Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 21

Morgunblaðið - 09.09.2015, Side 21
nafnanna fann ég að Páll var yf- irvegaður og vandaður maður sem fylgdist vel með, bæði í sínu nán- asta umhverfi og í samfélaginu. Enda kom að því að hann var val- inn til trúnaðarstarfa og naut trausts. Og svona til gamans má við bæta að öldruð föðursystir mín man enn eftir ungum vélstjórnar- nemum á vinnustað sínum hjá Vél- smiðjunni Héðni. Og með brosi kannaðist hún við að Palli var þar á meðal og gat þess að saman voru þeir kallaðir leikskóladrengirnir. Páll mágur minn var mikill fjöl- skyldumaður og sinnti sínum vel. Saman fóru þau Jóhanna víða. Tóku jafnvel syni sína og fjöl- skyldur þeirra með. Hræddur er ég um að erfitt verði fyrir Jóhönnu að jafna sig á að hann er ekki leng- ur hér við höndina. Maður hafði á tilfinningunni að þau hjónin væru alltaf saman. Áttu sér fallegan bú- stað á sælureit austur í hreppum og dvöldu þar mikið. En þó kom fyrir að maður hitti Palla einan og þá var hann oft á hjóli. Já, hann gætti þess að halda líkamlegu formi. Og ekki var unnt að merkja annað en það gengi bara vel. Með árunum jókst áhugi Páls á uppruna sínum og ættum. Gat rakið ættir sínar nokkuð fram og betur en margur annar. Og hann var virkur þátttakandi á ættar- mótum með fjölskyldu sína. Ný- lega kviknaði hugmynd um ættar- mót föðurættar þeirra systkina og stóð til að halda það í þessum mán- uði. Hann var einmitt farinn að undirbúa sérstaklega sinn þátt í þeirri samkomu. Nú þegar litið er yfir þessi bráðum fimmtíu ár finnst að þetta er liðinn tími sem ekki kemur aft- ur. En öll byggjum við á því sem liðið er. Jóhanna, Magni Þór og Ingvi Már og Lilja mín. Okkar góðu minningar um hann Palla mág minn munu fylgja okkur og fjölskyldum okkar. Páll Bergsson. Nú er ég kveð vin minn Pál Magnússon, eða Palla Magg eins og hann var kallaður, kemur upp í hugann hvað lífið getur verið hverfult, þú kallaður burt svo skyndilega. Palli var glaðlyndur, traustur, hlýr og áhugasamur um flesta hluti. Fyrstu kynni mín af Palla voru árið 1968 í Vélskóla Íslands, Palli að ljúka námi en ég á fyrsta ári. Næst lágu leiðir okkar saman árið 1972 í Búrfellsvirkjun þegar ég hóf þar störf sem vélfræðingur, en Palli hafði starfað þar sem vél- fræðingur frá því að námi hans lauk. Þarna kynntumst við Díana vel heiðurshjónunum Páli Magn- ússyni og Jóhönnu Rögnvalds- dóttur, Góu. Á þessum árum voru margar fjölskyldur búsettar í Búr- felli og alltaf mikið um að vera, fjöldi barna, mörgu að sinna og ýmislegt brallað. Þarna var starf- rækt Menningarfélag sem stóð fyrir ýmsum uppákomum og ekki má gleyma Pöntunarfélaginu sem rekið var af miklum myndarskap og alltaf á sömu kennitölunni, það mætti ýmislegt af því læra. Palli var mjög virkur í þessum félögum. Áramótin í Búrfelli eru ógleym- anleg og var það fyrst og fremst vegna brennunnar, börnunum sem það upplifðu finnst engin brenna hafa verið haldin síðan og ekki þarf að spyrja hver var brennustjóri – auðvitað Palli. Palla var margt til lista lagt fyrir utan vinnuna, hann var t.d. mjög lið- tækur í sláturgerð. Palli var mikil félagsvera; hann var kjörinn í hreppsnefnd Gnúp- verjahrepps og sat þar í mörg ár og var þar virtur að verðleikum. Ég man eftir því að einu sinni sagði Palli mér það að eftir einn hreppsnefndarfundinn settust menn niður og ræddu landsins gagn og nauðsynjar. Þá fór einn hreppsnefndarmaðurinn að tala um graðhest sem kominn væri í hreppinn, ég man ekki lengur nafnið á hestinum. En Palli spurði, er þessi hestur nokkuð af Svað- astaðakyninu? Jú, það passaði, ekki minnkaði álit gamalla hrepps- nefndarmanna á þessum unga dreng við þetta. Ég spurði Palla; hvernig vissirðu þetta, Palli? Hann svaraði; ég vissi þetta ekki, en ég hafði lesið um einhverja hesta af Svaðastaðakyni. Við Palli fluttum með fjölskyld- ur okkar frá Búrfelli á sama tíma, en þá hófum