Morgunblaðið - 01.08.2015, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2015
✝ Þorsteinnfæddist í Ólafs-
vík 30. júní 1951.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi 27. júlí
2015.
Foreldrar Þor-
steins voru Bergþór
Steinþórsson, f.
26.11. 1921, d. 22.9.
2001, og Dagmar
Guðmundsdóttir, f. 3.7. 1932, d.
12.8. 2012. Systkini Þorsteins
eru: 1) Guðmundur, f. 9.2. 1950,
maki Matthildur Kristrún Frið-
jónsdóttir, f. 12.1. 1953. 2) Ásdís
Unnur, f. 17.7. 1952, maki Helgi
Kristján Gunnarsson, f. 2.3.
1949. 3) Hrönn, f. 30.10. 1953,
maki Björgvin Ármannsson, f.
13.10. 1949. 4) Freyja, f. 16.2.
1955, d. 16.6. 1955. 5) Freyja El-
ín, f. 29.9. 1956, maki Þórarinn
S. Hilmarsson, f. 30.7. 1959. 6)
Björk, f. 5.9. 1958, maki Guðni
hreppingafélagsins. Hann var
góð eftirherma og fór á kostum
sem slíkur á góðum stundum.
Flug var áhugamál hjá honum.
Hann tók einkaflugmannspróf
árið 1983 og átti hlut í flugvél.
Hestar voru annað áhugamál
hans. Hann átti hesta alla tíð og
hafði gaman af að fara í hesta-
ferðir. Búskapur, svo sem hey-
skapur, voru honum mikill
ánægjutími.
Þorsteinn starfaði í fiski á
unglingsárunum eins og tíðk-
aðist þá. Hann vann einnig ýmis
verkamannastörf. Hann hóf
störf hjá Kaupfélagi Ólafsvíkur
og í Litabúðinni í Ólafsvík og var
þar í nokkur ár. Á árunum 1988-
1990 rak hann loðdýrarækt í fé-
lagi við Hrönn systur sína og
Björgvin mann hennar á Hvoli í
Ölfusi. Árið 1996 keypti hann
Grillskálann í Ólafsvík ásamt Jó-
hönnu og Björk systrum sínum
og Guðna, manni Bjarkar og
ráku þau hann til ársins 2001.
Þorsteinn hóf störf hjá Olíu-
dreifingu árið 2001 og starfaði
hjá þeim til dauðadags.
Útför Þorsteins verður gerð
frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 1.
ágúst 2015, og hefst athöfnin kl.
14.
Sigurðsson, f. 20.10.
1955. 7) Aron Karl,
f. 10.12. 1959, maki
Kristín Björk Karls-
dóttir, f. 20.9. 1968.
8) Andvana fætt
stúlkubarn 21.1.
1962. 9) Jóhanna, f.
22.10. 1964. Hálf-
systir Þorsteins,
samfeðra, var Erla,
f. 16.6. 1941, d. 27.3.
2003, maki Sig-
urður Ingi Þorbjörnsson, f.
30.11. 1945.
Þorsteinn giftist aldrei en hélt
heimili með Jóhönnu systur
sinni. Synir Freyju systur þeirra,
Jóhann Arnór, f. 16.7. 1975, Emil
Freyr, f. 1.4. 1985 og Steinar
Darri, f. 12.3. 1990, áttu sitt ann-
að heimili hjá Þorsteini og Jó-
hönnu og börnum þeirra reynd-
ist hann sem besti afi.
Þorsteinn starfaði á yngri ár-
um með Leikfélagi Ólafsvíkur og
skemmti á þorrablótum Fróð-
Heimsins vegur hulinn er,
huga manns og vilja.
Enginn þarf að ætla sér,
örlög sín að skilja.
(Sveinbj.Beint)
Þessi vísa hér að ofan segir
svo margt um hann Þorstein
bróður. Það voru hans örlög að
giftast ekki, eignast ekki sín eig-
in börn en auðnaðist að fá að
fóstra að miklu leyti syni Freyju
systur sinnar ásamt Jóhönnu og
var þannig hennar stoð og stytta
á erfiðum tímum.
