Morgunblaðið - 27.08.2015, Page 52
BAKSVIÐ
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Stöðugt gæla menn við þá hugmynd
að komast hraðar milli heimsálfa, til
dæmis frá Evrópu til Norður-
Ameríku. Venjulegar þotur eru um
átta stundir frá New York til Lond-
on, svo dæmi sé tekið, en Concorde-
þotan sáluga kláraði leiðina á innan
við helmingi þess tíma, kringum 3,5
stundum. Hinsta flug þess fljúgandi
meistarastykkis var árið 2003, eða
fyrir 12 árum, en áfram lifir draum-
urinn um ferðalög á ofurhraða; beðið
er eftir nýrri kynslóð hljóðfrárra far-
þegaflugvéla.
Áhrifa Concorde og arfleifðar
gætir víða en nú er svo komið að í
tækni- og þróunarsetri Airbus hafa
menn skissað upp byltingarkenndan
arftaka hennar með væng í got-
neskum oddbogastíl. Hefur banda-
ríska einkaréttarskráningin nýlega
samþykkt frumdrög þessi og veitt
evrópsku flugvélasmiðjunum einka-
rétt á þeim hugmyndum sem þar eru
settar fram.
Airbus með ofurloftfar
Langi fólki að komast að því
hvernig er að ferðast á 4,5 földum
hraða hljóðsins þá hyggst Airbus
freista þess að svala þeirri löngun.
Þó kannski ekki alveg á allra næstu
árum. Manna á meðal gengur flug-
vélin í skissunum undir heitinu Con-
corde 2.0 en Airbus beitir fyrir sig
stofnanamáli og segir teikningarnar
vera af „ofurskjótu loftfari“ og „við-
eigandi aðferðum til loftferða“.
Hugmyndin er að nýja flugvélin
verði ofurhljóðfrá, þ.e. geti náð allt
að fimmföldum hraða hljóðsins. Á
þeim ferðhraða yrði hún margfalt
fljótari í förum en Concorde sem
flaug að hámarki á rétt rúmlega tvö-
földum hljóðhraða, eða 2.160 km/klst
ferð í farflugshæð. Concorde 2.0 yrði
einnig frábrugðin forveranum að því
leyti að hún flygi næstum helmingi
hærra, eða í 30 km hæð, samanborið
við 18 km hámarksflughæð Con-
corde. Ferðahraði hennar yrði á
fimmta þúsund kílómetra á klukku-
stund og drægið um 8.800 km, sam-
anborið við um 7.100 hjá forver-
anum.
Að ferðast á 4,5 földum hljóðhraða
er eitthvað sem nær enginn getur
gert sér í hugarlund um hvað snýst.
En svo dæmi sé tekið myndir þú, les-
andi góður, komast á þeim ferðhraða
frá París eða London til New York á
um klukkustund.
Hönnun ofurfráu þotunnar er afar
ólík öllu öðru sem flýgur um loftin
blá nú til dags, alla vega í atvinnu-
skyni. Og lítur hún frekar út fyrir að
vera nokkurs konar eldflaugarlofts-
kip og virkar sumpart sem slíkt.
Það vann mjög gegn Concorde á
sínum tíma að henni var víða bannað
að fljúga yfir hljóðhraða yfir landi til
að komast hjá hljóðmúrsrofi yfir eða
í grennd við byggð. Hljóðmengunin
sem því fylgdi var ærandi og til mik-
ils ama fyrir menn og málleysingja á
jörðu niðri. Var það ein af ástæðum
þess að rekstur Concorde varð aldrei
arðbær og flugi hennar hætt. Til að
komast hjá þessum vanda mun Con-
corde 2.0 verða stefnt til lofts svo að
helst mun líkjast geimskoti geim-
ferju.
Aflgjafar Concorde 2.0 verða
þrenns konar. Í akstri á flugvöllum
og flugtaki eru venjulegir þotu-
hreyflar, kjarnastreymishreyflar,
brúkaðir. Rétt eftir flugtak yrðu þeir
dregnir inn í skrokk þotunnar og
lúgur eldflaugahreyfla í afturenda
hennar opnaðir. Við tæki næstum því
lóðrétt klifur upp í efstu lög gufu-
hvolfsins á margföldum hljóðhraða.
