Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Blaðsíða 26
Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 26 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Hallgrímur Thorsteinsson Fréttastjóri: Jóhann Hauksson • Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Ótrúlegt að gallinn hafi skilað sér. Ég er með sitt lítið af hverju í farteskinu núna. Ég kem algjörlega af fjöllum. Kurteislega beðið um aðra leiðtoga Silja Dögg Baldursdóttir, glataði sérprjónuðum galla af syni sínum - DVDiddú undirbýr jólavertíðina - DV Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., um óánægju vagnstjóra í hans garð - DV E lizabeth Warren berst fyrir rétti almennings í Bandaríkjunum gegn voldugum fjármálastofn- unum. Hún er óvæginn bar- áttujaxl og ein helsta vonarstjarna demókrata. Vaxandi hópur vestra vill að hún bjóði sig fram til forseta árið 2016. Það er að mestu henni að þakka að komið hefur verið á fót neytenda- verndarstofu gegn yfirgangi banka og fjármálastofnana. Liðsmenn dólga- frjálshyggjunnar og voldugra hags- muna í röðum repúblikana komu í veg fyrir að hún yrði forstjóri þeirrar stofnunar. Í nýrri bók þakkar Warren foreldr- um sínum fyrir að hafa skapað þjóð- félag tækifæranna. En hinn bitri sann- leikur nútímans er að mati hennar þessi: „Bandaríkin bjóða ekki upp á slíka framtíð lengur. Það er vitlaust gefið, leikreglurnar eru skrumskældar og vinna í þágu þeirra sem hafa pen- inga og völd.“ Elizabeth Warren segir frá því í nýrri bók sinni hvernig hún, milli- stéttarkonan, varð lagaprófessor við Harvard-háskóla og hvernig hún sneri sér að því að takast á við bandarísku gjaldþrotalögin. Að hennar mati sner- ust átökin um það hvort ríkisvaldið þjónaði í raun risavöxnum bönkum eða fjölskyldum í harðri lífsbaráttu. Fræg eru orð hennar sem Obama for- seti gerði að sínum í kosningabarátt- unni 2012: „Enginn hér í þessu landi hefur auðgast af sjálfum sér. Enginn ... Þú færir varning þinn á markað eft- ir vegum sem við hin borguðum fyr- ir; þú réðir til vinnu fólk sem við hin kostuðum til mennta; öryggi þitt var tryggt í verksmiðjunni með lögreglu og slökkviliði sem við hin greiddum fyrir. Sjáðu til; þú reistir verksmiðju og hún varð eitthvað æðislegt, eða mögn- uð hugmynd. Guði sé lof. Haltu drjúg- um hluta þessa. En hluti af samfélags- sáttmálanum, sem allt þetta hvílir á, felst í því að taka brot af auðlegðinni til þess að greiða leið barnanna sem eiga eftir að koma fram á sjónarsviðið.“ Fjármálahrunið árið 2008 gaf okk- ur tilefni til uppgjörs. Margt af því sem fram kemur í rannsóknarskýrslu Al- þingis lýsir óforbetranlegri græðgi og aðstöðubraski í litlu kunningjaþjóð- félagi. Tímabundin umskipti urðu í stjórnmálum í kjölfar hrunsins og leitast var við að taka alvarlega þær ábendingar sem fram höfðu kom- ið jafnframt því sem fjöldi efnahags- brota rataði inn í dómsalina á grund- velli ákæra sérstaks saksóknara. Margt bendir hins vegar til þess nú að lýsing Elizabeth Warren hér að framan eigi einkar vel við um íslenska samfélagið árið 2014. Reiði almennings, loforða- flaumur lýðskrumara og grandaleysi kjósenda kallaði um síðir yfir þjóðina svipað stjórnarfar og stefnu sem War- ren