Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 44
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 213. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Þekkir þú konurnar?
2. Þriggja ára barns leitað í …
3. Brakið er úr Boeing 777
4. Sökuðu Mylluna um blekkingar
Myndlistarkonan Rósa Gísladóttir
er á bak við sýninguna Borg Guðs
sem stendur nú í Hallgrímskirkju en
hún fjallar um kristni og djúpstæð
menningaráhrif hennar á okkur. Á
sýningunni eru fimm verk. Þar á með-
al eru tvö sem hengd eru upp á stóra
tréhringi sem hanga niður úr loftinu í
forkirkju Hallgrímskirkju. Sýning-
arlok eru 9. ágúst.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýningin Borg Guðs
í Hallgrímskirkju
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning norðvestantil og við norðausturströndina. Skýjað með
köflum í öðrum landshlutum og stöku skúrir SA-lands. Hiti 5 til 13 stig.
Á sunnudag Austlæg átt 3-8 m/s og bjart með köflum, en þokuloft við austurströndina
og smáskúrir SV-lands í fyrstu. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig.
Á mánudag (frídagur verslunarmanna) Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við suðaustur-
ströndina. Víða bjart veður S- og V-lands, en skýjað á N- og A-landi. Hiti 9 til 18 stig.
KR og Valur mætast í úrslitaleik
Borgunarbikarsins hinn 15. ágúst.
KR-ingar hafa fjórtán sinnum sigrað í
keppninni, oftast allra. Valsmenn
koma næstir ásamt Skagamönnum
með níu sigra. Þrátt fyrir alla þessa
velgengni þá hafa liðin einungis tví-
vegis mæst í bikarúrslitaleik karla.
Annars vegar árið 1966 og hins vegar
árið 1990. »4
Fáir úrslitaleikir á milli
sigursælu liðanna
Óvíst er hvort Svíinn Tim
Brithen geti haldið áfram
sem landsliðsþjálfari Ís-
lands í íshokkí karla. Brith-
en hefur ráðið sig til starfa
hjá HV71 sem aðstoðarþjálf-
ari en liðið leikur í efstu
deild í Svíþjóð. Brithen tjáði
Morgunblaðinu að hann eigi
eftir að komast að sam-
komulagi við ÍHÍ um fram-
haldið varðandi íslenska
landsliðið. »1
Til starfa hjá einu
stærsta félaginu
Fimm Íslendingar verða í eldlínunni á
HM í sundi í Rússlandi. Keppni hjá
þeim hefst á sunnudag en þrír af
fimm keppendum náðu inn á mótið
með A-lágmarki, þau Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir, Hrafnhildur
Lúthersdóttir og Ant-
on S. McKee. Jacky
Pellerin landsliðs-
þjálfari er bjartsýnn
og býst við góðri
frammi-
stöðu. »3
Íslendingar í eldlínunni
í Kazan í Rússlandi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að vera undir sama þaki og ka-
þólska kirkjan skapar hótelinu
skemmtilega sérstöðu og sterk
tengsl við söguna. Þá erum við líka
á góðum stað hér á höfðanum niðri
við flæðarmál. Þar sést vítt yfir
Breiðafjörð og Stykkishólm, sem nú
er orðinn mjög fjölsóttur ferða-
mannastaður. Það hefur átt sinn
þátt í því að bæjarbragurinn hér
hefur breyst mikið á undanförnum
árum. Hér hafa verið opnaðir veit-
ingastaðir, listastofur og fleira
skemmtilegt sem gefur bænum lit,“
segir Unnur Steinsson.
Kaþólsk saga
Það var nú í júní sem Unnur var
ráðin framkvæmdastjóri Frans-
iskus-hótelsins í Stykkishólmi Það
er í byggingunni þar sem lengi var
leikskóli og íbúðir klausturs Frans-
iskussystra. Nokkur ár eru síðan
þær yfirgáfu Stykkishólm, en þá
eftirlétu þær kaþólsku kirkjunni
húsið. Það er sambyggt sjúkrahús-
inu í Hólminum sem raunar er
kennt við reglu systranna, sem svo
lengi sinntu þar hjúkrun og fleiri
velferðarmálum í byggðarlaginu. Í
dag sitja tvær og bráðum þrjár ka-
þólskar nunnur í Hólminum og tveir
prestar sem sinna helgihaldi og
safnaðarþjónustu, svo sem sunnu-
dagaskóla og unglingastarfi.
