Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2014, Side 51
Menning 51Helgarblað 31. október–3. nóvember 2014 Eitt mest spennandi leikhús borgarinnar n Vinnslan sýnir leikhúsverkið Strengi í Tjarnarbíói n Leikhúsupplifun brotin upp L eikhúsverkið Strengir, sem var frumsýnt í Tjarnarbíói síðasta föstudag, er þakklát hvíld frá hefðbundnu formi atvinnuleik- húsanna. Í verkinu taka 24 listamenn úr ýmsum áttum höndum saman og búa til ansi fjölbreytt gjörningalista- verk sem samanstendur af mynd- bandslist, leiklist, höggmyndalist, danslist og tónlist. Verkið fjallar um sjálft sköpunarferli listarinnar. Verkið er sett upp í átta rýmum í Tjarnarbíói og er húsnæðið nokkuð vel nýtt. Þegar gengið er inn blasir myndbandsverk við manni á stóru tjaldi. Við sætin eru svo heyrnar- tól sem magna upp tónlist verksins. Myndbandið er nokkuð vel útfært og fallegt á margan hátt. Heyrnartólin gera það svo að verkum að maður upplifir myndbandið mun sterkar en ella. Vandinn er þó helst sá að verkið er ofurlítið stutt miðað við að gjörningurinnn stendur yfir í fjóra tíma. Það eru svo þrjú herbergi þar sem mesta fjörið á sér stað. Í einu herberginu var Hinrik Þór, þar sem hann nálgaðist hlutverk sitt með afar pósmódernískum hætti. Þannig reyndi hann að leika ekki og á sama tíma átti hann að átta sig á því hvað hann væri að vilja. Þetta heppnað- ist vel, og tónlistin undir var afar vel heppnuð, eins og raunar í öllum rýmunum. Líklega var mesta fjörið í rým- inu hjá þeim Völu Ómarsdóttur, sem jafnframt leikstýrir verkinu, og svo Guðmundi Inga Þorvaldssyni. Þau nýttu dansleikhúsið til þess að tjá einhvers konar ástarsögu sín á milli þar sem þau giftust og rifust og urðu aftur ástfangin. Þessi tvö atriði voru kannski það sem mætti segja pláss- frekust, en þarna var einnig að finna dansatriði, eldhússpjall leikkonu og tvær stúlkur sem nýttu sér endur- tekninguna í dansrútínu sem þær endurtóku víða um Tjarnarbíó. Verkið hefur mikla styrkleika, meðal annars það frelsi sem áhorf- andinn nýtur á sýningunni. Stund- um verður verkið þó dálítið til- gerðarlegt, jafnvel óreiðukennt. En ef tilgangur þess er skoðaður, að kanna sköpunarferlið, þá fellur það ágæt- lega inn í hugmyndina og sleppur þar af leiðandi fyrir horn. Eitt er þó mikilvægara en annað hvað verk- ið varðar, það er mikið afþreyingar- gildi fólgið í því. Þannig eyddi gagn- rýnandi nær öllu kvöldinu í að skoða rýmin aftur og aftur, og alltaf var þar eitthvað nýtt að finna. Niðurstað- an er sú að hér er að finna eitt mest spennandi leikhús borgarinnar þessa stundina. Völu tekst að sam- tvinna þessi listform með skemmti- legum hætti og úr verður nokkuð heildstæð sýning og frábær kvöld- stund fyrir þá sem vilja brjóta upp leikhúsupplifunina. n Strengir Leikstjórn og flutningur: Vala Ómars- dóttir, Framkvæmdastjórn og fram- leiðsla: Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, Flutningur: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Tónlistarstjórn: Biggi Hilmars, Myndlistarstjórn: María Kjartans, Flutningur og ljósahönnun: Arnar Ingv- arsson, Barstjórn: Starri Hauksson. Valur Grettisson ritstjorn@dv.is Leikhús „Eitt mest spennandi leikhús borgarinnar þessa stundina Menningar- verðlaun Norð- urlandaráðs Þessir hlutu verðlaunin Benedikt Erlingsson var ekki sá eini sem kom heim með verð- laun frá verðlaunaathöfn Norð- urlandaráðs í Stokkhólmi á mið- vikudagskvöld. Finni, Norðmenn og Dani tryggðu sér hin menn- ingarverðlaunin. Bókmenntir Bókmennta- verðlaun Norð- urlandaráðs hlaut finnski rithöfundurinn Kjell Westö fyr- ir skáldsöguna Hägring 38. Dómnefnd sagði prósa Westös „blása lífi í mikil- vægt augnablik í sögu Finnlands – augnablik sem hefur tengingar við daginn í dag“. Westö er einn þekktasti rithöfundur Skandinav- íu en engin bóka hans hefur verið þýdd á íslensku. Auður Jónsdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl voru til- nefnd fyrir hönd Íslands. Barna- bókmenntir Það voru rit- höfundur- inn Haakon Øvreås og teiknarinn Øyvind Tor- seter frá Nor- egi sem hlutu barna- og unglingabókaverð- laun Norðurlandaráðs fyrir bók- ina Brune. Bókin er sögð fylla í skarðið milli bóka fyrir ung börn og bóka fyrir unglinga. Bókin, sem er fyrsta barnabók Øvreås, byggir meðal annars á þjóð- sagnaarfi Noregs. Andri Snær Magnason og Lani Yamamoto voru tilnefnd fyrir Íslands hönd. Tónlist Danski tón- smiðurinn og innsetn- ingalista- maður- inn Simon Steen-And- ersen hlaut tónlistar- verðlaunin fyrir verk sitt Black Box Music. Því er lýst sem einstöku og rót- tækt öðruvísi verki. Steen-And- ersen er sagður