gagnrýnir svo harðlega vestanhafs. Þótt það þyki góð latína að skila hallalausum fjárlögum er ömurlegt til þess að vita hvernig komið er fyrir innviðum samfélagsins á sama tíma og ríkisstjórnin afsalar sér tugmillj- arða tekjum og ívilnar auðmönnum Íslands með afnámi auðlegðarskatts og verulegri lækkun tekna almenn- ings af auðlind sinni, fiskimiðunum í kringum landið. Samþjöppun auðs fer fram í skjóli fjármagnshafta. Ójöfnuðurinn eykst. Grafið er undan eftirlitsstofnunum sem vinna í þágu almennings á grund- velli djúpstæðra gilda um réttarfar, samkeppni og heiðarlega viðskipta- hætti. Forréttindahópar hreiðra um sig í nefndum og stjórnum. Þar úthluta þeir bitlingum sín á milli. Þegjandi. Kunningjaveldið leikur lausum hala. Í miðjum klíðum síðla árs 2014 fær kunnur bankamaður, sem sá fyr- ir og skrifaði um veikleika bankanna fyrir hrun, tilefni til að skrifa færslu á fésbókarsíðu sína: „Forstöðumað- ur fyrirtækjaviðskipta í banka kemst á snoðir um gróðatækifæri. Hann notar aðstöðu sína, fær sparifé almennings lánað og kaupir. Eftir nokkra bið selur hann. Sjóðir almennings, lífeyrissjóðir og verðbréfasjóðir kaupa fyrr eða síð- ar. Gróðinn er 800 milljónir, tekinn af almenningi. Ríkisvaldið sér snilldina og gerir þennan einstakling að æðsta manni eftirlits með fjármálastarfsemi í landinu.“ Að búa yfir upplýsingum sem aðr- ir hafa ekki geta verið forréttindi, eink- um á fjármálamarkaði. Í DV í dag eru rakin viðskipti nokkurra einstaklinga með eignarhluti í Skeljungi og hvern- ig þau skiluðu þeim ofsagróða á end- anum. Einn þeirra er Halla Sigrún Hjartardóttir, stjórnarformaður Fjár- málaeftirlitsins. Þegar umræða hófst um ofsagróða hennar lét hún svo lítið að lýsa því yfir að hún ætlaði senn að láta af störfum fyrir FME. Við hin get- um ekki beðið um annað en aukið gagnsæi við embættisveitingar og inn- an fjármálastarfseminnar sem virð- ist sokkin í sérhagsmunagæslu kunn- ingjaveldisins. Í leiðinni gætum við auðmjúklegast beðið um konur á borð við Elizabeth Warren til leiðtogastarfa hér á landi. n Skýrslumál fyrir dómstóla? Áhugafólk um mannréttindi er áhyggjufullt vegna hroðvirkni lögreglunnar við birtingu bús- áhaldabyltingarskýrslunnar svokölluðu. Nöfn sem áttu að vera strikuð út með svörtu reyndust ekki vera það og því var augljós- lega brotið gegn friðhelgi viðkom- andi. Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata, bendir auk þess á að skýr- slan sanni kerfisbundna söfnun upplýsinga hjá lögreglunni um mótmælendur er varða til dæm- is þeirra stjórnmálaskoðanir og fjölskyldutengsl. Miðað við þetta getur varla liðið á löngu þar til einhverjir þeirra sem telja á sér brotið fari að leita réttar síns. Dularfull starfslok Morgunblaðið átti eina af fréttum vikunnar þegar blaðið skúbbaði ævintýralegum hagnaði stjórnar- formanns FME af viðskiptum með hlutabréf í Skelj- ungi. Sögusagnirnar um viðskipti stjórnar- formannsins, Höllu Sigrúnar Hjart- ardóttur, hafa verið háværar um langt skeið en enginn fjölmiðill náði utan um málið. Hluti af sögusögnunum á sín- um tíma gekk út á að starfslok Höllu Sigrúnar í fjárfestingar- bankanum Straumi hafi borið að með óeðlilegum hætti og var talað um að hún hefði