Morgunblaðið - 09.09.2015, Page 20
20 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
✝ Páll Magnús-son fæddist í
Reykjavík 24. júlí
1944. Hann varð
bráðkvaddur 30.
ágúst 2015.
Hann var sonur
hjónanna Þóru
Guðlaugar Þor-
steinsdóttur, f.
24.10. 1924 á
Sléttaleiti í Suður-
sveit, d. 30.6. 2005,
og Magnúsar Þórðarsonar, f.
10.4. 1915 í Reykjavík, d. 1.12.
1967. Seinni maður Þóru var
Gunnar Rósmundsson, f. 19.10.
1919, d. 22.1. 2008. Páll átti
eina systur, Lilju, f. 20.5. 1943,
gift Páli Ó. Bergssyni.
Páll lauk prófi frá Miðbæjar-
skólanum í Reykjavík 1958,
Gagnfræðaskóla verknáms
1961, Iðnskólanum í Reykjavík
1964, sveinsprófi í vélvirkjun í
Vélsmiðjunni Héðni 1965 og
hlaut meistararéttindi í þeirri
grein 1976. Hann lauk vél-
stjóraprófi i Vélskólanum í
Reykjavík 1967 og prófi frá
rafmagnsdeild sama skóla 1968.
arýklúbbi Kópavogs hin síðari
ár. Páll kvæntist Jóhönnu
Rögnvaldsdóttur 10. september
1966. Jóhanna er fædd 10.
október 1946 á Siglufirði. For-
eldrar hennar voru Rögnvaldur
S. Sveinsson og Margrét P. Jó-
hannsdóttir, búsett á Siglufirði.
Synir Páls og Jóhönnu eru 1)
Magni Þór, f. 16. júlí 1966,
kvæntur Elísabetu Örnu Helga-
dóttur, f. 1. júlí 1966. Börn
þeirra eru Tómas, f. 5. júní
1992, Helga, f. 18. október
1994, Gauti, f. 31. desember
2000, og Gunnur, f. 12. desem-
ber 2002. 2) Ingvi Már, f. 20.
maí 1972, kvæntur Sigríði
Kristínu Birnudóttur, f. 7. jan-
úar 1972. Dætur þeirra eru
Emilía, f. 30. júlí 2002, Karítas,
f. 5. apríl 2006, og Lovísa, f. 5.
apríl 2006.
Síðustu 15 árin hafa Páll og
Jóhanna byggt upp sælureit í
sinni gömlu sveit, Gnúpverja-
hreppnum. Þau dvöldu þar
löngum stundum, plöntuðu
trjám, byggðu og endurbættu
húsakost og nutu þess að vera í
sveitinni. Staðinn kölluðu þau
Sléttaleiti, eftir bernskuheimili
Þóru, móður Páls. Útför Páls
fer fram frá Áskirkju í dag, 9.
september 2015, kl. 13.
Hann vann hjá
Fosskraft hf. við
niðursetningu véla
í orkuverið við
Búrfell 1968-69 og
réðst sem vélfræð-
ingur til Lands-
virkjunar við Búr-
fellsvirkjun 1970.
Starfaði hann þar
til 1980 er hann
hóf störf við fjar-
gæslu virkjana
Landsvirkjunar; fyrst í stjórn-
stöðinni á Geithálsi og frá 1990
við Bústaðaveg. Árið 2005 flutti
hann sig yfir til Landsnets,
þegar það fyrirtæki var stofnað
út úr Landsvirkjun og sinnti
eftir það fjargæslu flutnings-
kerfis raforku allt til ársins
2012, er hann lét af störfum
eftir 42 ára samfellt starf innan
raforkugeirans.
Páll sat í hreppsnefnd Gnúp-
verjahrepps 1974-80 og tók
virkan þátt í starfi Vélstjóra-
félags Íslands; sat í samninga-
nefndum þess, orlofshúsanefnd
og stjórn félagsins 1982-96.
