Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 nógu póstmódern fyrir nútímann, enda hefur þetta líka sjálfsagt bara verið misskilningur hjá Wagner. Wagner og ástin Mikið hefur verið gert úr því að Wagner hafi verið ástfanginn þegar hann samdi Tristan og Ísold. Wagner var kvæntur á þessum tíma en hjónaástin var orðin fyrrverandi og auk þess var konan sem hann var ástfanginn af gift. Og það sem meira var, eiginmaðurinn Otto Wesen- donck var einn helsti fjárhagslegi styrktaraðili Wagners á þessum tíma. Nú er það gjarnan svo með skapandi listamenn að þeim finnst þægilegt til að örva sköpunargáfuna að eiga sér einhverja listgyðju (muse), í tilfelli karlmanna er það oft falleg kona, ekki síst ef hún er í yngri kantinum. Og frú Wesendonck var svo vel hæfileikum búin að hún gat ort nokkur ljóð og Wagner nýtti sér það til að semja lög við þessi ljóð sem eru nokkuð fræg sönglög. Náin samtöl Wagners og Mathilde vöktu hneyksli og á endanum neyddist Wagner til að hrökklast frá þessum velunnurum sínum, en þá nýtti hann sér bara tækifærið og lauk við að semja Tristan og Ísold. Og auðvitað var það þannig að Wagner hefði samið og gengið frá þessu fræga verki sínu þó að hann hefði aldrei hitt þetta Wesendonck-fólk. Þetta fólk var hins vegar „heppið“ að því leytinu til að nánast enginn mundi vita í dag hvaða fólk þetta var nema vegna þess að Wagner vingaðist við það. Ástardauði Þegar Wagner samdi Tristan og Ísold var hann undir miklum áhrif- um frá hinni þýsku svartsýnisheim- speki Schopenhauers sem hélt því fram að til væru tvær tegundir af ást: Karitas eða kærleikur og svo erótísk ást. Sú fyrrnefnda væri af hinu umhyggjusama tagi en sú síðari væri eigingjörn, frek og yfir- gangssöm. Wagner var ekki sam- mála þessari greiningu Schopen- hauers og taldi að erótíska ástin væri ekki eins neikvæð og heim- spekingurinn vildi vera láta. Svo að Wagner settist niður og hóf að rita heimspekingnum bréf til að útskýra sitt sjónarmið. En hann sendi aldrei þetta bréf enda lauk hann aldrei við það. Líklega var þetta í eitt af fáum skiptum sem sjálfstraust Wagners brást. Í samræmi við skilning sinn á ást- inni endaði Wagner Tristan og Ísold á hinum fræga ástardauða-söng Ís- oldar þar sem hún syngur yfir líki Tristans og sameinast honum síðan í dauðanum. Þannig verða þau eitt: Tristan = Ísold, en ekki Tristan og Ísold. Nú ber svo við í útfærslu Kathar- inu Wagners í Bayreuth, sýningu sem á líklegast eftir að ganga þar næstu fimm árin, að endir verksins er í anda Schopenhauers en ekki Wagners. Ísold deyr ekki og eigin- maður hennar, Marke, dregur hana (sprell)lifandi út af sviðinu, teymir hana á eftir sér eins og belju. Fyrir mér var þetta ekki endir á verkinu, heldur endir á söngframa Evelyn Herlitzius sem var búin að magna upp sitt löngu úrelta víbrató, þannig að ég hef aldrei heyrt leiðinlegri út- færslu á þessum magnaðasta og meistaralegasta lokasöng nokkurrar óperu eða tónadrama. Hvernig dettur Katharinu Wagner í hug að breyta þessum fræga endi á verkinu? Margt kemur þar sjálfsagt til en veigamestur er nú líklega sá mikli hroki sem ein- kennir marga nútíma leikstjóra: þeir telja sig miklu gáfaðri en þá snillinga sem hafa samið sígild tónbók- menntaverk eða leikrit og búa því til sína eigin enda á verkin. Hlægileg- asta breyting á enda leikrits gerðist þegar þýsk leikkona neitaði að láta Nóru í Brúðuheimili Ibsens skella hurðinni á eftir sér og yfirgefa eig- inmann og börn sín. En leikkonan var að sjálfsögðu miklu betur að sér um sálarlíf kvenna en einhver karl- fauskur frá Noregi, sem greinilega vissi ekki sínu dramatíska viti. Ibsen var þó ekki heimskari en svo að Nóbelsverðlaunanefndin veitti hon- um aldrei þau virtu verðlaun, vegna þess hvað hann var mikill og róttæk- ur myndbrjótur. Það sama átti við um Strindberg því að meðalmennin skilja ekki frumlega snillinga. Ef til vill réttlætir Katharina nauðgun sína á endinum á Tristan og Ísold á eftirfarandi hátt: Langafi þorði aldrei að senda bréfið til Schopenhauers vegna þess að hann var ekki viss í sinni sök með ástina. Og samkvæmt femínistalestri á verkinu á ekkert að vera að láta konu fórna sér