Með því að snúa stéluggum yst á aft-
urenda deltuvængsins um 90 gráður
myndi hávaði sem fylgir hljóðmúrs-
rofi mestmegnis dreifast lárétt út frá
flugvélinni og því aldrei verða til
óþæginda á jörðu niðri. Uggar þessir
eru lóðréttir á undir hljóðhraða en
láréttir fyrir hraðara flug. Galdurinn
er sá að þeir stuðla að stöðugri
þrýstingsmiðju yfir yfirborði flugvél-
arinnar og þar með stöðugra flugi.
Sætin eins og hengirúm
Komin í flughæð um 30 kílómetr-
um yfir sjávarmáli, eða 100.000 fet-
um, fer Concorde 2.0 í lárétt flug.
Slökkt er þá á eldflaugarhreyflunum
og hlerum fyrir þeim lokað til að
bæta loftflæðið um farartækið og
gera það straumlínulagaðra. Þá tek-
ur þriðja hreyfilgerðin við er svo-
nefndum þrýstlum er slakað niður úr
vængnum til að knýja loftfarið á 4,5
földum hljóðhraða. Þar uppi mætti
flugvélin vera eins hávær og henni
sýndist því ekki myndi heyrast í
henni af jörðu niðri.
Enn langt í land
Farþegaklefinn verður allverulega
frábrugðinn því sem er að venjast í
venjulegum þotum. Til að gera far-
þegum allar breytingar úr lóðréttu
flugi í lárétt sem þægilegastar munu
sætin helst líkjast hengirúmum, eins
og segir í einkaleyfisskissunum.
Sætin yrðu ekki ýkja mörg því að-
eins er gert ráð fyrir að Concorde 2.0
flytji að hámarki um 20 farþega í
einu.
Hvenær menn geta átt von á því
að ferðast með þessum mikla hraða
með Airbus-fari þá telja fróðir menn,
að biðin eftir að farartæki sem þetta
verði tekið í notkun geti varað þess
vegna í 30 til 40 ár. Þó veit það eng-
inn með neinni vissu en langt er í að
hægt verði að kaupa farseðil með
þessu eldfljóta loftfari. Airbus segir
að aðallega komi farartækið ofur-
fljóta til með að flytja bissnessfólk og
tigið, sem komast þurfi fram og til
baka milli heimsálfa á einum og
sama deginum. Einnig segir í
einkaleyfisumsókn Airbus að loftfar-
ið gæti hentað til landvarna og
hernaðarlegra verkefna. Og líka sem
ofurhraðskreið flutningavél fyrir
dýrmætan farm – tvö til þrjú tonn í
ferð – eða víkingasveitir.
Framleiðandi á myndbandavefn-
um You Tube, PatentYogi að nafni,
hefur framleitt myndskeið þar sem
flugi Concorde 2.0 er lýst í megin-
atriðum. Kannski er lýsingin hroll-
vekjandi en samt nærri raunveru-
leikanum er flugferðinni er lýst sem
„hæsta rússíbana heims“.
Á skotferð milli heimsálfa
Áfram lifir draumurinn um ferðalög á ofurhraða 12 ár eru liðin frá síðasta flugi hljóðfrárrar
farþegaþotu Áhrifa Concorde gætir enn víða Airbus með flugvél á fimmföldum hraða hljóðsins
Ljósmynd /You Tube/PatentYogi
Framtíðin Hugmyndaþota
Airbus, Concorde 2.0, er frá-
brugðin öllu sem flýgur.
Skissur Concorde 2.0
(neðar) er 53 metrar en
Concorde eldri 62 m.
Loftfar Þegar hljóð-
múrinn er rofinn dreif-
ist hávaðinn út til hlið-
anna og fjarar út en
berst ekki á jörðina.
52 FRÉTTIRTækni/Vísindi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2015
www.gulimidinn.is
Hugsaðu um heilsuna
Guli miðinn fylgir
þér alla ævi
frá upphafi
Fæst í öllum helstu apótekum,
heilsubúðum og matvöruverslunum
B-SÚPER - Sterk blanda B vítamína
Húð, hár og andoxun, orka og kraftur,
streita og taugarnar