Morgunblaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015 Laugavegi 34, 101 Reykjavík Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N Buxur 14.900,- stk. Buxur frá Flókagata 45, 105 Rvk. Hæð og ris Mjög rúmgóð og mikið endurnýjuð hæð og ris við Klambratún rétt ofan við Kjarvalsstaði. Sérsmíðaðar innréttingar. Arinn í stofu. Góður bílskúr fylgir. Eignin er samtals 236,9 fm. V. 84,5 m. Eignin verður til sýnis þriðjudaginn 4. ágúst nk. frá 18:00-18:30. Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Í gær voru greiddar um nítján millj- arðar króna úr ríkissjóði til heimila landsins. Um er að ræða endur- greiðslu á ofgreiddum sköttum, barnabætur og vaxtabætur. Heildarfjárhæðin sem greidd er út hækkar úr 17,7 milljörðum króna í 19,0 milljarða króna á milli ára. Hækkunin skýrist einkum af of- greiddri staðgreiðslu tekjuskatts og útsvars sem leiðrétt er með endur- greiðslu. Þá mun ríkissjóður greiða 2,6 milljarða króna í barnabætur 1. nóvember næstkomandi. Í gær voru greiddir út 2,6 millj- arðar króna í barnabætur, 5,9 millj- arðar í vaxtabætur og 9,3 milljarðar vegna ofgreiddrar staðgreiðslu tekju- skatts og útsvars og 845 milljónir vegna ofgreiddrar staðgreiðslu fjár- magnstekjuskatts. Inneign framteljenda að lokinni álagningu er alls 22,4 milljarðar króna en 3,5 milljarðar af henni verð- ur ráðstafað upp í kröfur vegna van- goldinna gjalda. Barnabætur gætu aukist Fram kemur á vef fjármálaráðu- neytisins að greiðslur barnabóta aukast á milli ára og nema tíu millj- örðum króna sem er 5,1% aukning frá fyrra ári. Rúmlega 48 þúsund fjöl- skyldur fá barnabætur á þessu ári sem er 9,5% fækkun frá árinu 2014. Fjárhæð meðalbóta hækkar hins vegar umtalsvert, eða um rúmlega 16% á milli ára en allar fjárhæðir barnabótakerfisins voru hækkaðar verulega í upphafi ársins. Í álagningu eru ekki reiknaðar barnabætur á þá sem eru með áætl- aðan tekjuskattstofn. Vegna þess gætu barnabætur átt eftir að aukast um að minnsta kosti 300 milljarða króna. Hlutfall áætlaðs tekjuskatts- stofns hefur farið lækkandi síðustu ár og nemur nú um 3% af heildar- tekjuskatts- og útsvarsstofni. Almennar vaxtabætur vegna vaxtagjalda af lánum til kaupa á íbúð- arhúsnæði, sem einstaklingar greiddu af á árinu 2014, nema sjö milljörðum króna sem er 12,6% lækk- un á milli ára. Almennar vaxtabætur fá tæplega 38 þúsund fjölskyldur á árinu 2015 og fækkar þeim um 10% á milli ára. 19 milljarðar greiddir til heimilanna  Heildarfjárhæð hækkaði um 1,3 milljarða króna frá síðasta ári Morgunblaðið/Golli Endurgreiðsla Í gær voru end- urgreiddir 19 milljarðar króna. Endurgreiðsla » Nítján milljarðar króna voru greiddar úr ríkissjóði til heimila landsins. » Um er að ræða endurgreiðslu á ofgreiddum sköttum, barna- bætur og vaxtabætur. » Barnabætur gætu aukist um 300 milljónir króna. » Um 10% færri fá vaxtabætur í ár en í fyrra. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Íbúar í Suðurhlíðarhverfi í Öskjuhlíð hafa síðustu daga orðið fyrir tals- verðu ónæði af jarðvegsvinnu vegna viðbyggingar við Klettaskóla. Síð- ustu ár hafa þeir mótmælt viðbygg- ingunni við litlar undirtektir borg- aryfirvalda að sögn íbúanna. Hulda Anna Arngrímsdóttir, íbúi í Beykihlíð 4, segir verktaka á svæð- inu hafa hafið sprengingar á klöpp- inni á svæðinu hinn 21. júlí sl. Íbúar hafi staðið í þeim skilningi að verk- takinn hefði svonefnt takmarkað byggingarleyfi, sem kvæði á um að- stöðusköpun fyrir starfsmenn og sýnatöku úr jarðvegi, en ekki fælust í því sprengingar. Hulda telur að Reykjavíkurborg hafi ekki sinnt upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu sinni, fyrirspurnum um leyfið hefði ekki verið svarað með fullnægjandi hætti. Hús nokkurra íbúanna eru í um sex metra fjarlægð frá vinnu- svæðinu. „Þeir byrjuðu að grafa grunn og einn góðan veðurdag byrjuðu þeir að sprengja. Það vantaði skilti þarna og íbúar voru ekki varaðir við. Þeir eiga að láta íbúa í kring vita hvenær á að sprengja. Um daginn var sprengt fjórum sinnum yfir daginn og unnið lengur en leyfileg er. Þarna var brot- in reglugerð um sprengiefni,“ segir Hulda, verktakanum beri að láta vita hvenær sprengingar hefjist og ekki megi sprengja oftar en tvisvar á dag. Íbúarnir hafa nú kært fram- kvæmdirnar til umhverfis- og auð- lindanefndar Reykjavíkur en hafa ekki fengið svar. Óánægja með hönnun hússins Áætlað er að byggðir verði 3.400 fermetrar við Klettaskóla. Í við- byggingunni er gert ráð fyrir hátíð- ar- og matsal, tveimur kennslusund- laugum, fullbúnu íþróttahúsi og að stjórnunarálma verði byggð ofan á. Íbúarnir hafa einna helst mót- mælt stærð byggingarinnar, en hlið hennar sem næst er íbúabyggð verð- ur 7,5 metra há, í nokkurra metra fjarlægð frá íbúðarhúsum í nágrenn- inu. Ljósmynd/Jón Ármann Framkvæmdir Jarðvinna fer fram í nokkurra metra fjarlægð frá húsum í Beykihlíð, hægra megin á myndinni. Sprengingar ónáða íbúa við Klettaskóla  Telja framkvæmdaraðila brjóta reglugerð um sprengiefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.