Hann var virkur félagi í Rót-
Palli. Hávaxinn, tággrannur
með skarpa andlitsdrætti. Mynd-
arlegur maður. Brosmildur og
skapgóður. Örlátur, hjálpsamur
og ósérhlífinn. Laghentur og
vinnufús. Áhugasamur um alla
menn og málefni. Elskaður og
dáður af öllum.
Palli. Ég sá hann fyrst tilsýndar
við Háskólabíó daginn sem við
Magni urðum stúdentar. Dökk-
hærður, í dökkum jakkafötum,
brosandi. Hann vissi þá ekki að ég
var búin að krækja í eldri soninn
og væri um það bil að ryðjast inn í
fjölskyldu hans. Skömmu seinna
vorum við formlega kynnt. Síðan
eru liðin tæplega 30 ár. Á þeim
tíma höfum við átt óteljandi stund-
ir saman. Allar góðar.
Palli var á allan hátt dásamleg-
ur maður. Alltaf tilbúinn að létta
undir með okkur Magna. Öll há-
skólaárin okkar sótti hann okkur á
bláa Volvonum í mat á hverju
laugardagskvöldi. Þegar Tómas,
fyrsta barnabarnið, fæddist lét
hann sig ekki muna um að passa
ungabarnið í vaktafríum sínum
svo við foreldrarnir kæmust í
vinnu og skóla. Á Noregsárunum
bárust reglulega pakkar frá Palla
og Góu, fullir af barnafötum, góð-
gæti og íslenskum dagblöðum.
Alltaf malt og Nóakonfekt fyrir
jólin og páskaegg um páskana.
Eggin komust þó aldrei óbrotin yf-
ir hafið, pósturinn sá til þess. En
best var að fá þau hjónin í heim-
sókn. Þegar við fluttum til Íslands
aftur var Palli að sjálfsögðu búinn
að dytta að húsinu okkar, mála,
gera við múrskemmdir og leggja
parket.
Börnunum var hann besti afi,
áhugasamur um þau, óþreytandi
að mæta á fótboltaleiki og tón-
leika. Fyrir nokkrum árum kom
Palli sérstaklega til mín því hann
langaði að þakka mér fyrir að hafa
gefið sér svona mörg barnabörn.
Um fátt hefur mér þótt vænna en
þessi orð hans. Örlátur var hann
við okkur öll. Bauð stórfjölskyld-
unni í tvígang til útlanda. Fyrst til
Kaupmannahafnar og í fyrra átt-
um við saman fullkomna viku í
Barcelona í tilefni sjötugsafmælis
hans. Óteljandi eru svo kvöldin
þar sem við höfum setið í stofu eða
kringum matarborð og bara kjaft-
að og hlegið, öll saman.
Palli og Góa. Pabbi og mamma.
Afi og amma. Þau hjónin hafa allt-
af verið nefnd í sama orðinu. Enda
gerðu þau allt saman. Í gömlu
sveitinni sinni, Gnúpverjahreppn-
um, hafa þau byggt upp landskika
sem nú er orðinn sannkallaður
sælureitur. Þar hafa þau ræktað
upp landið með ógrynni trjáa,
bætt sumarbústaðinn og byggt
gestahús svo vel færi um alla fjöl-
skylduna. Á þessum stað höfum
við notið lífsins við matargerð,
leiki og göngur. Klifið fjallstoppa,
spilað golf, kubb og alls konar
borðspil. Palli vann alla í Skrafli.
Við Palli vorum þó bara tvö um að
finnast ótrúlega gaman að leysa
Sudoku, þá sátum við í sófanum og
mauluðum uppáhaldsnammið okk-
ar beggja, súkkulaðirúsínur.
Palli. Betri mann er ekki hægt
að hugsa sér. Við söknum hans
óendanlega.
Elísabet Arna Helgadóttir.
Stutt er í að kynni okkar Páls
Magnússonar, mágs mín, hafi var-
að í 50 ár. Þessi hálfa öld hefur lið-
ið furðu hratt. Svo er það að allt í
einu kemur kallið. Páll nafni minn
er kvaddur á brott – án fyrirvara.