Kirkjubyggingarnar sem eru
komnar nokkuð til ára sinna þurftu
margs við þegar endurbætur og
breytingar á þeim hófust fyrir
nokkrum misserum.
Upplifun sé góð
„Þetta var nánast gert fokelt og
svo fært að kröfum dagsins í dag,“
segir Unnur um hótelið nýja. Þar
verða alls 22 herbergi og af þeim
eru 13 komin í gagnið, auk rúm-
góðra og salarkynna.
„Við erum bæði með eins og
tveggja manna herbergi og svo
nokkur fjölskylduherbergi, en slík
tíðkast að jafnaði ekki á hótelum.
Fleiri af þeirri gerðinni verða í þeim
áfanga hótelsins sem við stefnum að
að taka í notkun á næsta ári. Þar
verður meðal annars lítið eldhús
sem gestum býðst að nota, til dæm-
is barnafólk og þeim sem eru ein-
hverra ástæðna vegna á sérfæði,“
segir Unnur sem tók á móti fyrstu
gestunum um miðjan júlí. Aðsóknin
hefur verið jöfn og stöðug og eft-
irspurnin eftir gistirými mikil sem
Unnur segir hafa ráðið miklu um að
hótelið var opnað nokkru fyrr en
áformað var.
Fransiskus ehf. stendur að
rekstri hótelsins og forsvarsmenn
þess réðu Unni nú í júní til þess að
stýra hótelinu. Hún er vel þekkt frá
fyrri árum sem fegurðardrottning,
fyrirsæta og sjónvarpskona en hef-
ur sl. tíu ár unnið við innkaup og
markaðsmál hjá Lyfju. Er þó ekki
ókunn ferðaþjónustunni, því hún
var flugfreyja til fjölda ára og sum-
arið 2005 rak hún upplýsinga-
miðstöð ferðamanna í Stykkishólmi.
Ferðaþjónusta segir hún að sé
áhugaverð atvinnugrein og um-
svifin aukist stöðugt. Í þessari grein
þurfi að vanda til verka og allt snú-
ist þetta um samskipti við fólk og að
tryggja að upplifun útlendinga af
landi og þjóð sé góð.
Okkar hálfa líf
„Við höfum verið viðloðin Stykk-
ishólm lengi. Fjölskyldan eignaðist
hér lítið hús árið 2002 og hér höfum
við átt okkar hálfa líf, meðal annars
í tengslum við hestamennskuna. En
nú þegar ég hef tekið við þessu
starfi er sennilega kominn tími til
að fjölskyldan flytji lögheimilið
hingað vestur og skapi sína framtíð
hér,“ segir Unnur sem er gift Ás-
geiri Þór Ásgeirssyni. Saman eiga
þau dótturina Helgu Sóleyju, sjö
ára, sem mun sækja grunnskóla í
Stykkishólmi næsta vetur.
Unnur stýrir Fransiskus
Skapar sér og sínum nýja framtíð
við ferðaþjónustu í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Hótelstjórinn „Hér hafa verið opnaðir veitingastaðir, listastofur og fleira
skemmtilegt sem gefur bænum lit,“ segir Unnur um mannlífið í Hólminum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reisulegt Fransiskus er í stóru uppbyggingunni uppi á höfðanum, það er í
þeim hluta hennar sem snýr að höfninni, þar sem smábátar eru í forgrunni.
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 4. ágúst. Frétta-
þjónusta verður um verslunar-
mannahelgina á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is.
Hægt er að koma ábend-
ingum um fréttir á netfangið
netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifta er opið
í dag, laugardag, frá kl. 8-12 en
lokað á sunnudag og mánudag.
Það verður opnað á ný þriðju-
daginn 4. ágúst kl. 7. Síma-
númer þjónustuvers er 569-
1122 og netfangið er
askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónusta verður op-
in í dag, laugardag, frá kl. 6-12
og opnuð á ný þriðjudaginn 4.
ágúst kl. 5. Símanúmer
blaðberaþjónustu er 569-1440
og netfangið hennar er
bladberi@mbl.is.
Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is. Síma-
númer Morgunblaðsins er
569-1100.
Fréttaþjónusta
um helgina