Morgunblaðið - 01.08.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
Vilt þú vita hvers virði
eignin þín er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga!
HRINGDU NÚNA 820 8080
Sylvía
Löggiltur fasteignasali
sylvia@fr.is
Brynjólfur
brynjolfur@fr.is
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hótel landsins eru mörg smekkfull
enda sumarið mesti álagstími árs-
ins. Hundahótel eru þar engin und-
antekning, en verslunarmannahelg-
in er sérstakur álagstími. Að sögn
Guðríðar Þ. Valgeirsdóttur sem
rekur Hundagæsluheimilið á Arn-
arstöðum, er allt uppbókað þessa
mestu ferðahelgi ársins.
„Þetta er ásæknasta helgi ársins.
Það eru líklega öll hótel full núna.
Víða er bannað að vera með hunda á
útihátíðum, fólk er líka að ferðast á
stöðum þar sem það getur ekki haft
hundana með sér,“ segir Guðríður.
Aðspurð hvort hún finni fyrir
auknum utanlandsferðum lands-
manna segir hún svo vera.
„Ég tek mest eftir því að fólk
virðist fara skyndilega út. Fólk
hoppar á þessi tilboð sem birtast
með skömmum fyrirvara,“ segir
Guðríður, en algengast er að
hundar dvelji á hundagæsluheim-
ilinu í viku eða tvær.
Guðríður segir að toppar og
lægðir séu í rekstrinum, örlítið
dragist saman yfir vetrartímann.
Rótgróin starfsemi
Guðríður, ásamt eiginmanni sín-
um, hefur staðið að rekstrinum frá
árinu 1983. Áður var hótelið rekið
af Hundavinafélagi Íslands og
Hundaræktarfélagi Íslands, en hót-
elið var hið fyrsta sinnar tegundar á
Íslandi. Þar er pláss fyrir átján
hunda og er hótelið opið árið um
kring.
Arnarstaðir Guðríður hefur rekið hundahótelið frá árinu 1983 ásamt eig-
inmanni sínum, Gunnari B. Gunnarssyni, en það er uppbókað um helgina.
Hundahótel upp-
bókuð um helgina
Fleiri utanlandsferðir hafa áhrif
hafnarsvæðið. Eldri myndina tók hann á ná-
kvæmlega sama stað árið 1974. Þá voru fyrir-
hugaðar miklar framkvæmdir á svæðinu og
hugsaði hann með sér að gaman væri að eiga
ljósmynd af byggingunum, sem hann þekkti
frá barnsaldri, áður en þær hyrfu.
Karl kveðst hafa tekið svolítið af ljós-
myndum í borginni og víðar á undanförnum ár-
um og væri fróðlegt að bera þær eldri saman
við þá mynd sem nú blasir við af sömu stöðum
„Það eru ótrúlega miklar breytingar sem orðið
hafa á undanförnum árum,“ segir hann.
Skemmur og skúrar
Eldri myndin sýnir nyrsta hluta gömlu aust-
urhafnarinnar eða Austurbugtar. Þar voru
þegar myndin var tekin alls kyns skemmur og
skúrar sem tengdust skipakomum í höfnina.
Svæðið afmarkast af Ingólfsgarði og Faxa-
garði. Maðurinn sem er á leið með brúsa í hönd
yfir Kalkofnsveg starfaði við uppskipun. Aust-
urhöfnin tók reyndar miklum breytingum
löngu áður en hafist var handa um byggingu
Hörpu. Vinstra megin við skemmurnar á eldri
myndinni var Kolakraninn frægi um áratuga-
skeið, þar var síðar mikill vöruskáli á vegum
Eimskipafélagsins og um árabil var þar at-
hafnasvæði skipafélagsins Hafskipa.
Sögufrægur staður
Seðlabankinn reis í byrjun níunda áratug-
arsins á lóð þar sem Sænska frystihúsið stóð
þegar eldri myndin var tekin. Frystihúsið var
tekið í notkun árið 1930 en rifið árið 1981. Upp-
haflega var húsi Seðlabankans ætluð lóð á
norðurhluta Arnarhóls og risu af því gífurlegar
deilur. Var staðsetningunni því breytt.
Á 19. öld var á núverandi lóð Seðlabankans
sögufrægt mannvirki, Batteríið, vígi með fall-
byssum sem Jörundur hundadagakonungur
lét reisa þegar hann var „hæstráðandi til sjós
og lands“ á Íslandi árið 1809. Fram eftir 19. öld
var staðurinn vinsæll til að eiga góðar stundir
með kærum vinum. Gengu Reykvíkingar
þangað á góðvirðisdögum og nutu útsýnisins.
Það varð þess vegna uppi fótur og fit í bænum
um aldamótin 1900 þegar auðmannsfrú ein,
Helga Vídalín, keypti lóðina og hugðist reisa
þar sumarhús og loka fyrir aðgang almenn-
ings. Bæjarbúar risu upp sem einn maður og
mótmæltu þessu en fengu ekki við ráðið þar
sem frúin og eiginmaður hennar, útgerðar-
maðurinn Jón Vídalín, áttu vini á háum stöðum
og á þingi. Kristján konungur IX hlustaði hins
vegar á raddir fólksins og synjaði lögum frá
Alþingi um sölu jarðarinnar staðfestingar.
Ekkert varð því að kaupunum.
Hafnarstarfsemi þar sem Harpa er nú
Ljósmyndir sýna þær miklu breytingar sem orðið hafa á austurhluta gömlu hafnarinnar á 40 árum
Ljósmyndir/Karl G. Smith
Breytingar Það er dálítið öðruvísi útsýnið frá horni Seðlabankans út á sundin blá. Myndin til vinstri er tekin 1974 og sú til hægri árið 2014, á nákvæmlega sama stað.
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Mér er í minni þegar ég fór sem krakki með
föður mínum inn í litla húsið með stóra stromp-
inum þarna á eldri myndinni. Þar sátu menn
við kaffidrykkju svo að í minningunni finnst
mér sem þetta hljóti að hafa verið kaffistofa,“
segir Karl G. Smith þegar hann færði Morgun-
blaðinu tvær æði ólíkar myndir af sama svæð-
inu við gömlu höfnina í Reykjavík, teknar með
fjörutíu ára millibili. Á nýrri myndinni, sem
tekin var í fyrra, sést Harpa í öllu sínu veldi og
aðeins glittir í húsvegg Seðlabankans til hægri.
Karl starfaði í bankanum í hálfa öld, síðustu
áratugina á efstu hæðinni í byggingunni við
Kalkofnsveg og hafði því gott útsýni yfir gamla