Svona kemur fljót tímans manni á
óvart. Maður finnur að mannlegur
kraftur og vitsmunir, litlir eða
miklir, fá engu ráðið.
Við Páll kynntumst þegar við
Lilja vorum að draga okkur sam-
an. Elstu börn okkar, álíka gamlir
drengir, komu síðan í heiminn og
þá hófst tími barnauppeldis og
þess ánægulega amsturs á líkum
tíma hjá okkur Lilju og hjá Palla
og Jóhönnu. Árin liðu, börnunum
fjölgaði og tíminn leið. Börnin uxu,
fundu sér lífsförunauta, eignuðust
börn og öfluðu sér öll góðrar
menntunar. Meira og minna er-
lendis en öll komu þau heim. Þann-
ig hefur tíminn liðið. Allt í þessu
fasta fari. Og barnalánið mikið.
Þessir þættir hafa tengt fjölskyld-
ur okkar sterkum böndum. Nú
finnst það vel.
Árleg jólaboð á Lokastígnum í
40 ár hjá Þóru, móður Palla og
Lilju, og Gunnari manni hennar,
voru hluti af tilverunni og síðan
Þóra lést verið hluti af jólahaldi
okkar. Svona er þetta. Palli verður
ekki meir með þar. Hann mun ekki
heldur líta við með jólapakka í af-
mæli yngsta sonar okkar á að-
fangadag. Kom á líkum tíma dags
á hverju ári.
Við upphaf kynna okkar
Páll Magnússon
✝ SigurbjörnSveinsson
fæddist 13. nóv-
ember 1969. Hann
varð bráðkvaddur
að kvöldi 31. ágúst
2015.
Sigurbjörn var
yngstur barna eft-
irlifandi föður síns,
Sveins Sigurbjörns-
sonar, og Matt-
hildar Þórhalls-
dóttur, en hún lést árið 2010.
Systkini Sigurbjörns eru Una,
ritari, fædd 1959, Þórhildur,
iðjuþjálfi, fædd 1962 og Bene-
dikt Steinar, smiður og ferða-
þjónustubóndi, fæddur 1965.
Sigurbjörn giftist Örnu Ívars-
dóttur árið 1995 en þau skildu
2011. Börn þeirra eru Karen,
háskólanemi, fædd 1993, Ívar,
húsinu Greifanum og starfaði
þar sem yfirþjónn og síðar varð
hann einn af eigendum Greifans
og framkvæmdastjóri hans allt
til ársins 2006. Það sama ár var
Veitingahúsið Greifinn seldur
og í framhaldinu festi hann
ásamt meðeigendum sínum
kaup á Hótel KEA, þar tók Sig-
urbjörn stöðu hótelstjóra allt til
ársins 2012. Eftir það hóf hann
störf hjá heildsölunni Ásbyrgi,
bæði sem meðeigandi og al-
mennur starfsmaður en til stóð
að skipta um starfsvettvang er
kallið kom. Sigurbjörn sat í
stjórnum ýmissa fyrirtækja á
starfsferli sínum, meðal annars
var hann mikill velunnari Knatt-
spyrnufélags Akureyrar og um
tíma varaformaður félagsins. Þá
var hann virkur í yngri-
flokkaráðum og studdi vel þau
félög og íþróttagreinar sem
börn hans og börn tengd honum
stunduðu.
Útför hans fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 9. sept-
ember 2015, kl. 13.30. Jarðsett
verður í Laufáskirkjugarði.
menntaskólanemi,
fæddur 1996 og
Sveinn, grunn-
skólanemi, fæddur
2002. Unnusta Sig-
urbjörns var Svala
Haraldsdóttir bók-
unarstjóri og á hún
tvo syni, Hákon
Arnar og Atla
Hrafn.