verið byrjuð að ota sínum eigin tota í starfinu. Var fyrirtækið Fjarðalax á Tálknafirði nefnt þar sérstaklega en hún situr einmitt í stjórn þess í dag. Ofsögum sagt Sögusagnir eru um að til standi að skera umtalsvert niður kostnað hjá Ríkisútvarpinu í ljósi tíðinda af erfiðri stöðu stofn- unarinnar. Þetta mun þó ekki vera á rök- um reist þar sem niðurskurðurinn hjá RÚV hingað til er sagður vera kominn inn að beini. Ef til frekari niðurskurðar kemur þarf að leggja af einstaka dagskrár- liði eða þætti og er hermt að þetta standi ekki til hjá Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra. Lausn- ina á vanda RÚV er því væntanlega ekki að finna í frekari uppsögnum á fólki heldur í annars konar hag- ræðingu, til dæmis með eignasölu. Orðið um Eyjuna Björn Ingi Hrafnsson, eigandi Vefpressunnar, er maður ekki einhamur og stýrir hann sjón- varpsþættinum Eyjunni á Stöð 2 samhliða störfum fyrir fjölmiðil sinn. Á Eyjunni er að finna nafn- laust slúðurhorn í anda Sand- korna og Staksteina, sem heitir Orðið á götunni sem ber oft höf- undareinkenni hans. Í síðustu tveimur molum hefur höfundi Orðsins tekist að vitna tvívegis í þátt Björns Inga á Eyjunni. Þetta minnir á fjölmiðlafyrirtækið 365 þar sem starfsmennirnir eru hvattir til að fjalla um fyrirtækið sjálft í hvívetna. Í dag eru liðin 150 ár frá fæðingu Einars Benediktssonar, höfuð- skálds Íslands eftir fráfall séra Matthíasar Jochumssonar 1920 allt til dauðadags 1940. Framtaksmaðurinn og skáldið Einar Benediktsson var margir menn. Hann var ekki bara skáld, heldur einnig ritstjóri, lögfræðingur, embættis- og athafnamaður. Hann var framtaksmaður, það sem Englendingar og Frakkar kalla entrepreneur. Hann stofnaði fyrsta dagblað Íslands, Dagskrá, 1896, var sjálfur ritstjóri blaðsins í tvö ár og skrifaði um stjórnmál, atvinnuvegi, bókmenntir og menningu af mik- illi snilld. Hann var meðútgefandi Landvarnar 1902, gaf síðan út Þjóð- ina 1914–1915 og ritstýrði henni og stofnaði og kostaði Þjóðstefnu 1916–1917 og Höfuðstaðinn 1916– 1917. Hann fékk Marconifélagið til að setja upp og starfrækja loft- skeytastöð í Reykjavík 1905–1906. Árin 1908–1921 stundaði hann ýmsa fjársýslu og fór víða, m.a. var hann oft í Noregi og lagði þar á ráð- in um virkjanir, bjó fyrst í Edinborg, síðan í Kaupmannahöfn 1908–1910, þá í London 1910–1917 og svo aftur í Kaupmannahöfn 1917–1921, en kom heim á milli. Hann bjó eftir það í Reykjavík næstu ár, en var oft lang- dvölum erlendis, m.a. í Þýzkalandi, á Spáni og í Norður-Afríku. Hann stofnaði The British North-Western Syndicate Ltd. 1910 og fossafélag- ið Titan 1914 með norskum fjár- festum. Eftir heimkomuna 1921 lét hann fara fram rannsóknir á nám- um í Miðdal, aðallega með málm- vinnslu og sements- og áburðar- framleiðslu fyrir augum. Skáldskapur Einars Benedikts- sonar birtist með reglulegu milli- bili í fimm bókum: Sögur og kvæði (1897), Hafblik (1906), Hrannir (1913), Vogar (1921) og Hvammar (1930). Einnig þýddi hann Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen (1901). Með- al annarra rita hans eru Nývaltýskan og landsréttindin (1902), Sannleiks- gullkorn og fróðleiksmolar (1910), Stjórnarskrárbreytingin og ábyrgð alþingis (ritgerðasafn, 1915) og Thules Beboere (1918). Auk þess birti hann margar greinar í blöðum og tímaritum, m.a. um Grænland. Þær lýsa framfarahug, jafnaðarhug- sjón og ríkri réttlætiskennd. Þeim mun rangsleitnari er gamli rógur- inn um meinta fjárglæfra hans, sem engir voru og engar heimildir eru til um aðrar en illmælgi og ábyrgðar- laust slúður. Einar kannaðist sjálfur við að vera a.m.k. tveir menn. „En þeir talast aldrei við“, bætti hann við. Norðurljósin rokseljast Íslendingum fórst ekki vel við Einar Benediktsson. Þingmenn og aðrir tortryggðu áform hans, þar eð þeir virtust ekki þekkja muninn á heil- brigðu framtaki og fjárglæfrum. Einari varð því frekar ágengt um áhugamál sín í Noregi en á Íslandi, þar sem hann sagði menn snýta sér þeim mun fastar í fingurna sem þeir skildu minna af því, sem við þá var sagt. Reynslan sýnir, að áform Einars Benediktssonar voru raunsæ, enda komust þau nær öll í framkvæmd eftir hans dag. Norðurljósin rokselj- ast. Svipmynd Símon Jóh. Ágústsson, síðar pró- fessor í sálarfræði, kynntist Einari Benediktssyni vel í París 1931–1932 og lýsir honum svo í handriti frá 1975: „Einar var með hærri mönn- um, … um 183 cm á hæð. … Hann var vel limaður, hendurnar grannar, langar og vel hirtar. Hann var … mikill á velli, vel í holdum, en ekki feitur. … Hann var nokkuð höfuð- stór, frekar langhöfði en stutthöfði. Hann hafði ekki fullt hár, en það var dökkt eða dökkjarpt, slétt eða lítið eitt liðað og gljáði á það. … Hann var með vel snyrt yfirvararskegg og var það farið að grána lítið eitt. And- litið var bæði frítt og gerðarlegt, svipurinn sterkur og hreinn. … Allra manna var hann bezt eygður. Aug- un voru í meðallagi stór, móleit, en jafnframt með bláum eða blágræn- um lit. Augnaráð hans var hvasst og leiftrandi og tók miklum breyting- um eftir skapbrigðum hans, svo og allur andlitssvipur hans. Í augum hans, einkum þegar honum bjó eitt- hvað mikið í hug, brá fyrir ólýsan- legum glampa eða bliki, sem ég hef ekki séð hjá nokkrum öðrum manni … Einar var ákaflega mælskur, orð- gnótt hans var óþrjótandi … Handa- hreyfingum sínum stillti hann mjög í hóf. … Einar var fyrirmann- legur í öllum háttum, fas hans og framkoma voru fáguð. Hann var jafnan mjög vel til fara. Við okk- ur stúdentagræningjana var hann ákaflega alúðlegur og vingjarnlegur. ... Á langri ævi hef ég engan mann séð höfðinglegri né fallegri en Ein- ar Benediktsson. Hann skar sig úr þúsundum og milljónum manna. … Fyndnin lék svo á vörum hans, að það eru ekki neinar ýkjur, þótt sagt sé, að vel fyndinn maður segi varla fleiri hnyttiyrði allt sitt líf en Einar sagði oft á einni dagstund, er hann var í essinu sínu. Þessi andans auðlegð féll yfir menn eins og hol- skefla, svo að þeir stóðu sem högg- dofa. ... Við þessa andlegu eigin- leika bættist svo hin mikilúðlega og fagra persóna hans og höfðinglegt fas. … Aldrei heyrði ég Einar minn- ast á móður sína, en oft talaði hann um föður sinn með takmarkalausri aðdáun (föðurdýrkun). Á Svölu dóttur sína mátti hann ekki óklökk- ur minnast.“ n Einar Benediktsson Þorvaldur Gylfason skrifar Kjallari Jóhann Hauksson johannh@dv.is Leiðari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.