Morgunblaðið - 11.08.2015, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
AF EXTREME CHILL
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Tónlistarhátíðin Extreme ChillFestival fór fram á Hellis-sandi undir Snæfellsjökli nú
um helgina og var það í sjötta skipt-
ið sem hátíðin er haldin. Veðrið á
föstudeginum var með ágætasta
móti og Snæfellsnesið einkar fýsi-
legt í kvöldsólinni. Það fyrsta sem
tók þó á móti manni þegar á svæðið
var komið var hafsjór dauðra kría
sem bylgjaðist meðfram veginum á
milli Rifs og Hellissands. Það sem
var þó mögulega enn sérstakara var
viðbrögðin sem mættu manni hjá
heimamönnum þegar kríuhræin
bárust í tal.
„Alveg hreint yndislegt að sjá
þetta. Hef ekki séð svona mörg hræ
í langan tíma,“ kvað einn. Kríu-
stofninn á svæðinu, sem eitt sinn
státaði af einu stærsta kríuvarpi
Evrópu, hefur nefnilega verið á
hraðri niðurleið síðustu ár en virðist
þó nú vera að taka við sér. Það var
því lítið annað hægt að gera en að
samgleðjast yfir blóðbaðinu.
Glæsileg myndbandsverk
Tjaldsvæðin voru tvö. Annað
hafði klósettaðstöðu og fjölskyldu-
stimpil á meðan hitt státaði af
teknótjaldi og partístandi. Þegar
búið var að koma sér fyrir á því
síðarnefnda var haldið af stað í átt
að Félagsheimilinu Röst, þar sem
tónar Tonik Ensemble, elektróverk-
efnis Antons Kaldal Ágústssonar,
voru í þann mund að bresta á. Röst
er nokkuð skondinn staður, fremur
lítið og hefðbundið dreifbýlisfélags-
heimili sem þó virðist bera ágætis
hljóð. Myrkrið hefði mátt vera
meira inni á staðnum og góður ljósa-
búnaður hefði sett skemmtilegan
svip á salinn. Myndbandsverk lýstu
upp listamennina sem komu fram og
var það virkilega vel útfært. Eins
konar „stop motion“-myndir skeytt-
ar saman í heildstæð verk lýstu
þannig upp sviðið. Alltumlykjandi-
elektró Tonik Ensemble fór vel sam-
an við listina og gestir kunnu vel að
meta.
Salurinn var langt því frá að
vera troðinn og hefðu fleiri mátt
vera á svæðinu. Eitt af markmiðum
hátíðarinnar er þó að skapa nokkuð
nána stemningu og fjöldinn var því
Ekkert svo tsjilluð hátíð undir jökli
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Raftónlist Stemningin var mjög góð þegar dj. flugvél og geimskip tróð upp í félagsheimilinu Röst á Hellissandi.
ef til vill eftir þeim línum sem lagðar
voru. Leiðin lá því næst í Kaffi Sif,
við hlið Rastar, þar sem hægt var að
tylla sér og sötra á nokkrum hrím-
uðum silungum. Þarna sat dágóður
hópur í mestu makindum þegar lög-
reglu bar að garði.
„Setjið hendurnar á borðið, lóf-
ana niður, á meðan við leitum á ykk-
ur,“ sagði heimilislegur maður í flís-
peysu. Flestir hváðu við og héldu að
um glens væri að ræða þar til tvær
lögreglukonur hófu að leita í öllum
mögulegum glufum. Bandarískur
háskólanemi var með í för og
blöskraði honum framferði lögregl-
unnar. Þegar hann spurði einn lög-
regluþjóninn hvaða rökstudda grun
hann hefði fyrir leitinni kvað hann
að svona væru nú bara lögin á Ís-
landi og hann skyldi hlýða.
Þessi rökstuddi grunur er nátt-
úrlega allt of vítt hugtak. En hvað
um það. Þarna sat hópurinn í þögn-
inni með lófana límda við borðplöt-
una á meðan lögreglan þuklaði sig
áfram. Einum í hópnum var loks
nóg boðið og neitaði lögreglunni um
aðgang að vösum sínum og öðrum
fórum. Lögreglan kvað að viðkom-
andi hefði vissulega rétt á því að
neita henni um að þukla á sér, við-
komandi yrði engu að síður færður
inn í lögreglubíl og þaðan til Ólafs-
víkur þar sem alvaran hæfist.
