Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Minnsta atvinnuleikhús á höfuð- borgarsvæðinu er að hefja sitt fimmta starfsár en að sjálfsögðu er verið að tala um Gaflaraleikhús Hafnarfjarðar. „Verkin sem við setjum á svið í vetur verða fimm talsins eins og starfsárin og þar af eru tvö ný verk en þrjú verk frá síðasta leikári,“ segir Gunnar Helgason, leikstjóri, leikari og rithöfundur. „Verkið Unglingurinn hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá okkur en við hefjum starfsemina í haust með námskeiði fyrir unglinga í samstarfið við Menningarhúsið, Centrum Kultury í Wroclaw í Pól- landi en þangað fóru strákarnir með verkið í sumar. Rétt er að nefna að sýning þeirra á föstudag- inn verður sú eina í vetur og um leið þeirra síðasta sýning á þessu tiltekna verki.“ Það eru þeir Ólafur Gunnar Gunnarsson og Arnór Björnsson sem skrifuðu verkið og leika í því sjálfir. Hvítt er nýtt verk sem ætlað er yngstu áhorfendum og segir Gunn- ar þetta margverðlaunaða verk fá íslenskan búning. „Við frumsýnum verkið í janúar en það er sett upp í samstarfi við Virginiu Gillard, sem einnig leikur í sýningunni. Við fengum sérstakt leyfi til að íslenska verkið og setja það í íslenskan búning en það hefur almennt ekki fengist að gera breyt- ingar á því í öðrum löndum sem það hefur verið sett upp í.“ Í lok febrúar færir leikhúsið okk- ar svo Góða dátann Svejk eftir Jar- oslav Hasek en í útfærslu Karls Ágústs Úlfssonar. „Ég hef ekki lesið Góða dátann Svejk síðan ég var barn en man alltaf eftir því hvað mér þótti það ofboðslega skemmtileg saga. Þetta verður flott sýning og í ljósi flótta- manna, borgarstyrjalda og þess hörmungarástands sem blasir við okkur í dag verður áhugavert að rifja upp hvað Svejk hefur um slíkt að segja.“ Undirbúningur í 49 ár Verkin Bakaraofninn og Konu- börn mæta aftur frá því í fyrra og segir Gunnar það fyrst og fremst vegna vinsælda þeirra. „Bæði þessi verk voru að ljúka sýningu í fyrra fyrir fullu húsi og við teljum þau eiga meira inni. Í Bakaraofninum er líka risastór galdur sem hefur tekið 49 ár að undirbúa. Konubörn er svo skyldu- sýning fyrir allar mömmur og ekki síst feður en eftir að hafa séð sýn- inguna með syni mínum kinkuðum við kolli og sögðum báðir, já það er svona sem unglingsstelpur hugsa. Flott sýning hjá hæfileikaríkum stelpum.“ Gaflaraleikhúsið að hefja leikárið Morgunblaðið/Eggert Leikhús Gunni og Felix halda áhorfendum heldur betur á tánum í leikritinu Bakaraofninn ásamt Ævari Þór, vísindamanni sem börnin þekkja vel. Gunnar Helgason Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Að vanda bjóðum við upp á fjöl- breytta dagskrá með blöndu af gam- alli tónlist og nýjum verkum fyrir litla hópa og stóra,“ segir Rut Ing- ólfsdóttir, fiðluleikari og listrænn stjórnandi Kammersveitar Reykja- víkur, en 42. starfsár sveitarinnar hefst nk. föstudag í Langholtskirkju kl. 20 með tónleikum helguðum eist- neska tónskáldinu Arvo Pärt. Alls heldur Kammersveitin ferna tón- leika á starfsárinu. „Arvo Pärt fagnar áttræðisafmæli sínu föstudaginn 11. september og okkur fannst vel við hæfi að bjóða til veislu á sjálfan afmælisdaginn. Mörgum eru tónleikar Kammer- sveitarinnar með verkum Arvos Pärts árið 1998 enn í fersku minni, en þá kom Pärt hingað til landsins í fyrsta sinn og var viðstaddur tón- leikana í Langholtskirkju,“ segir Rut og tekur fram að sjálf minnist hún tónleikanna með mikilli hlýju. Kirkjur og listasöfn heilla Spurð nánar um efnisskrá upp- hafstónleikanna segir Rut að Kammersveitin muni bjóða áheyr- endum að kynnast vel verkinu Frat- res, sem er eitt þekktasta verk Pärts. „Það er frá tónskáldsins hendi til í ótal útgáfum fyrir mis- munandi hljóðfæraskipan,“ segir Rut, en á tónleikunum er verkið fyrst flutt í útsetningu fyrir strengjasveit og slagverk, síðan fyr- ir fjóra slagverksleikara, þá strengjakvartett, því næst blásara- oktett og slagverk og loks fyrir fiðlu, strengjasveit og slagverk. „Okkur fannst spennandi að gera þetta svona og sýna hvað meginstefið verður ólíkt þegar mismunandi hljóðfærahópar spila. Þessar ólíku útgáfur gefa innsýn í ótrúlegan tón- heim þessa frábæra tónskálds.