Sigurbjörn ólst
upp á heimili for-
eldra sinna að Ártúni, Grýtu-
bakkahreppi, og tók þátt í öllum
almennum sveitastörfum þegar
hann hafði aldur og getu til. Að
loknu almennu námi hóf hann
nám í framreiðslu á Hótel KEA
á Akureyri. Hann útskrifaðist
sem þjónn vorið 1991 frá Hótel-
og veitingaskóla Íslands. Eftir
námið hóf hann störf á Veitinga-
Elsku hjartans Sibbalingurinn
minn. Hvernig á ég að geta kvatt
þig og hvernig á lífið að geta hald-
ið áfram án þín?
Ég veit að þú myndir ekki vilja
að neinn hefði áhyggjur af þér
eða væri hryggur þín vegna, en
þannig er það nú samt, enda
varstu sá allra fallegasti maður
sem ég hef nokkurn tímann
kynnst, hvort sem er að utan eða
innan. Þú varst fallegur alveg í
gegn.
Þú fékkst ekki bestu spilin á
hendi í þessu lífi en hvernig þú
spilaðir úr þeim er öðrum til eft-
irbreytni. Tókst á við lífið með
æðruleysi, án fordóma, komst vel
fram við alla og með virðingu.
Hatur var ekki til í þínu hjarta en
þess í stað stór skammtur af ást
og kærleik til allra sem vildu
þiggja.
Ást þín á börnum þínum var
einstök, skilyrðislaus, stór og fal-
leg. Þú varst endalaust stoltur af
þeim, vildir allt fyrir þau gera þó
að þú værir ekki maður margra
orða. Börnin voru þér allt og þú
varst svo ótrúlega þakklátur fyrir
að eiga þau. Þú hefðir viljað gera
meira með þeim og hjálpa þeim
meira, en þú gerðir eins og þú
gast og þau vissu það enda eru
þessir þrír einstaklingar sérstak-
lega vel af Guði gerðir á allan
hátt.
Þú varst vinamargur og þekkt-
ir marga enda alltaf fullkomlega
vinur vina þinna.
Það sem einkenndi þig alla tíð
og allir heilluðust af í fari þínu var
húmorinn og vitleysan sem
stundum rann án afláts upp úr
þér. Stundum gat maður ekkert
gert nema hrist hausinn og spurt
„hvernig er þetta hægt?“.
Upp í hugann koma margar
sögur og fæstar prenthæfar enda
varstu snillingur í „neðanbeltis-
bröndurum“.
Það gleymist seint þegar gest-
ur á hótelinu kom hlaupandi nið-
ur af herbergjum með hárblásar-
ann í ljósum logum og henti
honum í fangið á þér og taldi
græjuna ekki virka sem skyldi.
Þú varst ekki lengi að afsaka
þetta. „This is supposed to be a
hairdryer, not hair-fire.“
Þú varst mikill KA-maður og
þér leiddist ekki að gera grín að
Þórsurum. En svo þegar þér var
bent á að bæði ég og Þórdís,
tengdadóttir þín, kæmum af 603-
svæðinu var svarið: „603 – þang-
að fer maður bara til að ná í stig
og kellingar.“
Þegar þú gargaðir yfir matar-
boðið að 87 ára gömul amma mín
væri að reyna við þig þegar hún
reyndi að gefa þér smá faðmlag.
Hún heilsaði þér bara með
handabandi þegar hún fór.
Þú elskaðir að prumpa og þá
helst þannig að það færi ekki
framhjá nokkrum manni og sagð-
ir svo: „Svala – við erum með
gesti, reyndu nú að vera smá
dönnuð.“
Þegar þú fórst með Ívar þinn í
búðina og kallaðir yfir alla hátt og
snjallt: „Ívar minn, vantar þig
ekki verjur?“ „Já, það fór auðvit-
að allur krafturinn í miðfótinn á
manni,“ sagðir þú reglulega enda
ekki vanur að ljúga.
Sögurnar eru óteljandi og erf-
itt að koma þeim niður á blað.