fyrir karl heldur á alltaf að sýna eigingirni karla og hvernig þeir teyma konuna sína á eftir sér eins og kú í bandi. Ekki seinna vænna að gera 150 ára gam- alt verk svolítið nútímalegra enda ástin eitthvað allt annað en hún var í gamla daga. Wagner og Ibsen voru miklir sál- fræðingar í list sinni, um það efast enginn. En hvort nútíma femínistar eru einhverjir sálfræðingar efast alltaf fleiri og fleiri um, ekki síst þegar þeir meðhöndla verk karla; verst er útkoman hjá þeim við slíka vinnu ef karlarnir voru snillingar. Það er illa á færi meðalmanneskj- unnar að skilja verk snillinga. Ibsen sagði í Þjóðníðingi: „Meðalmann- eskjan hefur alltaf rangt fyrir sér.“ Þetta á meðalmanneskjan afar erfitt með að skilja. Stjörnur Greinarhöfundi þykir fremur kauðslegt að láta elskendurna inn í fangelsi, en Tristani tekst að smygla þangað inn fjölda lítilla stjörnulaga ljósa til að skreyta tjaldið með. „Stjörnuskreytt tjald í fangelsi er ekki eitthvað sem Wagner lagði áherslu á í verki sínu, reyndar er slíkt alls ekki að finna þar,“ segir höfundur. Ofsjónir Listrænum stjórnendum sýningarinnar tekst vel að útfæra ofsjónir Tristans. Þá birtist Ísold elskhuga sínum inni í upplyftum þríhyrningi, og stundum mörgum þríhyrningum með jafn mörgum Ísoldum. Í fjóra áratugi hafa aðdáendur kvik- myndarinnar Rocky Horror Picture Show sungið með myndinni á þar til gerðum kvikmyndasýningum víðs vegar um heiminn. Um nýliðna helgi var myndin sýnd með nýstárlegum hætti í Lincoln Center, því þar var hún sýnd um tvöþúsund áhorfendum án hljóðs. Allir áhorfendur fengu þráðlaus heyrnartól þar sem heyra mátti það sem fram fór á tjaldinu og gátu síðan sungið hástöfum með án þess að trufla sessunaut sinn. Samkvæmt frétt í New York Times var gripið til þess ráðs að not- ast við heyrnartól til þess að virða reglur um hávaða eftir kl. 22 á kvöldin. Kvikmyndin Rocky Horror Picture Show í leikstjórn Jim Sharman er að- lögun á samnefndum söngleik eftir Richard O’Brien. Myndin fjallar um parið sakleysislega Janet og Brad (leikin af Susan Sarandon og Barry Bostwick) sem neyðist til að leita ásj- ár í kastala dr. Frank-N-Furter (leik- inn af Tim Curry) þegar bíll þeirra bilar óveðursnótt eina. Óhætt er að segja að parið verði ekki samt eftir að hafa eytt nóttinni með vísindamann- inum skrýtna og áhangendum hans. Virtu reglur um hávaða Rocky Horror Nell Campbell, Pat- ricia Quinn, Tim Curry og Richard O’Brien í hlutverkum sínum. Bandaríski leikarinn Kevin Bacon kallar eftir fleiri nektarsenum karla jafnt á hvíta tjaldinu sem og í sjón- varpsþáttum í vídeóbloggi sem birt er á vefnum Mashable. Þó að ákall leik- arans sé sett fram með spaugilegum hætti má sannarlega segja að það kall- ist á við umræðuna um aukið kynja- jafnrétti í Hollywood. „Við stöndum frammi fyrir stóru vandamáli í Hollywood nú um stundir. Í fjöldanum öllum af kvikmyndum og sjónvarpsþáttum birtast naktar konur og það er ekki í lagi. Eða réttara sagt, það er í lagi, en það er ósanngjarnt gagnvart leikkonum og raunar einnig leikurum, því við viljum líka vera nakt- ir,“ segir Bacon og hvetur meðleikara sína til sleppa kjötinu lausu undir slag- orðinu „Free the Bacon“. Meðal mynda sem hann ræðst að fyrir tepru- skap er 50 gráir skuggar og býðst hann til að taka hlutverk Christians Grey að sér og koma nakinn fram í framhaldsmyndunum. Ekki fylgir sög- unni hvort Bacon kemur sjálfur nak- inn fram í nýjustu kvikmynd sinni, Cop Car, sem frumsýnd var vest- anhafs um nýliðna helgi. Vill fleiri nakta karla Frelsi Kevin Bacon vill meira hold. Aðdáendur Tom Jones urðu fyrir miklum von- brigðum þegar rafmagnið fór í miðjum tón- leikum í Alnwick- kastala á Eng- landi um helgina. Rafmagnið hafði farið stutt- lega tvisvar sinnum án þess að trufla tónleikana að ráði, en þegar um 50 mínútur voru liðnar af tónleikunum og Jones hafði rétt sleppt orðunum „turn on the light“ í laginu Leave Your Hat On varð allt svart og reyndist ómögulegt að koma raf- magninu aftur á. Á þeim tímapunkti ákvað gamla brýnið að yfirgefa svæðið, áhorfendum til sárrar gremju. Allt svart Tom Jones

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.