Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 8

Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Fjárlagafrumvarpið var kynnt ígær og fylgdi kynningunni að óvissan í frumvarpinu væri já- kvæð, sem hlýtur að vera af- skaplega jákvætt. En viðbrögðin við þessari jákvæðu óvissu voru ekki öll jákvæð. Formaður Vinstri grænna taldi það „óskynsamlega ráð- stöfun að fara í skattalækkanir“, og staðfesti með því að vinstri menn sjá aldrei svigrúm til skattalækkana.    Þegar illa árar íþjóðarbúskapn- um er hallærið not- að sem röksemd fyrir því að ekki megi lækka skatta og jafnvel talið styðja gríðarlegar skattahækkanir eins og á síðasta kjörtímabili.    Þegar ástandið batnar óttastvinstri menn ekkert meira en þenslu og sjá enga aðra leið út úr þeirri ógn en að halda sköttum í hæstu hæðum til að drepa allt kvikt í atvinnulífinu.    Núverandi formaður VG, Katr-ín Jakobsdóttir, vék aldrei frá línunni sem gefin var frá þá- verandi formanni og stórmeistara í skattahækkunum, Steingrími J. Sigfússyni, hvort sem var í skatta- hækkunar-, Icesave- eða öðrum kjararýrnunarmálum.    Og nú stendur hún vaktina fyrirhann og andmælir hóflegum skattalækkunaráformum núver- andi ríkisstjórnar.    Vonandi verður skattalækkunar-ótti VG ekki látinn ráða ferð- inni og skattgreiðendum leyft að njóta hinnar jákvæðu óvissu með ríkissjóði. Bjarni Benediktsson Jákvæð óvissa STAKSTEINAR Katrín Jakobsdóttir Veður víða um heim 8.9., kl. 18.00 Reykjavík 12 rigning Bolungarvík 16 skýjað Akureyri 13 alskýjað Nuuk 3 þoka Þórshöfn 10 léttskýjað Ósló 17 heiðskírt Kaupmannahöfn 16 skýjað Stokkhólmur 13 léttskýjað Helsinki 15 léttskýjað Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 17 léttskýjað Glasgow 16 skýjað London 17 léttskýjað París 17 alskýjað Amsterdam 16 skýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 17 heiðskírt Vín 18 skýjað Moskva 11 skýjað Algarve 22 léttskýjað Madríd 28 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 25 léttskýjað Aþena 25 léttskýjað Winnipeg 12 skýjað Montreal 25 skýjað New York 33 heiðskírt Chicago 28 alskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 9. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:34 20:18 ÍSAFJÖRÐUR 6:34 20:28 SIGLUFJÖRÐUR 6:16 20:11 DJÚPIVOGUR 6:02 19:49 Alls voru gefin út 648 leyfi til strand- veiða á nýafstaðinni vertíð. Þetta er tveimur leyfum færra en á síðasta ári og 31 leyfi færra en á vertíðinni 2013. Flest voru þau gefin út fyrir vertíðina 2012 eða 761 talsins, að því er fram kemur í samantekt Fiski- stofu um strandveiðar sumarsins. Heildarafli strandveiðibáta á ver- tíðinni var 8.568 tonn í 14.942 lönd- unum. Alls veiddu strandveiðibátar á vertíðinni 7.643 tonn af þorski (89,2%). Næst mest var veitt af ufsa eða 773 tonn sem er 9,0% af heildar- afla. Afli í öðrum tegundum var óverulegur eða 1,8% af heildinni. Alls komu 17 tegundir fiska á króka strandveiðibátanna á þessari vertíð. Meðalafli í róðri aldrei meiri Frá því að strandveiðar hófust vorið 2009 hefur meðalafli í róðri aldrei verið meiri en á nýliðinni ver- tíð. Meðalaflinn var 575 kíló sem er litlu meiri afli en á fyrstu vertíðinni en þá var aflinn 572 kg. Í fyrra var hann 531 kg. og jókst hann því um rúm 8% milli vertíða. Svæði A, frá Arnarstapa til Súða- víkur, gaf mestan meðalafla í róðri á nýliðinni vertíð eða 612 kg. Næst komu bátar sem voru á svæði C með 605 kg., þá svæði B með 575 kg. og svæði D rak svo lestina með 467 kg. Hulda SF-197 sem gerð er út frá Hornafirði var aflahæsti báturinn á nýliðinni strandveiðivertíð með rúm 40 tonn. Næst kom Sæunn SF-155 sem einnig er gerð út frá Hornafirði með tæp 39 tonn og og Fengur ÞH-207 frá Grenivík með 38,5 tonn. Morgunblaðið/Ómar Strandveiðar Landað í Hafnarfirði. Þorskur tæp 90% af strand- veiðiafla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.