um ræðir ekki verið handtekinn.
Lögregla vinnur nú að upplýsinga-
og gagnaöflun en að öðru leyti vill
Þorgrímur Óli ekkert tjá sig um eðli
málsins.
Heimildir DV herma að maður-
inn hafi borið áfengi í konuna og
síðan brotið á henni kynferðislega.
Starfs síns vegna hefur hann aðgang
að bæði börnum og fötluðu fólki, en
hann mun þó ekki vera starfsmaður
Sólheima. Þá hefur honum ekki ver-
ið vikið úr störfum. Sömu heimildir
herma að maðurinn hafi áður verið
kærður fyrir kynferðisbrot og mun
fyrra brotið enn vera til meðferðar
hjá lögreglu.
Guðmundur Ármann Pétursson,
framkvæmdastjóri Sólheima, segist
ekki tjá sig um málefni einstaklinga.
Hann segir hins vegar mjög skýr-
ar verklagsreglur vera á Sólheim-
um varðandi möguleg kynferðis-
brot. „Við útbjuggum þær í góðu
samráði bæði við Stígamót og lög-
reglu til þess að gera þetta eins vel
og hugsast getur. Ef það er minnsti
grunur um eitthvað í þessa átt þá er
strax tekið á málum í fullu samráði
við hlutaðeigandi,“ segir Guðmund-
ur Ármann. n aslaug@dv.is
Enginn verið
yfirheyrður
Lögreglan á
Selfossi rannsakar
kynferðisbrot gegn
fatlaðri konu.
Mynd EyÞór ÁrnASon