„Og þegar það kemur í ljós að
ég er ekki með neitt á mér, ætlið þið
þá að skutla mér til baka til Hellis-
sands?“
„Nei, við nennum því ekki.“
Það kom reyndar á daginn að
lögreglan nennti ekki einu sinni að
standa í því að keyra með ein-
staklinginn til Ólafsvíkur og var
fljót að láta sig hverfa án þess að
þreifa á viðkomandi. Þetta var mjög
sérkennileg uppákoma og þrátt fyr-
ir að lögregluþjónarnir hafi þannig
séð allir verið hinir almennilegustu
sat maður eftir með óbragð í munn-
inum. Að þessari yfirheyrslu lokinni
náðist rétt svo í skottið á Tanyu &
Marlon auk Quadruplos í Röst sem
luku kvöldinu með glæsibrag.
Gamla Rif stóð fyrir sínu
Norðurströnd Snæfellsness er
einkar skemmtileg og vel til þess
fallin að bera skemmtilegar hátíðir.
Bæirnir raðast þarna hver á fætur
öðrum og það sem fæst ekki í einu
bæjarfélaginu er einfaldlega sótt í
það næsta. Enski boltinn rúllaði
náttúrlega af stað á laugardaginn
og því lá leiðin á RúBen á Grundar-
firði þar sem slafrað var í sig veig-
um yfir sparkinu. Sundlaugin á
Ólafsvík stóð líka fyrir sínu auk þess
sem Gamla Rif, eitt besta kaffihús á
landinu, yljaði gestum um hjarta-
rætur með fiskisúpu, bragðgóðu cia-
batta-brauði og kolbiksvörtu kaffi.
Þá var aftur komið að leikriti
lögreglunnar, sem hafði sett upp
vegatálma í Ólafsvík og leitaði þar á
öllum, hvort sem viðkomandi var í
einkabíl eða strætó. Þegar komið
var aftur á tjaldstæðið var það ekki
varðeldur og grillaðir sykurpúðar
sem tók á móti manni heldur blautir
fíkniefnahundar. Þá á ég ekki við
einstaklingana sem héldu stuðinu
gangandi í teknótjaldinu heldur lög-
regluhunda sem veltu við stokkum
og steinum í leit sinni að gleðiefn-
um. Í fylgd þeirra voru sömu
lögregluþjónar og kvöldið áður og
fór teymið meðal annars inn í tjöld
furðulostinna gesta. Nokkrir ein-
staklingar voru dregnir til hliðar og
sumir þeirra látnir afklæðast á með-
an leitað var á þeim. Það var greini-
legt að hátíðin stóð varla undir
nafni sem Extreme Chill Festival.
Á vef RÚV segir að 29 fíkni-
efnamál hafi komið inn á borð Lög-
reglunnar á Vesturlandi um
helgina, langflest tengd tónlistar-
hátíðinni. Um 200 gestir sóttu hátíð-
ina og var löggæsla aukin til muna
frá fyrri árum. Lögregla lagði að
mestu hald á neysluskammta en
einnig fundust efni sem talið er að
ætluð hafi verið til sölu. Mest fannst
af kannabisefnum en einnig amfeta-
mín og kókaín, auk ofskynjunar-
sveppa, LSD og MDMA. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni voru
margir samkomugestir ósáttir við
afskipti lögreglu og tvívegis var
gerður aðsúgur að lögreglunni þeg-
ar hún hafði afskipti af fólki. Ekki
veit ég hvort samskipti lögregl-
unnar við hópinn á Kaffi Sif á föstu-
deginum hafi verið annað tilfelli af
þessum svokallaða aðsúg. Raunin
var reyndar sú að helgin var eigin-
lega sú fyrsta í mjög langan tíma
sem maður varð ekki var við neitt
ofbeldi eða eignaspjöll. Allir virtust
vera hinir kátustu og koma vel sam-
an enda hefur aldrei verið tilkynnt
um líkamsárás, hvað þá nauðgun,
frá því að hátíðin var sett á lagg-
irnar, að sögn skipuleggjenda henn-
ar.
Seiðandi stemning í Röst
Norski raftónlistarmaðurinn
Biosphere stóð upp úr á laugardags-
kvöldinu ásamt dj. flugvél og geim-
skipi. Mínímalískir tónar þess fyrr-
nefnda voru virkilega flottir og
myndbandsverkin sem skreyttu
sviðið á meðan hann spilaði kyntu
undir magnað andrúmsloft. Gestir
lágu margir hverjir eins og hráviði
á viðargólfinu fyrir framan sviðið
og hlýddu á seiðandi tónana sem
fóru nokkuð stigmagnandi eftir því
sem á tónleikana leið.
