Morgunblaðið - 01.08.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.08.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ljón norðursins var LeóÁrnason, frændi minn fráVíkum á Skaga, fæddurárið 1912. Hann tók sjálf- ur upp þetta viðurnefni, enda var hann mjög sérstakur maður, bóhem og snillingur. Hann var húsasmíða- meistari, skáld og málari. Hann bjó í Reykjavík um tíma og setti svip sinn á mannlífið þar, meðal annars kom hann oft á Hótel Borg og var ávallt flottur í tauinu. Við erum sagðir slá- andi líkir, báðir með mikinn gráan ljónsmakka. Útlendingar sem koma hingað til mín spyrja oft þegar þeir sjá myndina af honum hér upp á vegg, hvort þetta sé ég. Aðrir halda að þetta sé Albert Einstein,“ segir Jónas Skaftason sem á og rekur kaffihúsið Ljón norðursins sem stendur á bökkum Blöndu við Blönduós. „Þegar ég ákvað fyrir sex árum að starta þessu litla kaffihúsi, þá tók það mig ekki nema tíu mínútur að finna nafnið á það, Ljón norðursins, til heiðurs þessum merka frænda mínum.“ Jónas er einnig með gistingu fyrir ferðafólk í smáhýsum utan við kaffihúsið sem og tjaldsvæði, og kall- ar það Blönduból. „Ég er fæddur á Skaga eins og frændi minn Ljón norðursins. Ég fæddist á bænum Fjalli og kenni mig við bæinn þó ég hafi verið smá- barn þegar við fluttum til Skaga- strandar. En ég fluttist hingað á Blönduós árið 1982 og ég var fyrst með gistiheimili í gamla póst- og símahúsinu.“ „Ég þyki sláandi lík- ur Ljóni norðursins“ Hann hefur lifað ævintýralegu lífi, er fjórgiftur og á sjö börn. Jónas Skaftason varð einstæður faðir með þrjú börn þegar hann var ungur maður og hann var með tíu ráðskonur yfir langt tímabil sem sáu um að ala upp börnin hans með honum. Hann á og rekur kaffihúsið Ljón norðursins á Blönduósi og þar setja gestir gjarn- an lófaför sín á veggina. Þeir fá stundum að nota eldhúsið í trukknum Fanndal. Vertinn Jónas Skaftason utan við notalega kaffihúsið Ljón norðursins. Kósí Gestir hafa málað hús, skepnur og landslag á veggi kaffihússins. Fyrirsæta Bella stendur vaktina utan við litla kaffihúsið, alvön að sitja fyrir. Lófar Fólk frá öllum heimshornum hefur stimplað lófa sína á veggina. Blessunin hún Barbí er ekki af baki dottin, hún lifir góðu lífi um víða veröld, ýmist sem leikfang barna eða sem safngripur hjá söfnurum. Síðastliðinn fimmtudag héldu Barbídúkkusafnarar mikla ráðstefnu í Virginia í Bandaríkj- unum og var mikið um dýrðir, eins og búast mátti við. Meira en þúsund manns mættu á galakvöldið þar sem voru ýmsar sýningar, heiðursgestir, hverskonar keppnir, tískusýningar og sölubásar þar sem allt sem viðkemur Barbí var til sölu, jafnvel stakir Barbíhausar. Fjölbreytnin var mikil og fólk kátt, enda ekki annað hægt en að gleðj- ast yfir krúttlega fyrirbærinu Barbídúkkusöfnun. Allskonar dásamlegar Barbídúkkur og líka lifandi dansandi brúður Barbídúkkusafnarar komu saman með gullin sín á litríkri ráðstefnu AFP Fyrri tíð Paul Bruce með einstakt Barbísafn sitt. AFP Fjörugar Þessar lifandi Barbídúkkur dönsuðu og sungu. Tíska Sara Pitchford lagar dúkkur úr nýjustu vorlínunni. Morgunblaðið gefur út sérblað um Skóla & námskeið föstudaginn 14. ágúst Fjallað verður um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám í haust. PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 10. ágúst NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.