Aðdáunarvert var að sjá um-
hyggjuna og ástina, sem hann
átti svo mikið af, fá útrás í að
annast drengina og ekki síst eft-
ir að börnin þeirra fæddust, þau
voru honum sem eigin afabörn,
þau voru líf hans og yndi. Missir
drengjanna og barna þeirra er
því mikill og það skarð verður
aldrei fyllt.
Ekki má gleyma umhyggju
hans og elsku við foreldra sína
sem var svo einstök og allt til
hinstu stundar stóð hann við hlið
þeirra, hlúði að og huggaði þá
sem syrgðu. Þorsteinn var mikill
mannasættir og mátti ekki vita
til þess að ósætti væri innan fjöl-
skyldunnar og var ánægðastur
ef allir voru sáttir.
Það er svo lýsandi fyrir hann,
að þegar hann var orðinn mikið
veikur og gesti bar að garði, að
gera vel við viðkomandi í mat og
drykk þrátt fyrir að þrekið væri
lítið, alltaf að hugsa um aðra.
Já, það er erfitt að hugsa til
þess að Þorsteinn bróðir sé dá-
inn, kletturinn hjá svo mörgum,
hagleiksmaðurinn og traust fjöl-
skyldunnar.
Það lék allt í höndum hans, að
mála, smíða, viðgerðir á öllu
mögulegu.
Hann var listakokkur og
margir leituðu til hans um hjálp
þegar mikið stóð til.
Hestamaður var hann af lífi
og sál og voru hestarnir ekki síð-
ur gæludýr hjá honum en reið-
hestar.
En fjölskyldan var númer eitt
hjá honum og var hann alltaf
boðinn og búinn að hjálpa þar
sem þörfin var, kom óbeðinn um
langan veg og tók til hendinni.
Hann var hrókur alls fagnað-
ar þegar þannig lá á honum en
var að öllu jöfnu hógvær og lít-
illátur. Betri eftirhermu höfum
við ekki heyrt í og átti hann það
til að taka eitthvert okkar systk-
inanna fyrir, bæði með róm og
látbragði, náði hann okkur svo
við veltumst um að hlátri.
Hann var með eindæmum
klígjugjarn og mátti hann varla
heyra ógeðsbrandara án þess að
æla og man ég (Hrönn) eftir
þegar hann ákvað að koma með
okkur í loðdýrarækt.
Hann gekk eftir skálanum
endilöngum og kúgaðist alla leið
að enda skálans, þar dró hann
djúpt að sér andann og eftir það
var allt í lagi. Hlógum við mikið
að þessu.
Önnur saga er þegar við vor-
um að bíða eftir að Huld hryssan
hans myndi kasta. Ég (Hrönn)
hafði á orði um kvöld að hundur
myndi ég heita ef hún kastaði
ekki þá um nóttina og með það
sama þá kallaði hann mig Snata
allt kvöldið og var því mikill létt-
ir þegar ég sá folaldið um morg-
uninn. Alltaf var stutt í stríðnina
hjá honum.
Það eru leiðarlok hjá ljúfum
og góðum dreng sem við eigum
eftir að sakna. En við þökkum
fyrir að hafa átt hann fyrir bróð-
ur, vin og frænda, fyrir það er-
um við þakklát. Erfitt er að
hugsa vestur og þar er enginn
Steini bróðir tilbúinn með kjöt-
súpu eða læri í ofninum og bíður
eftir okkur.
Þökk fyrir allt, Steini minn.
Megi englarnir vefja þig örmum
þar sem þú ert.
Hrönn, Ásdís (Dísa)
og fjölskyldur.
Það er mikil sorg sem ríkir
hjá okkur, fólkinu þínu, núna. Þú
barðist hetjulega við þennan öm-
urlega sjúkdóm sem enginn á
skilið að fá. Guð hefur nú fengið
þig til sín og mikið er hann hepp-
inn með það því þú er svo ein-
stök manneskja. Þegar maður
gengur í gegnum erfiða tíma, þá
eru það minningarnar sem
hjálpa manni og við eigum þær
svo margar til að ylja okkur við.
