Iðjuþjálfinn - 01.12.2000, Qupperneq 17

Iðjuþjálfinn - 01.12.2000, Qupperneq 17
ákveða sjálfir hvað þeir ætla að taka sér fyrir hendur og með hverjum. Markmið klúbbsins sem heildar er að bæta mögu- leika félaganna til að taka virkan þátt í samfélaginu eftir að hafa misst þráðinn vegna geðsjúkdóma. Þetta er gert með félagslegri samveru og virku starfi. Skrefið út í samfélagið er mörgum erfitt þegar fólk hefur verið lengi í vernduðu umhverfi geðdeilda og lítið þurft að takast á við ábyrgð, skipulagningu og ákvarðanatöku. Með þátttöku í Geysi gefst fólki tækifæri til að nýta hæfileika sína, segir Anna Rekstrarform Samkvæmt hugmyndafræði Fountain House eru félagamir ekki teknir sem sjúklingar heldur félagar og allir hera sameiginlega ábyrgð á daglegum rekstri. - Geysir er sjálfseignarstofnun með 12 manna stjórn sem hefur það hlut- verk að fjármagna reksturinn og sjá um samskipti við stjórnvöld. Stjórnin ræður framkvæmdastjóra til að annast daglegan rekstur en það er starfið sem ég sinni. Annar starfsmaður er hér til viðbótar. Þeir sem skipa stjórnina eru í stjórnunar- stöðum og koma nánast öllum geirum þjóðfélagsins. Þeir þurfa ekki að hafa nein bein tengsl við geðheilbrigðiskerfið, en fyrst og fremst áhuga á málefninu. Stjórn Geysis beitir sér einnig fyrir því að útvega störf fyrir félaga klúbbsins. Verndari klúbbsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands, segir Anna. Félagsaðild í Geysi kemur fólk sem á eða hefur átt við geðræn vandamál að stríða. Það gengur í klúbbinn af fiisum og frjálsum vilja og félagsaðild er ekki háð neinum tímatakmörkunum. Félagar ráða pví hvernig þeir nýta sér starfsemina. - Hingað koma allt að 90 manns á mánuði. Skráðir félagar eru rúmlega 50 talsins og af þeim eru um það bil 15 virkir svona dags daglega. Það að vera skráður félagi þýðir að viðkomandi hafi kynnt sér vel út á hvað starfsemi klúbbs- ins gengur. Allir hafa jafnan aðgang og allt rými er sameiginlegt, engir pappírar eru í læstum hirslum. Félagar eru ekki á launum heldur nýta þeir vinnuna til að ná markmiðum sínum. Hér er rekin vinnumiðlun sem við köllum „Ráðning til reynslu". Daglegt skipulag er í nokkuð föstum skorðum. Tvisvar á dag höldum við fundi þar sem fólk ræðir málin, skiptir sér niður á vinnusvæði og skipuleggur þau verk sem liggja fyrir. í eldhúsinu er t.d. útbúinn matur á degi hverjum og einhverjir þurfa að sinna því. Við seljum mat á kostnaðarverði og hér eru frábærir kokkar. Stundum getum við líka tekið upp á því að bjóða sérstökum gestum t.d. einhverjum úr stjórninni, atvinnurekend- um, aðstandendum eða bara nágrönnum okkar á efri hæðinni í mat. Hér eru líka ákveðnar reglur er lúta að umgengni sem allir verða að virða, segir Anna. Á sjúkrahúsinu var ekkert við að vera sem höfðaði til mín, boðið var upp á postulíns- málun og þess háttar og ég hafði sko engan áhuga á slíku. Ráðning til reynslu Félagar og starfsmenn vinna að því að ná tengslum við vinnuveitendur. Reynt er að fara eftir óskum félaga þegar leitað er eftir starfi. Ef vel tekst til er gerður ráðningar- samningur upp á hálft starf til sex-níu mánaða. Klúbburinn gerir samning við vinnuveitendur og það er á ábyrgð hans að þjálfa viðkomandi félaga til starfsins. - Félagar hafa valið fjölbreytt störf svo