Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 20% afsláttur af öllum ljósum, lömpum og skermumLjósadagar Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 5516646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga frá 10-18, lau. 11-15 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Bjarni St. Ottósson bso@mbl.is Dr. Eduardo Pereira er brasilískur lögfræðingur sem hefur starfað við olíu- og gasiðnaðinn í átta ár. Hann hélt fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík gær um lagaumhverfi iðn- aðarins, sem iðulega þarf að eiga við erlendar ríkisstjórnir sem fara með eign auðlindanna. Hann segir fyrstu ákvörðunina sem olíufjárfestir verði að taka vera þá hvaða áhættuþættir séu ásættan- legir. „Til dæmis eru fyrirtæki að starfa í Kúrdistan, sem er stjórn- skipuleg martröð. Samningar þar standast ekki stjórnarskrá Íraks og starfsemin öll utan laganna. Af hverju fjárfestir fólk í löndum þar sem samn- ingar eru ekki framfylgjanlegir? Af því þar er nóg af olíu og ef byrjað er strax og unnið í nokkur ár áður en skellur í lás þá græðir maður samt.“ Erfið samkeppnisstaða Á Íslandi eru mögulegar olíulindir á Drekasvæðinu langt frá landi og dýrt að vinna þær, séu þær vinnan- legar. Þar segir hann samkeppnis- stöðu landsins veika. „Af hverju ætti ég að eyða 100 dollurum á Íslandi sem breytast í 150 dollara eftir tíu ár, ef ég get eytt sömu 100 dollurum í Líbýu og fengið 500 dollara aftur eftir tvö ár. Þetta er alþjóðleg samkeppni um fjárfestingu og að því leyti stendur Ís- land ekki vel.“ Þá er samkeppnislöggjöfin allt önnur en var þegar stóru ríkis- olíufélögin eins og Statoil og Petro- bras uxu og döfnuðu í faðmi ríkisein- okunar sem skyldaði fyrirtæki til samstarfs við þau. Þetta segir Pereira ekki hægt undir núverandi Evrópu- löggjöf, sem Pólverjar hafi til dæmis fengið að reyna þegar tilraunir þeirra til innlendrar framleiðsluaukningar steyttu að hluta til á samkeppnislög- um ESB. Fjárfestingavernd Fyrir fjárfesta sem vilja treysta stöðu sína gagnvart erlendri ríkis- stjórn segir Pereira helst leitað þriggja ráða. Í fyrsta lagi sé um að ræða stöðugleikaskilmála í samning- um þar sem tekið er fyrir að breyt- ingar verði gerðar á samningnum eft- irá. Í öðru lagi sé um að ræða tvíhliða fjárfestingasamninga heimaríkis fjár- festisins og fjárfestingarlandsins. Við það gerist heimaríkið aðili að hugs- anlegum deilum þar sem skuldbind- ing liggi fyrir um að heiðra gerða samninga milli þjóðanna. Í þriðja lagi geti menn leitað til MIGA, arms Alþjóðabankans, sem býður tryggingu gagnvart pólitískri íhlutun og óstöðugleika. Flest þróun- arríki eigi í samstarfi við bankann og veigri sér við því að setja það í upp- nám, segir Pereira. Sætta alla hagsmunaaðila Við gerð fjárfestingasamninga seg- ir Pereira lykilatriði að ganga úr skugga um að allir hagsmunaaðilar sjái hag sinn í því að virða samning- inn. Þar á hann ekki við það að upp- fylla lagalegar grunnskyldur og halda ríkisstjórninni góðri heldur að sam- félagið á staðnum taki starfsemina í sátt, en iðnaðurinn hefur langa og slæma reynslu af deilum við innfædda í fjárfestingarlöndum sínum. Mikil- vægt sé að læra af henni. Heildstæð sátt lykilatriði AFP Umdeilt Mótmælendur töfðu för olíuborpalls sem var á leið til Alaska í júní.  