Það var ekki hægt að hugsa
sér betri bróður og mág en þig,
elsku Steini okkar. Ég veit þér
líður betur núna, þetta líf er svo
ótrúlega skrítið stundum. Þú
munt alltaf eiga risastóran stað í
hjarta okkar.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Björk og Guðni.
Elsku Steini frændi, við
kveðjum þig með sorg í hjarta.
Þó svo það sé sárt að kveðja þá
þökkum við fyrir að hafa þekkt
þig, þú gerðir okkur ríkari með
tilveru þinni og vináttu.
Þeir segja mig látinn,
en ég lifi samt og í ljósinu
fæ ég að dafna. Því ljós var
úthlutað öllum jafnt og engum
ber það að hafna.
Frá hjarta mínu berst falleg rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og gleði ég senda mun
ljós, sem ykkur er ætlað að gleðja.
(Höf. ók.)
Kveðja frá Noregi,
Sandra, Jakob og synir.
Elsku Steini okkar. Þú kvadd-
ir okkur allt of fljótt frá þessum
heimi.
Við hefðum viljað hafa þig svo
miklu lengur í lífi okkar enda
varstu sem einn af fjölskyldunni.
Okkur er litið hinum megin við
götuna og sjáum þig fyrir okkur
sitja við svalahurðina með kaffi-
bolla og skima yfir hvort einhver
sé vaknaður hjá okkur svo þú
getir komið yfir og fengið þér
kaffisopa og spjallað við börnin
okkar sem voru þér svo kær,
enda varstu daglegur gestur
mörgum sinnum á dag. Við mun-
um sakna aspassúpunnar sem þú
gerðir alltaf á jólunum og gæða-
matreiðslunnar sem var þér svo
hjartfólgin. Þú kenndir okkur
svo margt um hvernig á að elda
góðan mat og fullkomna sósu
sem maður náði þó aldrei að
gera jafn fullkomna eins og þú,
því þín sósa var einfaldlega sú
besta. Þú áttir svo mikinn part í
okkar lífi að það verður aldrei
fyllt upp í það tómarúm sem þú
skilur eftir þig. Hjartabetri og
hjálpsamari mann er erfitt að
finna. Þú varst Emil sem uppeld-
isfaðir og börnunum okkar sem
afi. Þú áttir þó eina skondna hlið
það var að þú varst einstaklega
klígjugjarn og eigum við margar
góðar minningar um það.
Elsku Steini okkar, takk fyrir
allt, blessuð sé minning þín.
Emil Freyr Emilsson og
Herdís Leifsdóttir og börn.
Þorsteinn
Bergþórsson
Þegar við nú
kveðjum móðursyst-
ur okkar, Boggu
frænku frá Baldurs-
heimi, langar okkur að minnast
hennar með nokkrum orðum.
Bogga og Baldur áttu þrjú börn:
Ásgeir, Ingu Arnhildi, sem lést
mjög ung, og son sem dó rétt eftir
fæðingu. Barnamissirinn var þeim
þungur en þau voru alltaf sam-
stiga í lífinu bæði í sorg og gleði.
Bæði voru þau glaðlynd og mjög
félagslynd.
Við systkinin dvöldum hjá
Boggu frænku og Baldri á hverju
sumri langt fram á unglingsár.
Þar dvöldu líka amma Rósa og afi
Friðjón á sínum efri árum. Þessi
Ingibjörg
Friðjónsdóttir
✝ Ingibjörg Frið-jónsdóttir
fæddist 9. október
1919. Hún lést 19.
júlí 2015.
Útför Ingibjarg-
ar fór fram 31. júlí
2015.
ár hjá þeim voru
okkur ómetanleg og
ógleymanleg. Heim-
ili þeirra var hlýtt og
notalegt og stóð æv-
inlega öllum opið.