Við fengum ekki mörg ár sam-
an en þau voru yndisleg. Það sem
einkenndi þau var ást, hamingja,
vinátta, trúnaður og traust.
Þú lést mig alltaf finna að þú
elskaðir mig og umvafðir mig ást
og umhyggju, með þér leið mér
eins og ég væri fullkomin. Á milli
okkar var eitthvað svo óútskýr-
anlegt sem verður alltaf bara
okkar á milli og ég mun geyma í
hjarta mínu að eilífu.
Þú ert ást lífs míns.
Læt fylgja með eitt af mörgum
ljóðum sem þú samdir til mín:
Hugur minn og hjarta
er þitt,
Heitt ég hugsa til þín
mesta hjartagullið
mitt.
Eina ástin mín.
Sigurbjörn
Sveinsson
Umfjöllun um
slys á leik-
svæðum er þörf
og góð en því
miður gætti al-
varlegra rang-
færslna í umfjöll-
un Stöðvar 2 um
hreiðurrólur í
nýliðinni viku.
Rólan sem var
sýnd í fréttinni föstudaginn 4.
september er íslensk fram-
leiðsluvara Krumma ehf. og er
frábrugðin þeim rólum sem
umrædd slys urðu í.
Sú róla sem olli alvarlega
hryggbrotinu var hvorki seld
né framleidd af Krumma ehf.
Rólan er staðsett á lóð Hörðu-
vallskóla og hefur tvö en ekki
fjögur upphengi og þ.a.l. um-
talsvert meiri höggþunga. Það
einkennilega við fréttaflutning-
inn er að rólan sem þetta alvar-
lega slys varð í fær enga um-
fjöllun og hefur ekki verið
notuð í mynd við fréttaflutning-
inn, hvorki þann 4. né þann 5.
september. Rólan við Hörðu-
vallaskóla er frá Lappsett og
hefur tvívegis verið breytt á Ís-
landi, fyrst í byrjun, seinna
skiptið trúlega í kjölfar slyss-
ins. Rólan og fallvörnin undir
henni uppfylla ekki staðal um
leiktæki og þar af leiðandi ís-
lenska reglugerð um öryggi á
leiksvæðum. Upphengjur ról-
unnar eru einnig of síðar, sem
eykur umtalsvert á högg-
þungann.
Á síðu Umhverfisstofnunar
kemur fram að aðalskoðun leik-
svæða á að framkvæma einu
sinni á ári til að staðfesta ör-
yggi tækja, undirstöður þeirra
og umhverfi. Árið 2012 fengu
168 leiksvæði aðalskoðun á öllu
landinu, þar af voru 43 leik-
svæði á leik- og grunnskólum,
eða tæp 10% allra leik- og
grunnskóla landsins. Þrátt fyr-
ir að reglugerðin um öryggi
leiktækja hafi komið út árið
2002 er enn verið að eyða miklu
í ný leiksvæði sem uppfylla
ekki reglugerðarákvæðin. Í
góðri trú leitast sveitarfélögin
við að kaupa vöru sem uppfyllir
þessi ákvæði sem gerir það svo
ekki, og þar spilar samsetning,
uppsetning og undirlag einnig
stóran sess.
Sú róla sem var í mynd þann
5. september er með tvö upp-
hengi og er einnig innflutt,
framleidd af Proludic. Þegar
horft var á fréttina þar sem
rætt var við móðurina með ról-
una í bakgrunni sést að upp-
setningin er ekki rétt, upp-
hengjurnar eru of síðar.
Varðandi diskana sjálfa
(hreiðrin) eru margir framleið-
endur að þeim og mikill gæða-
og verðmunur. Fróðlegt væri
að fá nánari upplýsingar um
slysin sem Herdís Storgaard
vitnar í erlendis, hvaða diskar
þetta voru, hvort þeir hafi verið
vottaðir og af hverjum. Disk-
urinn er einn af afgerandi íhlut-
um rólunnar en efnisval á öðr-
um íhlutum, frágangur og hæð
skipta einnig máli. Hvernig var
t.d. ástand á legubúnaði í ról-
unni sem olli banaslysinu,
hversu há var rólan? Eflaust
hefur umrætt slys hefur verið
rannsakað vel og hægt að nálg-
ast upplýsingarnar ef leitað er
eftir því.