sem störf á lager, skrifstofustörf, áfylling- ar í búðum eða flokkunarstörf af ýmsu tagi. Starfsmaður hefur umsjón með starfsþjálfun viðkomandi félaga og klúbburinn tekur ábyrgð á að því sé sinnt þótt félaginn veikist eða er fjarverandi tímabundið. Þannig skuldbindum við okkur til þess að sinna starfinu og er þá einhver annar sendur á staðinn. Nú þegar hafa sex félagar haldið af stað út í atvinnulífið og fjórir hafa lagt út í nám. Við höfum boðið þeim vinnuveitend- um sem við erum að semja við í mat og kynnt þeim starfsemi Geysis og það hefur gefist einstaklega vel. Við verðum ekki beint vör við fordóma heldur er það meira óöryggi og vinnuveitendur vita ekki hvaða væntingar þeir geta gert til félaga okkar. Þeir félagar sem eru á almennum vinnumarkaði geta komið hingað í klúbbinn og sótt sér stuðning. Það sama á við um þá sem stunda nám í skólum, t.d. ef félagar standa frammi fyrir því að þurfa að leysa erfið skóla- verkefni. Stundum kemur það líka fyrir að félagar þurfa að sinna einhverju heima sem þeim finnst þeir ráða illa við. Til að mynda þegar fólk er að flytja og þarf að koma sér fyrir þá hjálpum við til. í framtíðinni stefnum við að því að bjóða upp á meiri aðstoð á heimilum félaga. Heimilishald er jú stór hluti af lífi fólks en erfitt fyrir marga sérstaklega þá sem búa einir, segir Anna. Að rækta geðið Aiþjóðlegur geðheilbrigðisdagur er 10. október á ári hverju og félagar Geysis létu ekki sitt eftir liggja og tóku virkan þátt í því sem um var að vera í ár. - Við vorum með opið hús hérna í Geysi á alþjóðlega geðheilbrigðisdegin- um og þó nokkuð kom af gestum, reit- ingur allan daginn og mjög notalegt. Einn félagi okkar hélt ræðu á hátíð sem haldin var í Ráðhúsinu í tilefni dagsins. Hann kynnti hugmyndafræði klúbbsins og hvernig hún gæti nýst fyrir „heil- brigða" til dæmis fyrir starfsfólk á vinnu- stöðum. Þetta var alveg frábær ræða og við erum mjög stolt af félaga okkar. Það eru margir aðstandendur félaganna sem taka þátt félagsstarfi og ýmsum við- burðum. Þetta er af hinu góða því þannig tengjast þeir okkur og hægt er að mæta ákveðnum þörfum sem ekki er sinnt svo víða annars staðar. Það vill oft gleymast hvernig er að vera aðstandandi einstakl- ings sem á við geðsjúkdóm að stríða, en það getur verið mjög erfitt hlutverk. Það er ekki skipulagt starf í gangi fyrir aðstandendur en þeir koma og borða með okkur. Einnig eru reglulegar fjall- göngur sem þeim er boðið að taka þátt í. Mér finnst líka gott hvernig umræðan um geðræn vandamál hefur aukist á allra síðustu árum. Hugtakið geðrækt finnst mér alveg frábært, það ýtir undir jákvætt viðhorf gagnvart geðrænum vandamál- um, enda er ekki síður mikilvægt að rækta geðið en líkamann. Það sem okkar félagar tala líka mikið um, er hversu gott er að taka þátt í svona starfsemi þar sem ekki er litið á fólk sem sjúklinga heldur félaga. Það eru svo margir fastir í sjúkl- ingahlutverkinu. Þegar þú hjálpar þér sjálfum þá hjálparðu líka öðrum við að komast út úr hlutverkinu sem getur verið ansi erfitt og oft kann fólk ekki annað, segir Anna. Algengustu vandamál fólks sem kem- ur í klúbbinn okkar eru að það hefur ein- angrast félagslega í kjölfar veikinda, dott- IÐJUÞJÁLFINN 2/2000 7 7

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.