Hagskýrslur - Hagtöluárbækur - 01.01.1967, Blaðsíða 388
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur Islands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tckur til meðferðar (Verzlun-
arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o.fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem liófst 1951, hafa komið
út 40 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit
send þeim í pósti.
2. Hagskýrslur fslands, aukaflokk. í honum eru sams konar rit og í aðalflokki Hag-
skýrslna, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð.
3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun,
fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að hirta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár-
legt áskriftargjald Hagtíðinda er 75 kr.
4. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru hirtar
ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlahanka íslands.
— Erlendir áskrifendur þcssa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift-
argjald þess 45 kr.
5. fhúaskrá Reykjavíkur kemur út á liverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem liún
hefur að gcyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1966 var
1312 bls., og verð 1650 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Arnarlivoli (inngangur frá Lindar-
götu), Reykjavík. Simi 24460.