leika sér á mörk- um tónsmíða, innsetninga, raf- og gjörningalistar. Solar5: Journey to the Center of Sound eftir Huga Guðmundsson, Hilm- ar Jensson, Sverri Guðjónsson, Matthias Hemstock og Joshue Ott og Undir tekur yfir eftir Hildi Guðnadóttur voru tilnefnd fyrir Íslands hönd. Í rÍki fegurðarinnar n Ófeigur Sigurðsson ræðir um nýjustu skáldsögu sína, Öræfi n nostalgísk bók um þrá mannsins eftir því að snerta hið ósnortna opið svið og heillandi. Það er hægt að skrifa stuttar frásagnir, langar lýs- ingar, manngerðir og svo eru rosa- lega þurrar héraðslýsingar – sem ég hef alveg sérstaklega gaman að – þar sem maður er bara leiddur skref fyr- ir skref í gegnum landslag og það er verið að lýsa því fyrir einhverjum sem mun aldrei fara þangað. Það speglast eitthvað afar sérstakt í skrifum al- þýðumanna, sem hafa lesið lítið af bókum, hafa kannski bara átt 5 eða 20 bækur. Þeir eru svo hreinir í stíl, meira að segja þó að stíllinn sé ná- kvæmlega sá sami og einhvers for- vera þá er hann samt hreinn.“ Spennusögur og fótórealismi Ef við snúum okkur aftur að örnefn- unum, þessum merkimiðum sem við hengjum á hlutina til að gefa þeim merkingu en hamla kannski á sama tíma möguleikanum á einhverri milliliðalausri nálgun. Finnst þér bókmenntirnar færari um að skoða þetta bil orða og hluta en aðrar gerðir hugsunar? „Við erum á svolítið merki- legum bókmenntalegum tímapunkti myndi ég halda. Þar sem fótórealismi og leynilögreglusagan eru að renna saman í eitt. Evrópsku bókmenntirn- ar eru búnar að opna fyrir reyfara- ölduna. Þær hafa náttúrlega verið ráf- andi á villigötum svona undanfarin 30 ár. Ég held að þetta sé bara mjög af hinu góða því spennusögurnar eru svo rosalega góðar í nákvæmu lýsingunum. Þetta er eitthvað sem á svo góða samleið með fótórealisma sem maður hefur verið að sjá í stór- um skáldsögum undanfarinna ára. Bókmenntir geta eytt 200 blaðsíðum í að lýsa einhverju mjög nákvæmlega en samt haldið lesandanum. Þær geta sýnt honum hlutveruleikann miklu betur en hann á möguleika á að upp- lifa sjálfur. Þær geta sýnt manni eitt- hvað sem maður veitir í raun ekki athygli nema það sé sett niður fyrir mann. Þær geta því lýst hlutveruleikanum bet- ur en hinir sjónrænu miðlar, eins og sjón- varpið og bíómyndir. Sama hversu nákvæmir þeir verða þá eiga þeir bara ekki sjens í orðin. Það er hægt að sýna manni eitthvað sem maður hefur aldrei gef- ið gaum. Það getur ver- ið nákvæm lýsing á ein- um hlut, en hann getur minnt á svo ótrúlega margt og þannig leitt lesandann út um allan heim, eitthvað sem er sennilega vonlaust að gera í bíó- mynd.“ Atvinnuleysi og sjálfsefi Það er ekki víst að allir myndu tengja orðið fótórealismi – ljósmyndalegt raunsæi – við það sem er í gangi í bókum Ófeigs, en þrátt fyrir það sem mætti jafnvel kalla ærlsafullan ýkju- stíl er einhver sterk jarðtenging. Síð- asta bók var til dæmis byggð á vinnu- reynslu hans sjálfs í kjötvinnslu, þar voru nákvæmar lýsingar á vinnuað- ferðunum og fyrirkomulaginu. „Ég held að maður verði, upp að vissu marki, að hafa þekkingu á vinnu- markaðnum, það er svo stór hluti af daglegu lífi. Oftast í skáldsögum þá er vinnusamfélagið frekar ósýnilegt. Í byrjun er einhver nýbúinn að fá arf, þá þarf ekki að hafa áhyggjur af pening- um, því þeir eru ákveðið vandamál í skáldsögum. En þetta er ákveðin tog- streita, það er mjög gott að hafa unnið á hinum almenna vinnumarkaði, en þegar maður er að vinna á almennum vinnumarkaði langar mann að vera heima að skrifa, því það er náttúrlega ekki álitin vinna. En það er ekki bara vinnumarkað- urinn, maður verður að hafa þekkingu á heiminum fyrir utan skrifstofuna, það geta verið netheimar líka og bara lífið úti.“ Það er hins vegar erfiðara en að segja það að skrifa meðfram fullri vinnu og þurfa ungir rithöfundar að leggja ýmislegt á sig til að finna tíma fyrir skrif. Bókina um Jón skrifaði Ófeigur meðal annars á atvinnuleysisbótum. „Það er samt ekki hægt að einbeita sér ef maður upplifir sig sem blóð- sugu, þannig að ég lofaði að skila þessu einhvern veginn út í samfé- lagið aftur. Ég hugsa samt að ég hafi verið að sækja um vinnur á þessum tíma því ég hef alltaf verið fullur efa- semda: er þetta möguleiki, get ég verið rithöfundur? Maður veit ekki hvort það sem maður er að skrifa verði bók. Kannski verður maður í stöðugum sjálfsefa ævilangt.“ n Sjálfsefi Kannski verður maður í stöðugum sjálfsefa ævilangt, segir Ófeigur. „Það er samt ekki hægt að einbeita sér ef maður upp- lifir sig sem blóðsugu Hross í oss fékk verðlaun Norðurlandaráðs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.