Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Qupperneq 28
28 Umræða Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Indefence? It depends Umsjón: Henry Þór Baldursson Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni „Þetta er hverju orði sannara hjá Evu. Lögreglan fær falleinkunn fyrir alla þætti skýrslunnar: Persónunjósnir, nafnbirtingar, leyndarhyggju, klaufaskap við að afmá nöfn, þrjósku við upplýsingaskyldu og einbeittan brotavilja í þessu öllu saman,“ segir Jón M. Ívarsson og tekur undir með Evu Hauksdóttur, sem segir lögreglunni ekki treystandi fyrir því að fara með persónuupplýsingar. „Þórarinn telur þú að ef manneskja skammast sín ekki fyrir líkama sinn þá sé allt í lagi að birta nektarmyndir af henni á netinu án samráðs við hana?“ spyr Eva Hauksdóttir í fjör- ugum samræðum undir frétt DV þess efnis að lögreglan hafi birt kennitölur 75 einstaklinga af gáleysi. Netverjar eru ekki á eitt sáttir um það hvort lögreglan hafi brotið gegn rétti þessara 75 einstaklinga til friðhelgi einkalífs. Spurði Þórarinn Friðriksson hvort fólkið sem nefnt er á nafn í skýrslunni hefði eitthvað að fela. „Þetta kemur ekki á óvart … Allt breyttist, þegar Reynir kom til Strætó … Svo þora vagnstjórar ekki að koma nokkurs staðar fram undir nafni …“ segir Ingunn Guðnadóttir. DV greindi frá því á dögunum að óánægja ríkti með Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó bs., meðal vagnstjóra fyrirtækisins. „Ég keypti yfirleitt þetta kex á heimilið en hætti því þegar þessi nýja vél var tekin í notkun, ég sendi þeim kvörtun um þetta fyrir mörgum mánuðum að kexið nái varla að tolla saman vegna of lítis krems, en þeir hunsuðu kvörtuna sem var send inn með mynd, sennilega var samdráttur í sölu sem vakti þá til umhugsunar en ég veit um fullt af fólki sem hætti að kaupa þetta, vonandi hlusta þeir oftar og fyrr á neytendur.“ Þetta segir Jón Halldór Gretarsson, en kexverksmiðjan Frón hefur átt í vandræð- um með kremvél sem útdeilir kexi á kremkex. „Þessi dómur er Hæstarétti til skammar,“ segir Ragnhildur Pála, en DV greindi frá því á þriðjudag að íslensk kona þyrfti að afhenda börnin sín barnsföður hennar innan tveggja mánaða samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands. 20 19 14 6 5 Einkennisklæddir stjórnleysingjar M ér var nokkuð brugðið þegar ég byrjaði að lesa af handahófi Samantekt á skipulagi lögreglu við mótmælin 2008 til 2011. Ég gerði eins og flestir sem hafa komist í skýrsluna, leitaði að nafninu mínu, og það kom rosalega oft fyrir, eða 18 sinnum. Las það sem um mig var skrifað og fékk það staðfest að lögreglan fylgist með því sem ég geri á internetinu, hverju ég deili og hvað ég skrifa og dregur rangar ályktan- ir af því. Þessi skýrsla er því mið- ur brimfull af slúðri og getgátum, sem er alvarlegt mál, því langflest- ir landsmenn treysta lögreglunni til að vera heiðarleg. Ég komst að því svart á hvítu að lögreglan dregur fólk í dilka og fordæmir alla þá sem eru ekki „venjulegir“ eins og þeir skil- greina þá sem þeim þóknast. Þeir sem eru skilgreindir sem óþægileg- ir mótmælendur eru handteknir án annarrar skilgreindrar ástæðu en vegna útlits eða stjórnmálaskoðana. Það að vera skilgreindur sem anar- kisti í dag er sennilega svipað og að vera skilgreindur sem kommúnisti á sínum tíma. Bara það að vera skil- greindur sem virkur mótmælandi og eða anarkisti virðist réttlæta að lög- reglan tekur úr sambandi öll borg- araleg réttindi þeirra samkvæmt því sem kemur fram í slúðurriti Geirs Jóns, þá kemur líka fram að fólk get- ur hvenær sem er átt von á því að vera tekið úr umferð, og með ferð- um og athöfnum þeirra sem merkt- ir hafa verið af lögreglunni, fylgst án nokkurra