Mikilvægt að læra af alþjóðlegri reynslu olíuþjóða finnist olía hér, segir sérfræð- ingur  Olíuiðnaðurinn flókinn heimur alþjóðahagsmuna  Aðstæður hér erfiðar Hollensk veiki » Pereira varar eindregið við þeim vandamálum sem geta fylgt skjótum olíugróða. » Mörg dæmi eru um slíkt en nýlega fór Gana flatt eftir of- fjárfestingu með tilheyrandi skuldum eftir að miklar olíu- lindir fundust við landið. Ameríku og Evrópu. Tveimur nýj- um vélum verður bætt við flota Ice- landair næsta sumar þegar tvær 262 sæta Boeing 767-300 breiðþot- ur verða teknar í notkun. Með því fer floti félagsins upp í 26 farþega- þotur, en nýju vélarnar taka fleiri farþega en Boeing 757 sem félagið notar annars. Leiðakerfi Icelandair hefur nærri þrefaldast að umfangi frá árinu 2009, ef spár fyrir árið 2016 ganga eftir, en þá voru farþegar fé- lagsins 1,3 milljónir. Icelandair gerir ráð fyrir að fjölgun farþega á næsta ári verði um 450 þúsund og að heildarfjöldi þeirra verði um 3,5 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar um áætlanir fyrir millilandaflug árið 2016. Framboð í flugáætlun Icelandair mun aukast um 18% á milli ára og verður þremur nýjum áfangastöð- um bætt við. Þeir eru Chicago, Montreal og Aberdeen, auk þess sem ferðum verður fjölgað til fjöl- margra annarra borga í Norður- Spá 3,5 milljónum farþega á næsta ári  Icelandair með 26 vélar næsta sumar Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Icelandair áætlar að farþegar verði þrefalt fleiri á næsta ári en 2009. ● Kröfuhafar slitabús Glitnis sam- þykktu á kröfuhafafundi í gær heimild slitastjórnar til þess að undirbúa nauðasamninga á grundvelli fyrirliggj- andi tillögu um stöðugleikaframlag. Slitastjórnin hefur nú 114 daga til að fá nauðasamning staðfestan af dóm- stólum og leggja fyrir kröfuhafa, áður en skattur leggst á eignir búsins í stað stöðugleikaframlags. Jafnframt var á fundinum samþykkt stofnun tæplega tíu milljarða króna sjóðs sem ætlað er að tryggja skað- leysi slitastjórnar Glitnis vegna hugsan- legra málsókna vegna starfa hennar. Kröfuhafar samþykktu stöðugleikaframlagið                                     !!" "!# # # #" "! $! %%" ## &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 %% %# !!  " ##  ## "!" $!" %$!# "!# # %!" !# " #  #"$ " $!  % # # ## Í júní, júlí og ágúst flutti Wow air samtals 295 þúsund farþega, sem er 45% fjölg- un sé miðað við sömu mánuði í fyrra. Í ágúst ein- um flutti félagið 107 þúsund far- þega, sem jafn- framt eru 45% fleiri farþegar en í sama mánuði 2014. Sætanýting var 95% en framboðnum sætiskílómetrum fölgaði um 65% í ágúst frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu frá Wow air er haft eftir Skúla Mogensen forstjóra að aldrei hafi félagið flutt jafnmarga far- þega í einum mánuði og nú í ágúst. „Þetta er langbesta sumar WOW air frá stofnun félagsins,“ segir Skúli. Góð nýting hjá Wow Skúli Mogensen  295 þúsund farþeg- ar með Wow í sumar ● Alls nema hrein gjaldeyriskaup Seðlabanka Íslands það sem af er árinu 1,1 milljarði evra, að því er fram kemur í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Það samsvarar um 159 milljörðum króna á núverandi gengi. Í ágústmánuði keypti Seðlabankinn gjaldeyri fyrir 319 milljónir evra. Alls nam heildarvelta á millibankamarkaði með gjaldeyri 540 milljónum evra í ágúst og 434 millj- ónum evra í júlí. Seðlabankinn keypti fyrir 1,1 milljarð evra SÍ er stórtækur á gjaldeyrismarkaði. STUTTAR FRÉTTIR ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.