við störf í Stjórnstöð Landsvirkjunar á Geithálsi. Síðan lá leiðin í Stjórnstöð Landsvirkj- unar/Landsnets á Bústaðavegi og loks Stjórnstöð Landsnets á Gylfaflöt. Frá því að við Palli hófum störf í stjórnstöð hafa orðið miklar mannabreytingar, við hinir eldri hættir störfum og yngri menn tek- ið við. Ungu mennirnir voru teknir í þjálfun við rekstur raforkukerf- isins og þar spilaði Palli stóra rullu. Ekki ósjaldan heyrði maður til þeirra – spyrjum Palla Magg – hvernig bregðast ætti við óvænt- um uppákomum, skýrslugerð og ýmsu öðru. Palli starfaði árum saman í stjórn Vélstjórafélags Íslands, einnig sat hann í stjórn Sparisjóðs vélstjóra. Fleira mætti telja upp um störf Palla að félagsmálum. Í 40 ár samfellt störfuðum við Palli saman; þessi tími hefur verið forréttindi fyrir mig og er ég því þakklátur. Við Díana sendum Jó- hönnu, Magna, Ingva og fjölskyld- um þeirra okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Hvíl í friði vinur. Minning um góðan dreng lifir. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Viktor Björnsson. Látinn er Páll Magnússon vél- fræðingur. Hann lést í svefni í sumarbústað þeirra hjóna, í landi Stóra-Hofs í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi 30. ágúst s.l. Manni bregður illilega þegar jafnaldrar manns deyja svona snögglega, að því er virðist við góða heilsu. Áður en Páll fór í Vélskóla Íslands, lærði hann vélvirkjun í Vélsmiðjunni Héðni. Stundum vann hann við uppsetningu síldarverksmiðja úti á landi. Þar kynntist hann eigin- konu sinni, Jóhönnu Rögnvalds- dóttur frá Siglufirði. Þau eiga tvo syni, Magna Þór Pálsson verk- fræðing og Ingva Má Pálsson lög- fræðing og eru þeir báðir dugn- aðarmenn. Við Páll vorum skólabræður frá Vélskóla Íslands og lukum námi sem vélfræðingar vorið 1968. Páll var afburða náms- maður og glöggur á flest það sem hann kom að. Strax að loknum Vélskólanum réðumst við fjórir skólabræður til starfa hjá verk- takafyrirtækinu Fosskrafti. Vinn- an var við niðursetningu aflvéla Búrfellsvirkjunar, sem þá var í smíðum. Við réðumst síðan sem vélstjórar til Landsvirkjunar í Búrfellsstöð þegar hún tók til starfa. Þau 12 ár sem við störfuð- um saman í Búrfellsstöð, þótti mér gott að starfa með Páli. Hann var verklaginn og þægilegur í allri um- gengni. Ekki minnist ég þess að að hafa séð hann reiðan eða viðskota- illan. Páll og fjölskyldan fluttu til Reykjavíkur og fór hann að vinna í afldreifistöð Landsvirkjunar og starfaði lengi þar. Starfslok hans voru hjá Landsneti, svo segja má að Páll hafi starfað allan vélfræð- ingsferil sinn hjá Landsvirkjun. Páll hafði áhuga á félagsmálum, hann sat í hreppsnefnd Gnúp- verjahrepps í nokkur ár, svo var hann í stjórn Vélstjórafélags Ís- lands í 14 ár. Einnig var hann í stjórn Sparisjóðs Vélstjóra um tíma. Palli og Góa, eins og þau voru oft kölluð, höfðu ýmis áhuga- mál. Þau kynntu sér Íslendinga- sögurnar á námskeiðum hjá Tryggva Sigurbjarnarsyni raf- magnsverkfræðingi. Tryggvi nam fornfræði sín hjá Jóni Böðvarssyni Íslendingasagnafræðingi, á mörg- um námskeiðum. Eitt sinn fór ég með þessum hópi, sem Palli og Góa voru í, vestur að Hítardal í Borgarbyggð. Þá var hópurinn að lesa sögu Björns Hítdalakappa. Og undraðist ég hve fólkið vissi mikið úr sögunni, sem gerðist á þessum slóðum. Við hjónin sendum eiginkonu og afkomendum innilegar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Páls Magnússonar. Pétur Kristjánsson.  