Líkt og tónleikasett Biosphere
fór kraftur kvöldsins einnig stig-
magnandi. Dj. flugvél og geimskip,
verkefni Steinunnar Eldflaugar
Harðardóttur, var virkilega vinsælt
og var eflaust það atriði hátíðar-
innar sem vakti hvað mesta lukku
meðal gesta. Það er mjög skemmti-
legt hvernig hún nær að halda húm-
ornum og léttleikanum gangandi
þrátt fyrir að vera virtur og vel lið-
inn listamaður. Kvöldið endaði síðan
á Futuregrapher, sem keyrði hrað-
ann í botn og hreyfði sig sjálfur eins
og enginn væri morgundagurinn.
Hann lauk þar með helgi sem var
nokkuð skemmtileg og mjög áhuga-
verð. Gestir hátíðarinnar voru mjög
sérstakir og virtust koma úr hverju
einasta horni íslenskrar menningar-
flóru. Allt fór þó mjög friðsamlega
fram og ekki var brotið á neinum –
svo maður viti til – nema þá kannski
þeim sem þurftu að beygja sig og
glenna fyrir þukli lögreglunnar.
»Nokkrir einstak-lingar voru dregnir
til hliðar og sumir þeirra
látnir afklæðast á meðan
leitað var á þeim. Það
var greinilegt að hátíðin
stóð varla undir nafni
sem Extreme Chill
Festival.
Suður-afrískir vísindamenn
greindu leifar af kannabisefnum í
margra alda gömlum pípum sem
fundust í garði leikskáldsins Willi-
ams Shakespeare, að því er fram
kemur í frétt á vef dagblaðsins
Telegraph. Segir þar að vísinda-
mennirnir hafi beitt háþróuðum að-
ferðum og kynnt niðurstöður sínar
í suður-afrísku vísindariti, South
African Journal of Science, en alls
voru 24 pípur teknar til rannsóknar
úr bænum Stratford-upon-Avon og
þá m.a. nokkrar úr garði skáldsins.
Í fjórum þeirra fundust leifar af
kannabisefnum.
Kannabis í pípum úr garði Shakespeare
Kannabisreykingar? Málverk af
leikskáldinu William Shakespeare.
Breski leikarinn Benedict Cumber-
batch biðlar til leikhúsgesta að hætta
að taka upp sviðsleik hans með
snjallsímum sínum. Þetta kemur
fram á vef BBC. Cumberbatch leikur
titilhlutverkið í uppfærslu Barbican-
leikhússins í London á Hamlet eftir
Shakespeare. Að sögn Cumberbatch
er mjög truflandi fyrir leikara að sjá
ljósin frá símunum meðan verið er
að taka upp sviðsleikinn. „Mig lang-
ar til að leika fyrir áhorfendur, ekki
síma,“ segir Cumberbatch og tekur
fram að leikhúsið muni grípa til við-
eigandi ráðstafna og vísa út leik-
húsgestum sem taki upp sýningar.
Vill ekki láta mynda sig á sviðinu
Leikur Hamlet Benedict Cumberbatch.
Bandaríski leikarinn Bill Murray
mun fara með hlutverk í væntan-
legri kvikmynd um draugabanana,
Ghostbusters, sem frumsýnd verð-
ur í júlí á næsta ári. Murray fór með
hlutverk eins draugabananna í
tveimur kvikmyndum um þá,
Ghostbusters og Ghostbusters II,
frá árunum 1984 og 1989, en í
þeirri þriðju munu konur sjá um
draugaveiðarnar. Murray mun
leika andstæðing draugabananna
að þessu sinni, skv. vefnum
Birth.Movies.Death en drauga-
banana leika þær Kristen Wiig,
Melissa McCarthy, Kate McKinnon
og Leslie Jones.
Murray leikur í Ghostbusters
Óborganlegur Bill Murray, einn
hinna upprunalegu draugabana.
Emma Bunton, liðsmaður í popp-
sveitinni Spice Girls, eða Krydd-
píunum, segir ekkert hafa verið
ákveðið enn um mögulega endur-
komu sveitarinnar og tónleikaferð
á næsta ári. Breska götublaðið
Sun birti frétt þess efnis föstudag-
inn sl. að þessi vinsælasta stúlkna-
sveit allra tíma myndi halda tón-
leika án Victoriu Beckham og sá
Bunton ástæðu til þess að tjá sig
um málið. „Ef eitthvað gerist og
það er niðurneglt og við ákveðum
að gera eitthvað þá læt ég ykkur
vita, en það er ekkert á döfinni að
svo stöddu,“ sagði Bunton í út-
varpsþætti.
Óvíst um endurkomu Spice Girls
Kryddpíur Emma Bunton og Geri Halli-
wel, tvær af Kryddpíunum fimm.
TRAINWRECK 5, 8, 10:35
FANTASTIC FOUR 8, 10:15
MISSION IMPOSSIBLE 8, 10:35
PIXELS 3D 5
SKÓSVEINARNIR 2D 4
MINIONS 2D 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