Fréttablaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.05.2016, Blaðsíða 2
Veður Allhvöss suðvestanátt um landið norðvestanvert í dag, en annars hægari vindur. Áfram bjartviðri um meginhluta landsins, en vestan til verður skýjað og dálítil súld á stöku stað. Milt í veðri. sjá síðu 20 Álfasala hefst í dag Álfurinn fyrir unga fólkið Árleg álfasala SÁÁ hefst í dag og stendur til sunnudags. Hún er nú haldin í 27. skipti en sala álfanna er stærsta fjáröflunar- verkefni SÁÁ ár hvert. Allur ágóði af sölunni rennur til þjónustu SÁÁ við ungt fólk, svo sem meðferð og sálfræðiaðstoð barna. Fréttablaðið/SteFán félagsmál Framkvæmdastjóri fjöl- skyldusviðs Mosfellsbæjar segir frum- varp til laga, sem ætlað er að tryggja eldri borgurum áframhaldandi sambúð þótt annar makinn þurfi að dvelja á stofnun, vekja upp ótal spurningar. Um er að ræða frumvarp frá þrem- ur þingmönnum Vinstri grænna sem vilja festa í lög að sá sem dvelur til langframa á stofnun fyrir aldraða eigi kost á því vera samvistum við maka sinn þar. „Sá réttur er ekki tryggður nú og því geta öldruð hjón eða sambýlis- fólk þurft að slíta samvistum gegn vilja sínum þegar svo er komið fyrir öðru þeirra að langtímadvöl á stofnun fyrir aldraða er nauðsynleg. Aðskilnaðurinn getur reynst þeim og aðstandendum þungbær og því mikið hagsmunamál aldraðra að tryggja rétt sinn til áfram haldandi sambúðar,“ segir í greinargerð með frumvarpinu. Unnur V. Ingólfsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjölskyldusviðs Mos- fellsbæjar, segir í umsögn, sem bæjar- ráðið þar samþykkti, að frumvarpið feli í sér mikilvægt mannréttinda- sjónarmið. „En leiðin sem lögð er til með búsetu þess maka/sambúðaraðila sem hressari er á hjúkrunarheimili vekur óhjákvæmilega ótal spurn- ingar um hversu heppilegt slíkt form er,“ segir Unnur sem einnig kveður aðlögunartímann fram til 1. janúar 2018 vera of stuttan vegna fjölmargra hindrana sem ryðja þurfi úr vegi. Unnur segir viðvarandi skort á hjúkrunarrýmum og rekstrarvanda hjúkrunarheimila ekki gefa tilefni til breytinganna sem lagðar eru til nema unnið sé á þeim vanda. „Fyrirkomulag búsetu maka á hjúkrunarheimili þarf einnig að vera með þeim hætti að tryggt sé að það íþyngi ekki þeim sem ekki er í þörf fyrir þjónustu hjúkrunarheimilisins. Tryggt þarf einnig að vera að hann hafi í einhver hús að venda falli veik- ari makinn frá en sé ekki tilneyddur til að búa áfram á hjúkrunarheimili,“ segir í umsögn Unnar og þar með Mosfellsbæjar. Þá bendir Unnur á að koma þurfi í veg fyrir að sá makinn sem betur er á sig kominn njóti þjónustu umfram sínar þarfir því það geti skert færni viðkomandi, stuðlað að félagslegri einangrun og staðið í vegi fyrir því að þeir sem séu í þörf fyrir þjónustu njóti hennar. Fleiri karlar en konur flytji inn á hjúkrunarheimili fyrir 80 ára aldur. „Það eru því meiri líkur á því að konur séu í hópi þeirra einstaklinga sem velja að flytja með maka sínum á hjúkrunarheimili ef frumvarpið yrði að lögum,“ segir Unnur. Af reynslu af tilraunaverkefni á Hrafnistu í Kópa- vogi hafi stjórnendur ekki talið fyrir- komulagið heppilegt. „Ástæða var talin til að hafa áhyggj- ur af maka sem flytti inn á heimilið án þess að vera í þörf fyrir svo viðamikla umönnun sem þar er í boði. Beind- ust þær að því að makinn fengi ekki næga hvíld og að aðstæður drægju úr færni hans og stuðlaði að félagslegri einangrun,“ segir í umsögninni. gar@frettabladid.is Sér tormerki á sambúð á