Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 37
Neytendur 37Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Hollráð fyrir Heimilissaltið n Fjarlægðu ryð, kældu drykkinn, losaðu stíflur, láttu blettina hverfa og bættu kaffið Vínkælir og kaffisnilld n Snöggkældu drykkinn Til að snögg- kæla vín, bjór, gosdrykki eða hvers konar drykki þá er frábært ráð að koma flöskunni/ dósinni fyrir í fati eða stórri skál. Settu vatn, og hressilegt magn af ísmolum í skálina og vel af salti með. Hrærðu aðeins í og láttu sitja í 10–15 mínútur. Hlandvolgur drykkurinn verður ískaldur á örskotsstundu. n Fáðu meira úr kaffinu Ef þú ert opin/n fyrir því að poppa upp kaffið þitt þá má gera það með því að setja klípu af salti neðst í hólfið þar sem þú setur kaffipokann í kaffivélina þína. Það þykir mörgum bæta bragðið auk þess sem það getur dregið úr súr í kaffibragðinu ef þurfa þykir. Annað gott ráð er að bæta smá klípu af salti út í kaffi sem hefur staðið lengi á hellu kaffivélar- innar. Prófaðu smá salt til að fríska upp á bragðið áður en þú hellir og sóar hálfri könnu af kaffi. n Spartlaðu í veggina Til að spartla í lítil naglagöt og hárfínar sprungur í pússningu eða viðarveggklæðningu blandaðu saman og búðu til mauk úr tveimur matskeiðum af salti, tveimur matskeiðum af kornsterkju og um 4–5 teskeiðum af vatni þar til úr verður þykkt mauk. Spartlaðu í götin og láttu þorna, pússaðu yfir ef þarf og málaðu svo yfir. n Láttu illgresið hverfa Það er sífelld- ur höfuðverkur að berjast við illgresi sem gægist upp um allar rifur á stéttum, innkeyrslum og víðar. Prófaðu að sjóða um 200 grömm af salti í hálf- um lítra af vatni og helltu beint á illgresið til að drepa það. Önnur leið er að strá saltinu bara beint á illgresið og grasið sem leitar upp á milli hellusteina og víðar. n Losaðu stíflur Niðurföll í sturtum og baðkerum stíflast með tímanum. Ekki kaupa hættulega og dýra stíflueyða fyrr en þú hefur prófað að blanda saman 250 grömmum af salti, 35 grömmum af matarsóda og 100 millilítrum af ediki og hella í niðurfall- ið. Láttu það standa í 10 mínútur, helltu svo tveimur lítrum af sjóðandi vatni á eftir því og skrúfaðu loks frá kranunum og láttu renna um stund þar til flæðið er orðið óheft. Hreinsaðu loftið n Taktu táfýluna úr umferð Striga- og íþrótta- skór geta orðið daunillir. Þú getur dregið verulega úr táfýlu og raka með því að strá reglulega smávegis af salti í skóna. n Fiskilykt af fingrunum Ef þú hefur verið að meðhöndla fisk og kannt illa við slorlyktina af fingrunum þá er gott ráð að skera einn bát af sítrónu, dýfa sneiðinni í salt og nudda á hendurnar. Skolið svo burt með vatni. n Ferskleiki í andrúmsloftinu Skerðu appel- sínu í tvennt, fjarlægðu aldinkjötið og notaðu börkinn sem skál sem þú fyllir af salti. Þetta gefur þægi- lega og góða lykt í herbergið. n Hreinsaðu lykt úr skurðbrettinu Hvít- laukur og fleira getur skilið eftir sterka lykt í viðarskurðbrettum. Til að losna við lykt er gott ráð að hella ríflegu magni af salti beint á brettið og nudda það létt með rök- um klút. Skolið síðan með heitu sápuvatni. Vellíðan n Mýktu sáran háls Ef þú finnur fyrir vægum óþægindum í hálsi þá þykir gott ráð að skola hálsinn nokkrum sinnum á dag með vægri saltvatns- blöndu. Settu 1/4 teskeið af salti út í hálfan bolla af heitu vatni og láttu vatnið korra (e. gargle) aftarlega í hálsinum án þess þó að kyngja. Hvíldu þig á hálsbrjóst- sykrinum og reyndu þetta ráð sem læknar mæla með. n Mjúkir fætur Það er afslappandi og ljúft að fara í gott fótabað. Fylltu bala eða annað sambærilegt ílát með heitu vatni, blandaðu 50 grömmum af salti og 30 grömmum af matarsóda út í og laugaðu fæturna í korter eða svo. Sykursjúkir eða fólk með lélega blóðrás ætti að ráðfæra sig við lækni áður en þetta er prófað. n Mýkri húð í baði Þú þarft ekki að kaupa sérstök baðsölt með ágengum ilmefn- um til að njóta þín í baði. Settu einn bolla af salti út í baðvatnið og láttu fara vel um þig. Þú finnur að húð þín verður bersýni- lega mýkri. Ef þú vilt gera vel við þig getur þú splæst í sjávarsalt. Gæði fara aldrei úr tísku

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.