Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 Eik í blóma Þær eru komnar með húsnæði hjá Lygnu fjölskyldumiðstöð við Síðumúla og hafa undanfarið verið í óða önn að undirbúa námskeið fyrir verðandi foreldra. Svo hafa þær látið útbúa fyrir sig ljómandi laglegt og lit- ríkt lógó sem sýnir eik í blóma. Nafn- ið Eik er ekki úr lausu lofti gripið. „Stofn eikarinnar er sterkur og ræt- urnar djúpar auk þess sem eikin hef- ur margar greinar sem vísa í fjöl- skylduna og öll þau mörgu mál sem hún þarf að fást við í daglega lífinu. Eik er líka skammstöfun á ensku orð- unum empowerment, information og knowledge, eða valdeflingu, upplýs- ingar og þekkingu, sem hugmynda- fræði okkar byggist á.“ Þótt þær fyndu samhljóm þegar þær ræddu saman um reynslu sína eftir barnsburð var munurinn sá að á Matthildi hvíldi ýmislegt sem Ing- unni Ástu hafði helst legið á hjarta ár- ið áður, eða eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Úr því að við upplifðum með- gönguna, móðurhlutverkið, aðstæður, áreiti og umhverfið með svipuðum hætti datt okkur í hug að sama væri uppi á teningnum hjá öðrum nýbök- uðum mæðrum. Okkar kenning er sú að fæðing barns hafi miklu meiri áhrif á líf foreldra en þeir gera sér fyrir fram grein fyrir. Við leituðum okkur upplýsinga, ræddum við marga ný- bakaða foreldra til að sannreyna kenninguna og gerðum bæði form- legar og óformlegar kannanir. Meðal annars sendum við fjölda spurninga til einstaklinga og hópa á Facebook og fengum ótrúlega góða svörun. Annars vegar buðum við fólki að senda okkur svörin beint þannig að allir gætu lesið eða í einkaskilaboð- Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbli.is Ingunn Ásta Sigmundsdóttir,uppeldis- og menntunarfræð-ingur, og Matthildur Jó-hannsdóttir félagsráðgjafi kynntust í mömmuhópi fyrir sex ár- um. Ingunn Ásta var nýbúin að eign- ast annað barn sitt af þremur og Matthildur sitt fyrsta af þremur. Þegar þær fóru að bera saman bæk- ur sínar kom upp úr dúrnum að sömu spurningar um börn og barna- uppeldi og ekki síst líðan og inn- byrðis samband nýbakaðra foreldra brunnu á báðum. Þeim fannst svör við sumum spurninganna vera óað- gengileg og því vaknaði hjá þeim hugmynd um að stofna saman fræðslu- og fjölskylduráðgjöf eftir að þær hefðu aflað sér frekari mennt- unar. „Við teljum fræðslu vera bestu forvörnina gegn erfiðleikum sem upp geta komið innan fjölskyldna og í samskiptum foreldra í kjölfar barn- eigna,“ segja eigendur hins nýstofn- aða fyrirtækis, Eikar ráðgjafar. Fæðing barns reynir á samband foreldra Þær eru ungar, vel menntaðar, metnaðarfullar og fullar eldmóðs. Báðar þriggja barna mæður, sem hafa ómældan áhuga á börnum, barnauppeldi og heilbrigðu og góðu fjölskyldulífi – sínu sem og annarra. Ingunn Ásta Sigmundsdóttir og Matthildur Jóhannsdóttir hafa stofnað fræðslu- og fjölskylduráðgjöfina Eik ráðgjöf, sem þær vonast til að geti stoppað svolítið upp í gatið sem þeim finnst vera í fræðslu fyrir verðandi foreldra. Morgunblaðið/Kristinn Nýburi Markmið námskeiðsins, Barnið komið heim, hvað svo? er m.a. að veita hagnýtar upplýsingar um umönnun barns og efla sjálfstraust foreldra. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brjóstagjöf Ingunn Ásta og Matt- hildur segja brjóstagjöf taka heil- mikið á og bindingin vegna hennar komi mörgum á óvart. NÝLÖGUÐ HUMARSÚPA Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 LÚÐUSNEIÐAR AÐEINS 1990 KR/KG Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim GLÆNÝ LÍNUÝSA KLAUSTUR- BLEIKJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.