En það er alls ekki svo að
það verði aldrei slys í vottuðum
tækjum og fyrir um ári varð
fótbrot í vottaðri
hreiðurrólu frá
Krumma ehf.
Fyrirtækið
harmar mjög
slysið og hóf
rýnisvinnu á
hönnuninni, enda
kveður gæða-
stefna fyrirtæk-
isins á um það,
verði slys í leik-
tæki frá
Krumma ehf.,
þrátt fyrir að það uppfylli
reglugerð um öryggi leiktækja.
Í kjölfarið voru gerðar úrbætur
og niðurstaðan varð sú að nota
léttari disk með minna þvermál
og mýkri brún. Uppbygging
grindar og sveiflubúnaðar er
eins og áður en íhluturinn bæði
minni, léttari og mýkri.
Einnig var hugað að betri
takmörkun á hliðarsveiflu, en
talið var að hugsanlega hafi
hliðarsveifla átt þátt í um-
ræddu fótbroti.
Rólan í fréttinni þ. 4. septem-
ber er ný, hún hefur fjögur
upphengi. Fjögur upphengi
takmarka sveiflu og um leið
bæði höggþunga og halla í út-
sveiflu. Höggþunginn ræðst
einnig af því hversu margir
geta safnast í diskinn samtímis.
Öll slys ber að taka alvar-
lega, skoða, bæta úr hönnun ef
hægt er, en annars taka um-
rædda vöru af markaði, sýna
ábyrgð. Beinbrot eru alvarleg
slys. Reykjavíkurborg skoðaði
málið vel í kjölfar útboðs síð-
asta vor og ákvað að kaupa
hreiðurrólur með fjórum upp-
hengjum. Aðkoma sveitar-
félaga er misjöfn, sum horfa
meira til verðsins á meðan önn-
ur sýna meiri fagmennsku í
innkaupum. Eitt af því sem
skiptir máli þegar horft er til
öryggis leiksvæða er hvaða fall-
vörn er notuð við viðkomandi
tæki og eins ástand hennar og
viðhald. Þetta er mjög vanmet-
inn þáttur.
Krumma ehf. er vottað bæði
hjá TÜV NORD og Þýskalandi
og DTI Danmörku. Auk þess
er undirritaður meðlimur í
BUPL, fagfélagi í Danmörku
sem kemur að vinnu evrópsku
staðlanefndarinnar. Annar
þáttur sem oft er einnig van-
metinn er uppsetning og við-
hald. Til þess að bæta úr þessu
hefur Krumma haldið reglu-
lega námskeið í staðli um leik-
tæki sem lýkur með stuttu
prófi. Námskeið sem þessi
virka sem góð hvatning til þess
að kynna sér staðalinn betur og
þá um leið vera gagnrýnni.
Sveitarfélög hafa tekið vel í
þetta og gjarnan sent starfs-
menn sína.
Öll umræða um öryggi barna
er af hinu góða en í þessu tilfelli
hefði hún mátt vera faglegri.
Að lokum ábending til allra
með hreiðurrólur. Athugið bilið
undir lægsta punkt disksins
mælt frá yfirborði undir disk og
styttið í upphengjum ef bilið
mælist styttra en 40 cm. Með
tímanum hefur þetta bil til-
hneigingu til að styttast.
Fréttaflutning-
ur Stöðvar 2 um
hreiðurrólur
Eftir Hrafn
Ingimundar-
son
Hrafn Ingimundarson
» Því miður gætti
alvarlegra
rangfærslna í um-
fjöllun Stöðvar 2
um hreiðurrólur í
nýliðinni viku.
Eigandi Krumma ehf.