Morgunblaðið - 09.09.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
„Yrðlingurinn er alveg hrikalega sætur og gæfur,“ seg-
ir Kristín Hávarðsdóttir, sem var á Mjóeyri við Eski-
fjörð í fyrradag og tók þessar skemmtilegu myndir.
Sonur hennar Haukur Freyr Ásgeirsson var með
henni í för og lék sér við yrðlinginn, sem brást vel við
atlotum drengsins. Drengurinn hélt á yrðlingnum þó að
mynd hafi ekki náðst af því.
Yrðlingurinn býr undir sólpallinum á bænum Mjó-
eyri. Hundurinn á bænum, sem er af labrador-tegund,
og yrðlingurinn eru hinir mestu mátar og leika sér
gjarnan saman. Þeir tuskast stundum sín á milli með
skinn af hreindýri.
Þegar yrðlingurinn stálpast og er orðinn leiður á
samvistum við manninn hleypur hann upp til fjalla, að
sögn Kristínar.
Eftir samveruna með yrðlingnum í fyrradag vilja
mæðginin ólm taka að sér yrðling og búa honum stað
við heimili sitt. „Ég held að ég þurfi að fara í samninga-
viðræður við manninn minn,“ segir Kristín og hlær.
Hún bendir á að á heimili sínu í Neskaupstað sé kjörið
fyrir yrðling að halda til því að garðurinn liggi beint
upp í fjall.
Veðurblíða hefur leikið við Austfirðinga undanfarið
og var veðrið í fyrradag „yfirnáttúrulegt“ að sögn
Kristínar. „Þetta var alveg dásamlegt og langbesti dag-
ur sumarsins, logn og blíða.“ thorunn@mbl.is
Ungviðið leikur sér í blíðunni
Klappar Haukur Freyr Ásgeirsson klappar yrðlingnum á Mjóeyri við Eskifjörð sem hann vildi glaður eiga.
Ljósmyndir/Kristín Hávarðsdóttir
Í leik Hundurinn á bænum af labradortegund og yrðlingurinn leika sér.
Flottur Yrðlingurinn stækkar og þroskast smám saman og verður grár.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Stærðir 36-52
Ný buxnasending frá
Ný vetrarlína
í buxum
Haustlitir
GERRY WEBER - GARDEUR
ROXY - PERFECT-FIT
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is
Lægra
verð
v/gengis-
lækkunar
Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur
örva brennslu ogmeltingu og eru
bjúglosandi. Sérstaklega er mælt
með vörunni til að hreinsa líkamann.
Colonic Plus
Kehonpuhdistaja
www.birkiaska.is
svokallaðri Gljúfurleit og halda þar
áfram í dag og reka féð í Hólaskjól.
Leitað er í Stangarfelli og Fossárdal
á fimmtudagsmorgun og safnið rekið
í Fossnes. Þá er aðeins um tveggja
tíma rekstur í réttina. Þar hefjast
réttastörf klukkan 11 á föstudag.
Skipta liði
Framan af voru fjallmenn Skeiða-
og Flóamanna með Gnúpverjum og
hluti afréttarins smalaður sameigin-
lega. Þeir fóru í Vesturleit og Aust-
urleit á Skeiða- og Flóamannaafrétti
í gær og smám saman kemur liðs-
auki í báða flokkana.
Smalamennskur hafa gengið vel,
að sögn Lilju. Ekkert fé var í Arnar-
felli hinu mikla eða Þjórsárverum en
sjö kindur fundust á Fjórðungs-
sandi. Það er svartur sandur á
Sprengisandi og varla stingandi
strá. Lilja taldi að þær hefðu verið á
einhverri ferð á milli staða. helgi-
@mbl.is
Gallalausir dagar
á hálendinu
Vel hefur viðrað í lengstu leitunum
Sjö kindur fundust á Fjórðungssandi
„Við höfum farið vel út úr lægð-
unum. Verið í mjög góðu veðri, í
björtu oftar en ekki,“ segir Lilja
Loftsdóttir, fjalldrottning á Gnúp-
verjaafrétti.
Laugardagurinn
var eini dagurinn
sem fjallmenn
þurftu að klæðast
regngöllum eftir
að smala-
mennskur hófust.
Yfirleitt hefur
verið þokkalega
bjart við smala-
mennskurnar en
nokkur blástur, eins og Lilja tekur
til orða. „Við höfum verið heppin.“
Fjallferðin á Gnúpverjaafrétt tek-
ur níu daga og sá tíundi er rétta-
dagurinn í Skaftholtsrétt á föstudag.
Þetta eru einhverjar lengstu leitir í
landinu og eru fjallmenn því vanir að
fá ýmis veður.
Fjallmenn Gnúpverja voru í gær í
Lilja Loftsdóttir
Samband ungra sjálfstæðismanna
(SUS) leggst gegn því að framlög
ríkisins til kirkjumála verði aukin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
SUS. Þar segir að í fjárlagafrum-
varpi ársins 2016 sé gert ráð fyrir
að framlög til málaflokksins hækki
um tæpar 410 milljónir króna.
„Framlög ríkisins til Þjóðkirkj-
unnar hækka um rúmar 70 milljónir
króna eða 4,8% á milli ára. Það á
ekki að vera eitt af hlutverkum hins
opinbera að standa í rekstri trú-
félaga. Óeðlilegt er að ríkisvaldið
geri einu trúfélagi hærra undir
höfði en öðrum og mikilvægt er að
gætt sé jafnræðis svo öll trú- og
lífsskoðunarfélög sitji við sama
borð. Er því brýnt að aðskilja ríki
og kirkju sem allra fyrst. Þeir ein-
staklingar sem kjósa að tilheyra
trú- eða lífsskoðunarfélagi komi að
því að reka og fjármagna viðkom-
andi félag,“ segir enn fremur.
SUS fagnar fyrirætlun fjármála-
ráðherra að lækka tekjuskatt á ein-
staklinga og að stefnt sé að fækkun
skattþrepa úr þremur í tvö.
Einnig fagnar SUS því að stefnt
sé að afnámi tolla á fatnað og skó
um áramót og hvetur fjármálaráð-
herra til að afnema einnig tolla af
tilteknum matvörum við fyrsta
tækifæri.
Vilja að hið opinbera
hætti rekstri trúfélaga
Í framhaldi af símafundi Gunnars
Braga Sveinssonar, utanríkisráð-
herra, og Frederica Mogherini, ut-
anríkismálastjóra ESB, funduðu ís-
lenskir embættismenn með full-
trúum utanríkisþjónustu Evrópu-
sambandsins í gær um þá stöðu
sem upp er komin á Íslandi í kjöl-
far aðgerða Rússa sem settu inn-
flutningsbann á sjávarafurðir frá
Íslandi. Fram hefur komið að
tollaívilnanir hafi verið til umræðu
á fundinum.
Staða mála var útlistuð og
skipst á upplýsingum. Sammælst
var um að sérfræðingar frá Ís-
landi og sjávarútvegs- og utanrík-
isskrifstofum Evrópusambandsins
myndu í kjölfarið funda eins fljótt
og kostur væri.
Sérfræðingar funda við fyrsta tækifæri