Morgunblaðið - 01.08.2015, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
Grillblöndurnar frá Findus
Ferskara en ferskt
Oppah Muchinguri, umhverfis-
ráðherra Simbabwe, hefur kallað
eftir því að Walter Palmer, tann-
læknirinn bandaríski sem er sak-
aður um að hafa drepið heimsfræga
ljónið Cecil, verði framseldur til
Simbabwe og svari fyrir ólögleg at-
hæfi sín. „Það var of seint að hand-
sama erlenda veiðiþjófinn þar sem
hann hafði komist úr landinu til
heimalands síns,“ sagði aðstoðar-
ráðherrann.
Palmer hefur beðist afsökunar á
drápinu og vill meina að hann hafi
verið blekktur af leiðsögumanninum
Theo Bronkhorst sem skipulagði
veiðiferðina. Bronkhorst var látinn
laus gegn tryggingu síðasta mið-
vikudag eftir að hafa verið ákærður
fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir
ólöglega veiði. Mótmælendur hafa
nú í nokkra daga mótmælt fyrir utan
tannlæknastofu Palmers í Minne-
sota í Bandaríkjunum. Margir hafa
skilið eftir dýraleikföng fyrir utan
bygginguna. Þá setti einn mótmæl-
andi upp skilti sem á stóð „Rotnaðu í
helvíti“ á hurð byggingarinnar og
ein dýraverndarsamtök hafa kallað
eftir því að Palmer verði hengdur.
Í Zimbabwe er nærri 80% at-
vinnuleysi og gífurleg verðbólga hef-
ur hrjáð landið á 21. öldinni. Sumir
íbúar hafa meiri áhyggjur af al-
mennri velferð í landinu heldur en
ljóninu Cecil. Í samtali við frétta-
veituna Reuters lýsti Tryphina Ka-
seke, sem selur notuð föt á strætum
Harare í Simbabwe, yfir undrun
sinni á málinu. „Ertu að segja mér
að öll þessi læti séu vegna dauðs
ljóns? Ljón eru drepin daglega í
þessu landi,“ sagði Tryphina. „Hvað
er svona sérstakt við þetta ljón?“
Vilja fá Cecil tann-
lækni framseldan
Hann segist hafa verið blekktur
AFP
Cecil Íbúar Simbabwe, sem búa margir við mikla fátækt, kippa sér ekki all-
ir upp við andlát fræga ljónsins Cecils. Dýraárásir eru algengar í landinu.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Yfirvöld í Malasíu hafa staðfest að
vænghlutinn sem rak á land af Ind-
landshafi sé úr Boeing-777 þotu,
sem þýðir að hann er langlíklegast
hluti af MH-370, flugvél flugfélags-
ins Malaysian Airlines, sem hvarf
sporlaust í mars fyrir ári.
Vænghlutinn gæti verið fyrsta
áþreifanlega vísbendingin sem
hjálpar til við að komast til botns í
dularfullu ráðgátunni um örlög
flugvélarinnar. Það telur Abdul
Aziz Kaprawi, aðstoðarsamgöngu-
málaráðherra Malasíu. „Ég tel að
við séum að færast nær því að
komast til botns í ráðgátunni um
örlög MH370. Þetta gætu verið
sannfærandi sönnunargögn um að
MH370 hafi hafnað í Indlandshafi,“
sagði hann við fréttaveituna AFP í
gær.
Á vænghlutanum sem rak á land
á eyjunni fannst verksmiðjunúm-
erið „657 BB“. Með því að rekja
það var hægt að staðfesta að væng-
búturinn væri af Boeing 777 þotu.
Núna er vænghlutinn á leið til
Frakklands í frekari greiningu og
búist er við niðurstöðum í næstu
viku.
Brak um allt Indlandshaf
Martin Dolan, yfirmaður sam-
göngustofu Ástralíu, segir að fund-
ur vænghlutans á eyjunni Reunion
þýði ekki að aðrir bútar úr flugvél-
inni fari að reka á land á Reunion
eða nálægum stöðum. „Á síðustu
16-17 mánuðum myndi allt fljótandi
brak úr flugvélinni hafa dreifst um
töluverðan hluta Indlandshafs.“
Þá sagði hann einnig að það væri
mjög erfitt að álykta um örlög
flugvélarinnar út frá brakinu sem
rak á land í Reunion. „Það eru tak-
mörk fyrir því hversu mikið er
hægt að álykta út frá braki sem
þessu og við teljum ekki að þetta
muni geta gefið okkur nægar upp-
lýsingar til að spá fyrir um hvar
restin af brakinu leynist,“ sagði
hann og bætti svo eftirfarandi við:
„Við vitum að megnið af leifum
MH370 er á hafsbotni, ekki fljót-
andi í hafinu.“
Vænghlutinn lang-
líklegast úr MH370
Staðfest að vænghlutinn sé úr Boeing-777 flugvél
Vænghlutinn
» Tveggja metra vænghlutinn
sem rak á land á Reunion er
svokallaður flapi. Flapinn er
hluti af væng flugvélar og er að-
allega beitt til að hægja á loft-
fari í lendingu en einnig til að
veita aukinn lyftikraft í flugtaki.