“ Eftir að hafa flutt tónleika sína í Hörpu frá því hún var opnuð leitar Kammersveitin í vetur aftur á gaml- ar slóðir og verða jólatónleikar sveit- arinnar haldnir í Áskirkju 20. des- ember. „Í sannleika sagt höfum við undanfarin ár saknað hins fallega, hvetjandi og fjölbreytta andrúms- lofts sem kirkjur og listasöfn bjóða upp á. Vissulega er hljómburðurinn góður í Norðurljósum, en það er svo margt annað sem er mikilvægt á tónleikum en hljómburðurinn þó hann sé mikilvægur,“ segir Rut og tekur fram að það sé ekkert laun- ungarmál að húsaleigan í Hörpu sé Kammersveitinni ofviða. Heilladrjúgt samstarf Á efnisskrá jólatónleikanna verða Konsert í a-moll BWV 1044 fyrir flautu, fiðlu og sembal og Branden- borgarkonsert í D-dúr nr. 5 BWV 1050 eftir Johann Sebastian Bach auk verka eftir Heinrich I.F. von Bi- ber, Georg Muffat og Johann Hein- rich Schmelzer. „Við buðum Jeremy Joseph, sem er frábær ungur semb- al- og orgelleikari, að leika einleik með okkur á tónleikunum og vildum leyfa honum að sýna sína færni,“ segir Rut og bendir á að Joseph hafi haft frjálsar hendur um val verka á efnisskránni. „Okkur þótti skemmti- leg hugmynd að hafa nokkra forvera Bachs með og sjá úr hvaða jarðvegi hann kom.“ Líkt og áður leikur Kammersveitin á Myrkum músík- dögum og verða tónleikar hennar í Norðurljósum Hörpu 30. janúar. „Að þessu sinni leggjum við áherslu á kammerverk eftir Atla Heimi Sveinsson, en með honum í för verða tvö af okkar fremstu tónskáldum af yngri kynslóðinni, þau Anna Þor- valdsdóttir og Gunnar Andreas Kristinsson,“ segir Rut og bendir á að samstarf Kammersveitarinnar og Atla Heimis hafi alveg frá fyrstu ár- um Kammersveitarinnar verið ein- staklega heilladrjúgt. „Nú á haustmánuðum munum við gefa út diskinn I call it með kamm- erverkum Atla Heimis sem hafa reglulega verið á efnisskrá hjá okk- ur í gegnum árin,“ segir Rut, en diskurinn er einn af þremur sem Kammersveitin sendir frá sér í vet- ur. Hinir tveir diskarnir eru Tón- verk fyrir Kammersveitina sem er tvöfaldur diskur með verkum tíu ís- lenskra tónskálda og Kvöldstund með Beethoven og Dvorák. Mikil viðurkenning „Kammersveitin hefur á undan- förnum árum fengið glæsilega dóma fyrir diska sína í erlendum tónlistar- tímaritum. Okkur finnst mjög mikil- vægt að kynna íslenska tónlist bæði á tónleikum innanlands og erlendis og á hljómdiskum. Fyrir flesta segir það ekki neitt að sjá nótur að tón- verki. Jafnvel hljóðfæraleikarar eiga erfitt með að heyra fyrir sér hvernig verk muni hljóma. Það er því algjör- lega ómissandi til kynningar á ís- lenskri tónlist að upptökur séu að- gengilegar. Útgáfur Kammer- sveitarinnar á verkum erlendra tónskálda á borð við Bach og Beethoven eru hugsaðar fyrir okkur sjálf og íslenskan markað. Það er ómetanlegt að eiga og hlusta á plöt- ur með þeim sem maður þekkir, því maður þekkir tóninn hjá hverjum og einum, sem gerir tónlistina fyrir vik- ið enn persónulegri.“ Lokatónleikar starfsársins verða á Kjarvalsstöðum 8. mars undir yfir- skriftinni B-in á 20. öld. „Oft er talað um stóru B-in þrjú í tónlist og þá er átt við Bach, Beethoven og Brahms. Okkur fannst skemmtilegt að nota B-in á 20. öld og hafa þau fjögur, þ.e. Benjamin Britten, Béla Bartok, Alb- an Berg og Luciano Berio. Þegar búið var að velja tónskáldin var bara að finna góð verk eftir þá,“ segir Rut og tekur fram að það hafi ekki verið erfitt. Stjórnandi í verki Berios verður Bjarni Frímann Bjarnason og einsöngvari Hanna Dóra Sturlu- dóttir. Ekki er hægt að sleppa Rut án þess að heyra hvaða þýðingu tilnefn- ingin til Tónlistarverðlauna Norður- landaráðs 2015 hefur fyrir Kammer- sveitina, en ekki verður tilkynnt um verðlaunahafa fyrr en við afhend- inguna sjálfa 27. október nk. í Hörpu. „Það eru ellefu tilnefndir, bæði hópar og einstaklingar. Þetta er óneitanlega mikil viðurkenning á starfi Kammersveitarinnar sem við höldum úti þessi árin við vægast sagt mjög erfiðar aðstæður.“ „Innsýn í ótrúlegan tónheim“  42. starfsár Kammersveitar Reykjavíkur hefst með tónleikum til heiðurs tónskáldinu Arvo Pärt  Von á þremur nýjum diskum, þ. á. m. diski með kammerverkum Atla Heimis Sveinssonar Kát Kammersveit Reykjavíkur heldur ferna tónleika á 42. starfsári sínu og leikur gömul verk í bland við ný. Tónskáldið Arvo Pärt fagnar 80 ára afmæli sínu nk. föstudag. NO ESCAPE 5:45,8,10:15 TRANSPORTER REFUELED 8 STRAIGHTOUTTACOMPTON 5, 10:20 ABSOLUTELY ANYTHING 6 THE GIFT 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.