Bogga frænka var
yndislega góð kona
og að mörgu leyti á
undan sinni samtíð.
Hún var ræktunar-
kona og var með kál-
garð, okkur þótti
ekki alltaf gaman að þurfa að
vökva kálið. Alltaf var farið í að
minnsta kosti eina ferð á sumri í
kringum Mývatn og stundum
lengra. Þessar ferðir geymum við
í minningunni. Bogga var dugleg
að taka þátt í ýmsu félagsstarfi,
meðal annars söng hún í Kirkju-
kór Skútustaðakirkju og kvenna-
kórnum Lissý. Bogga var mikil
hannyrðakona og var mörg sumr-
in í Dyngjunni með handverk sitt.
Við systkinin eigum öll muni, sem
hún bjó til handa okkur. Á síðari
árum var fastur liður að fara til
Boggu í Baldursheimi á sumrin og
alltaf voru móttökurnar jafn góðar
og hlýlegar. Við þökkum Boggu
frænku allar yndislegu samveru-
stundirnar sem við áttum með
henni. Við vottum Ásgeiri frænda,
Þórhöllu og allri fjölskyldunni
okkar dýpstu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Rósa, Jón og Ólafur.
Elsku Bogga mín, takk fyrir
allt sem þú gafst mér svo enda-
laust. Sumrin hjá ykkur Baldri
voru og eru í minningunni svo stór
hluti af mínu lífi. Þvílík forréttindi
það voru fyrir mig að vera sendur
í sveit til ykkar. Vera hjá ykkur
sumar eftir sumar við endalausa
hlýju og væntumþykju svo aldrei
bar þar skugga á.
Fóstra mín, 47 ár eru langur
tími í ævi hvers manns en þann
tíma hafið þið hjónin átt í bænum
mínum.
Elsku Bogga, með djúpri virð-
ingu kveð ég þig. Far þú í Guðs
friði.
Kristinn Tómasson
(Kiddi Tomm).
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar
Okkar ástkæri,
EGGERT ÓLAFSSON
í Bakka,
Hvanneyrarbraut 25,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar,
Siglufirði, 24. júlí.
Útför hans fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
8. ágúst kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Sólrún Valsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
MAGNÚS ÞORSTEINSSON
skipstjóri,
Hæðargarði 29,
Reykjavík,
lést hinn 26. júlí 2015 á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útförin fer
fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 10. ágúst kl. 13.
.
Helga Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörn Magnússon, Elín Birna Sigurgeirsdóttir,
Þorsteinn H. Magnússon, Guðrún M. Jóhannsdóttir,
Birna G. Magnúsdóttir,
Magnús S. Magnússon, Guðrún J. Óskarsdóttir,
Gunnlaugur Magnússon, Margrét Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGFRÍÐ ÞORVALDSDÓTTIR,
lést hinn 22. júlí. Útförin fer fram í
Háteigskirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 13.
.
Þorvaldur Gunnlaugsson, Katrín Guðjónsdóttir,
Helgi M. Gunnlaugsson, Laufey Hrönn Jónsdóttir,
Heiða Björk Gunnlaugsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR,
Brúarflöt 4,
Akranesi,
andaðist á Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimilinu á Akranesi, 27. júlí. Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Þóra Gunnlaugsdóttir og Guðmundur F. Gunnlaugsson.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR BJARNI VILHJÁLMSSON,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Íslenskrar getspár,
lést á Landspítalanum 23. júlí.
Útför verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 5. ágúst
kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjartaheill.
.
Guðrún Árnadóttir,
Vilhjálmur G. Vilhjálmsson,
Jóhanna S. Vilhjálmsdóttir, Magnús Skúlason,
Haukur Vilhjálmsson, Ji Xing,
Unnur Vilhjálmsdóttir, Þráinn Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri,
GUÐMUNDUR GUNNARSSON,
Víkurgötu 6,
Stykkishólmi,
sem lést þriðjudaginn 28. júlí, verður
jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju
þriðjudaginn 4. ágúst kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Matthildur Guðmundsdóttir.