Fleiri minningargreinar um Pál Magnússon bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Við sjáumst aftur, Sibbi minn. Þitt „hjartagull“, Svala. Pabbi var yndislegur maður og þótt hann væri með þennan sjúk- dóm reyndi hann eins og hann gat að gera eitthvað skemmtilegt með mér. Stundum var ég eitt- hvað þreyttur eða dapur og þá kom pabbi alltaf og spurði hvort við ættum ekki að fara í lúgu. Ef ég sagði nei taldi hann alltaf upp meira og meira til að gera, eins og að fara í Brynjuísrúnt eða bara að gera eitthvað skemmtilegt. Oft- ast sagði ég já og ég veit ekki hvað við fórum oft í lúgu saman og hann gaf mér hamborgara. Ég held að pabbi hafi ekki misst af leik hjá mér í fótbolta og hann spjallaði við mig í örugglega hálftíma eftir hvern leik. Það var mjög gott að hafa einhvern sem vissi eitthvað um fótbolta því að bróðir minn nennir stundum ekki að tala við mig um fótbolta. Nú verður skrítið að spila og enginn pabbi að horfa og tala við mann eftir leik. Pabbi bjó líka til besta mat sem ég hef smakkað og það var aldrei neitt vont sem hann gerði. Stundum fórum við í veiði saman og þá vissi hann alltaf hvar fisk- urinn var og þá sagði hann mér að láta síga og eitthvað annað sem ég skildi aldrei. Ef ég var einhvern tímann að spila tölvuleik þar sem maður þarf að hugsa þá vildi hann oft spila líka. Þá spilaði hann kannski sama leikinn stanslaust í viku og sló á endanum heimsmet, enda var hann með 130 í greindarvísi- tölu eða eitthvað álíka. Ég man að einu sinni var pabbi hjá okkur á meðan mamma var í útlöndum og ég ældi út um allt gólf. Systkini mín vildu ekki þrífa það upp og þá fór pabbi bara úr öllum fötunum, settist á gólfið og þreif allt upp. Svo fór hann bara í sturtu á eftir. Pabbi, ég mun alltaf hugsa til þín. Hvíldu í friði. Þinn, Sveinn. Elsku pabbi. Það er svo skrítið og óraun- verulegt að leiðir okkar skilji hér. Mér finnst ég afar heppin að hafa fengið að vera dóttir þín því þú kenndir okkur svo margt. Á hverjum morgni stóðst þú frammi fyrir því stóra verkefni að standa upp úr rúminu og skrölta áfram út í daginn, en þrátt fyrir það heyrði ég þig aldrei kvarta. Aldrei nokkurn tímann. Þú gerðir frekar grín að því að pabbi minn væri aumingi. Þú varst svo skemmtilega kærulaus og æðru- laus og kunnir manna best að hafa gaman og njóta lífsins. Við höfum átt margar góðar stundir saman í gegnum tíðina en þær hefðu svo sannarlega mátt vera fleiri síðustu ár eftir að þú fluttir í Brekatúnið. Ég á eftir að sakna þess að fara í mat til þín í Brekó og eiga með þér gæða- stund. Ekki síst vegna þess hve góður maturinn var sem þú eld- aðir. Þú gast alltaf töfrað fram dýrindis máltíð, sama hve mikið eða lítið var til í ísskápnum. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kíkt inn til Palla og Hörpu á laug- ardaginn þar sem þið Svala voruð í mat. Ég átti með ykkur skemmtilega stund þar sem þið sátuð og drukkuð rauðvín og höfðuð gaman. Þú skemmtir þér svo vel þetta kvöld að ég vakti þig um ellefu- leytið daginn eftir þegar ég hringdi og vildi kveðja þig áður en ég héldi aftur suður í skólann. Ég vildi ekki að þú færir á fætur fyrir mig, enda hafði ég kvatt þig kvöldið áður og ég hélt að ég myndi hvort sem er hitta þig fljótlega aftur. Þú hélst nú ekki og sagðir mér að bíða á meðan þú staulaðist fram. Ég náði að kyssa ykkur Svölu bless og áður en ég fór knúsaðir þú mig aftur, en það varstu ekki vanur að gera. Í þetta skiptið var það óvenju fast og innilegt. Mig grunaði ekki að þetta væri okkar hinsta kveðju- stund þótt ég hræddist það alltaf innst inni að þú færir snemma. Elsku pabbi, ég er svo stolt af því að vera dóttir þín. Það er svo gaman að segjast vera dóttir Sibba á Greifanum, því hann þekkja allir. Þú ert fyrirmynd mín í leik og starfi og ég ætla að kenna mínum börnum það sem þú hefur kennt mér í gegnum tíð- ina. Ég vona að þú sért einhvers- staðar hlaupandi um núna og kastandi flugum í ár því ég veit að þú vildir aldrei enda í hjólastól og vera upp á aðra kominn. Ég er svo glöð að þú hafir varið síðasta deginum þínum í veiði í uppá- haldsánni þinni með góðum vin- um og Sveini bróður. Takk fyrir að fylgja mér í þessi 22 ár sem við fengum saman. Þangað til næst, pabbi minn. Þín, Karen. Þú kveiktir von um veröld betri mín von hún óx með þér. Og myrkrið svarta vék úr huga mér um stund, loks fann ég frið með sjálfum mér. Það er svo undarlegt að elska - að finna aftur til. Að merkja nýjar kenndir kvikna, að kunna á því skil hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu. Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér. Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þín fyrstu orð. Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun. Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þín fyrstu ljóð. Mér finnst þú munir fæða allan heim- inn alveg upp á nýtt. (Ólafur Haukur Símonarson) Þetta var lagið okkar Sibba. Lagið sem við dönsuðum fyrst við og lagið sem fylgdi okkur alla tíð. Margs er að minnast og margs er að sakna en þótt mikil vinna og veikindi hafi einkennt líf þitt nýttum við tímann vel. Öll ferða- lögin innanlands sem utan, fót- boltaleikirnir, spilakvöldin, veiði- ferðirnar, matarboðin, samveran með börnunum okkar þremur og stórfjölskyldunni allri. Oft var glatt á hjalla og stutt í hláturinn og þinn einstaka húmor. Dóttir okkar sagði um daginn: „Mamma, ég hef komið á öll krummaskuð á landinu og það er ykkur pabba að þakka.“ Þú hafðir endalausan áhuga á landafræði og þar skákaði þér enginn. Síðasta deginum þínum varðir þú í Blöndu með einstökum vin- um í veiðiklúbbnum og yngsta syni okkar, honum Sveini. Þú tókst nokkrar myndir af honum með aflann þann dag og mun það verða dýrmætt fyrir hann seinna meir. Þó að leiðir okkar hafi skilið fyrir rúmlega fjórum árum hélst vináttan ætíð. Vinátta sem er börnunum okkar sem nú syrgja föður sinn svo mikilvæg. Þú varst fyrirmynd þeirra og elskaðir þau skilyrðislaust. Minningin lifir. Arna Ívarsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Sigurbjörn Sveinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLI VALUR HANSSON, fv. garðyrkjuráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands, lést á Hrafnistu mánudaginn 7. september að loknu löngu og farsælu lífi. . Rolf E. Hansson, Herdís Sveinsdóttir, Ómar B. Hansson, Guðríður A. Kristjánsdóttir, Óttar Rolfsson, Sunna K. Símonardóttir, Nína Margrét Rolfsdóttir, Björgvin H. Björnsson, Jakob Rolfsson, Margrét Ó. Halldórsdóttir, Jökull Rolfsson, Óli Valur Ómarsson, Björn Dúi Ómarsson, Embla Sól, Iðunn og Björn Erik. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EVA KRISTJÁNSDÓTTIR, lést að Droplaugarstöðum 6. september. Bálför hennar verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 13. . Guðbjörg Eva Kristjánsdóttir, Þórdís Anna Kristjánsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Stefán Magnússon og fjölskyldur. Bróðir okkar, frændi og vinur, STEFÁN JÓNSSON frá Freyshólum, Fljótdalshéraði, lést á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði þann 6. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn laugardaginn 12. september kl. 14. . Baldur og Bragi Jónssynir og aðrir aðstandendur. Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI THORODDSEN matreiðslumeistari, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 2. september, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. september kl. 13. . Bryndís Þ. Hannah, Arnar Eggert Thoroddsen, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Curver Thoroddsen, Eva Engilráð Thoroddsen, Friðrik Hjörleifsson, Ísold, Karólína, Hrafnkell Tími, Sunna og Reginn. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, ÞÓRA ÞORVALDSDÓTTIR, Síðumúla, Hvítársíðu, verður jarðsungin frá Reykholtskirkju laugardaginn 12. september kl. 11. . Eyjólfur Andrésson, Andrés Eyjólfsson, Þorvaldur Eyjólfsson og aðrir vandamenn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HERBORG HALÍMA FRIÐJÓNSDÓTTIR, lést á heimili sínu þann 7. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. september kl. 15. . Ólafur Alí Halldórsson, Anna María Halldórsdóttir, Erna María Halldórsdóttir, Friðjón Stefán Guðjohnsen, makar, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.