hjúkrunarheimilum Frumvarp sem tryggja á fólki á hjúkrunarheimilum samvistir við maka vekur ótal spurningar segir í umsögn frá Mosfellsbæ. Áhyggjuefni sé að makinn sem betur er á sig kominn gæti orðið fyrir of miklu álagi og einangrast félagslega. Tollalækkun Salomon skór á enn betra verði en áður! lÍs en ku ALPARNIR s SWALLOW 250 Kuldaþol: -8 þyngd: 1,7 kg. 11.995 kr. 9.596 kr. MONTANA, 3000mm vatnsheld 2. manna 16.995 kr. 12.796 kr. 3. manna 19.995 kr. 15.996 kr. 4. manna 26.995 kr. 21.596 kr. 30% SNJÓBRETTAPAKKAR Góðar fermingargjafir FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727 alparnir.is Salomon Speedcross 3 herraskór Stærðir 42-48 Verð áður 29.995 kr. nú 24.995 kr. Um 42 prósent karla og 28 prósent kvenna flytja inn á hjúkrunarheimili fyrir 80 ára aldur að sögn Unnar V. ingólfsdóttur. Myndin er af Hrafnistu. Fréttblaðið/pjétUr Tryggt þarf einnig að vera að hann hafi í einhver hús að venda falli veikari makinn frá en sé ekki tilneyddur til að búa áfram á hjúkrunarheimili. Unnur V. Ingólfsdóttir, framkvæmda- stjóri fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar ferðaþjónusta Forsvarsmenn Airbnb leita leiða til að gera gest- um og hýsendum kleift að stunda afþreyingu saman. Hýsendur geti veitt gestum leiðsögn um staði og iðkað íþróttir til dæmis. Áshildur Bragadóttir, forstöðu- maður Höfuðborgarstofu, segist ekki óttast áhrif þessa á ferðaþjón- ustuna. Hún bendir á að áttatíu pró- sent af ferðamönnum komi hingað á eigin vegum og það sé jákvætt að ferðamenn fái leiðsögn Íslendinga sem veiti þeim húsaskjól. „ Fe r ð aþ j ó n u st u a ð i l a r h é r - lendis skila auðvitað öllum sínum sköttum og skyldum til samfélags- ins, maður hefur helst áhyggjur af því að skattar Airbnb, sem er hýst erlendis, muni renna til einhvers annars,“ segir Áshildur. – sg Airbnb bjóði upp á afþreyingu fjölmiðlun Hluti Panama-skjalanna er nú aðgengilegur almenningi á vef miðilsins Reykjavík Media rme.is. Um er að ræða gagnagrunn sem virkar eins og hver önnur leitarvél, að sögn Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns. „Fólk getur slegið inn nöfn einstaklinga, félaga eða banka. Ef þetta tiltekna nafn er í þeim hluta gagna sem er verið að birta núna þá er hægt að skoða tengslin sem þar eru. Þetta er efsta lagið af þessum aflands- gögnum.“ Skjölin sjálf verða ekki birt og þá liggja sjaldan fyrir upplýsingar um prókúruhafa félaga. Aðalsteinn hefur trú á því að gögn- in verði uppspretta frétta á næstu dögum og vikum. Reykjavík Media óskaði nýlega eftir aðstoð almennings og ábendingum um aflandsfélög í eigu íslenskra útgerðarmanna. „Við erum almennt að fá mjög mikið af ábendingum. Það er fullt af fólki með gögn sem skipta máli og við erum búnir að sýna fólki að okkur er treystandi og að við vinnum faglega. Við erum óhræddir við að missa af einhverjum skúbbum. Það er auðvitað gaman að skúbba en þetta er miklu stærra mál en það.“ – snæ Panama-skjölin opin almenningi jóhannes Kr. Kristjánsson og aðal- steinn Kjartansson, eigendur reykjavík media. Fréttablaðið/ernir Við erum almennt að fá mjög mikið af ábendingum. Það er fullt af fólki með gögn sem skipta máli. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður. 1 0 . m a í 2 0 1 6 þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 1 0 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 0 -3 2 8 8 1 9 6 0 -3 1 4 C 1 9 6 0 -3 0 1 0 1 9 6 0 -2 E D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.