heimilda eða rökstudds gruns. „Skýrslan“ fjallar um mótmæli 2008 til 2011 og Hells Angels- veislu! Þau okkar sem höfum fengið að upplifa lygar lögreglu í fjölmiðlum um persónunjósnir á tímum mót- mæla í tengslum við Kárahnjúka þekkjum það hvernig það er að búa í lögregluríki, og vera hundelt út af getgátum um hugsanlega stór- hættuleg brot eins og til dæmis að hengja upp mótmælaborða. Enn er gengið lengra samanber það sem kemur fram í þessu plaggi og grunn- stoðum réttarríkisins er verulega ógnað því lögreglan ákvað að það væri allt í lagi að setja inn í dómsal, óeinkennisklædda lögreglumenn í máli sem tengdist lögreglunni beint og meira að segja inni í Alþingis- húsi voru flugumenn lögreglunnar þann 8. desember 2010. Um hverja var verið að njósna þá? Þingmenn, kjörna fulltrúa og í hvers umboði? Yfirstjórn Alþingis hlýtur að þurfa að svara fyrir það. Geir Jón ákveð- ur síðan að spyrða saman alls kon- ar mótmæli gegn spillingu og svik- um við veislu hjá Hells Angels, með því að hafa í skýrslunni heilan kafla um hugsanlega fjölmenna veislu hjá þeim: „Atvikalýsing: Lögreglan bjó sig undir mjög fjölmenna veislu Fáfnismanna, enda væru þeir að tengjast Hells Angels og búist var við að um 100 manns myndu sækja fagnaðinn og þá um 40 HA meðlim- ir erlendis frá.“ Vegið að æru manna Í skýrslunni eru aðdróttanir um geðræn vandamál ungmenna, ung- lingur er hundeltur út af því að ein- hver strákur í Metallica-bol sást henda mandarínu í þinghúsið, eldvörpukaflinn og fiðurfé koma við sögu en það sem er langalvarlegast í þessu plaggi er að þarna er skrifað mjög frjálslega um sannleikann og hálfkveðnar vísur eru látnar standa sem kristallast einna helst í atvika- lýsingum á handtökum, þar er til dæmis fjallað um fjöldahandtöku og vísað í ákæru sem engum hefur verið birt og saklausu fólki sleppt án þess að haft sé fyrir því að hreinsa mannorð þeirra, því ljóst er að flestir mótmælendur fengu engar ákærur því brot þeirra voru engin. Lokaorð skýrsluhöfundar hefðu átt að nægja til að setja skýrsluna í tætarann í stað þess að láta hana standa sem eitthvert plagg sem vert væri að taka mark á: „Trúlega hefði mátti leggj- ast í mun meiri rannsóknarvinnu við gerð skýrslunnar. Fyrst og fremst var byggt á gögnum/skráningum úr lögreglukerfinu, þar sem dagbók var skrifuð fyrir hvern dag varðaði þau mótmæli sem hér eru til umfjöllun- ar frá árinu 2008 til loka árs 2011. Því miður reyndist í sumum tilvik- um lítið skráð um einstök tilvik, en það hjálpaði mikið til að skýrsluhöf- undur kom sjálfur að flestum mót- mælanna.“ Margir velta fyrir sér af hverju þessi skýrsla var gerð, mér finnst sennilegast að þarna sé verið að reyna að réttlæta enn frekari njósn- ir um almenna borgara sem styggt hafa valdhafa með því að sýna í verki að þeim sé misboðið hvern- ig landinu er stýrt. Að spyrða mót- mælendur, sem mjög oft eru kall- aðir anarkistar í skýrslunni, við glæpagengi er augljós tilraun til þess. Lögreglan reyndi mikið á síð- asta kjörtímabili að fá lagaheimild- ir til að stunda forvirkar rannsóknir, þ.e.a.s. forvirkar njósnir út af mögu- legum brotum, eins og til dæmis að skipuleggja mótmæli eða mæta á mótmæli. Að mér setur óhug að þetta sama fólk er að fá sjálfvirkar hríðskotabyssur í bílana sína og að ekkert innra eftirlit óháðra sé viðhaft í tengslum við verk lögreglu- manna. Ég hef og mun halda áfram að beita mér fyrir því að óháðu innra eftirliti verði komið á. Því án þess virðist innra anarkí ríkja hjá lögreglu Íslands. n „Um hverja var ver- ið að njósna þá? Þingmenn, kjörna fulltrúa og í hvers umboði? Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata Kjallari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.