Morgunblaðið - 09.09.2015, Blaðsíða 25
sorgarfregn að Guðni mágur og
svili væri dáinn. Gat þetta virki-
lega verið? Við sem höfðum ver-
ið í símasambandi þremur dög-
um áður þar sem við ræddum að
það væri löngu orðið tímabært
að hittast. Ákveðið var að þegar
við kæmum heim færum við
saman út að borða eins og við
systur og makar höfum gert
annað slagið.
Guðni og Alda höfðu alltaf
nóg fyrir stafni. Ýmist að dytta
að húsinu heima eða í sumarbú-
staðnum í Skorradal sem var
þeirra paradís. Þeim féll aldrei
verk úr hendi. Guðni var ákaf-
lega vandaður og góður dreng-
ur, rólegur, skapgóður með ein-
dæmum, greiðvikinn, bóngóður
og snyrtimenni alveg fram í
fingurgóma. Hann var alveg sér-
staklega vandvirkur með allt
sem hann tók sér fyrir hendur.
Alda er ekki síður vandvirk og
unnu þau ákaflega vel saman,
hvort sem um var að ræða inni-
eða útivinnu. Móðir okkar Öldu
hafði oft orð á því hvað þau
væru vandvirk og ynnu vel sam-
an.
Alda og Guðni kynntust í
dansskóla og hafa síðan dansað
saman í gegnum lífið. Þau hafa í
nokkur ár verið í gönguhópi og
einnig farið eldsnemma á fætur
á morgnana til þess að taka þátt
í qi gong.
Margar eru útilegurnar og
ferðalögin sem við höfum farið í
saman gegnum árin. Þegar við
fengum svo lóð í Skorradal fór-
um við saman í að byggja bú-
stað. Hann var byggður í flekum
á efri hæðinni í húsi okkar en
settur saman uppfrá.
Húsið okkar var þá hálfklárað
og bjuggum við þá á neðri hæð-
inni. Seinna seldum við þeim
Öldu og Guðna okkar hlut í bú-
staðnum og hafa þau komið sér
ákaflega vel þar fyrir og notið
þess í ríkum mæli að dvelja þar.
Mörg handtök á Guðni einnig í
húsinu okkar sem við byggðum í
Haukshólunum.
Eftir að sonur okkar fékk
nafnið Guðni fór Guðni hennar
Öldu að kalla hann Nafna. Þetta
nafn festist við báða aðila og
hefur alla tíð verið notað af báð-
um fjölskyldunum.
Barngóður var Guðni og kom
það fram í ríkum mæli þegar
hann eignaðist sína tvo gullmola
sem hafa notið þess að vera með
afa sínum í Dísarásnum og
Skorradalnum. Missir þeirra er
mikill.
Aldís, móðir Guðna, hefur nú
misst báða syni sína sem báðir
hafa farið snögglega. Sendum
við henni okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Sömuleiðis einka-
syninum og tengdadótturinni.
Elsku systir og mágkona.
Missir þinn er mikill. Þú hefur
ekki eingöngu misst elskulegan
eiginmann heldur líka þinn
besta vin. Að gefast ekki upp og
að lífið heldur áfram. Þannig
vann móðir okkar systra úr
sorginni á sínum erfiðu tímum
þegar faðir okkar lést. Þannig
trúum við að þú gerir einnig
með þinni trú, seiglu og dugnaði.
Mundu að við Sigurbjarni verð-
um ávallt til staðar fyrir þig
þegar þú þarft á að halda.
Blessuð sé minning Guðna
með kæru þakklæti fyrir sam-
fylgdina.
Hulda og Sigurbjarni.
Fleiri minningargreinar
um GuðnaFrímann Guð-
jónsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
V20109 - Póstflutningar frá Keflavík til
Kaupmannahafnar
Ríkiskaup, fyrir hönd Íslandspósts ohf, kt 701296-
6139, óska eftir tilboðum í flugflutning á pósti frá
Keflavík til Kaupmannahafnar, til næstu fjögurra
ára
Verkefnið er í því fólgið að þjónusta Íslandspóst
með daglegum flugflutningi á öllum þeirra pósti
frá Keflavík til Kastrup flugvallar í Kaupmanna-
höfn. Umfang flutninganna er miðað við reynslu
síðustu ára og er póstmagnið áætlað um 120 - 125
tonn á næsta ári. Nánari upplýsingar er að finna í
útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is .
Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda
sem þess óska 25. október 2015 kl 11:00 hjá
Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa og postulínshópur II kl. 9.
Útskurðarhópur II,postulínshópur III kl. 13. Söngstund við píanóið
með Helgu Gunnarsdóttur,tónmenntakennara,kl. 13.45. Á miðv. á
haustönn verður Bókaspjall GuðnaTh. Jóhannessonar og hefst 7. okt.
Kristín Jónsdóttir,menntaskólakennari, verður með námskeið í
Brennu-Njáls sögu á miðv. frá og með 4. nóvember. Hvort tveggja
verður auglýst betur.
Bólstaðarhlíð 43 Spiladagur. Boccia kl. 10:40, glerlist og almenn
handavinna frá kl. 13:16.
Bústaðakirkja Félagsstarfið hefst hjá okkur 16. september með
haustferð, nánari upplýsingar og skráning er í kirkjunni í síma
553-8500
Dalbraut 18-20 Verslunarferð kl.14.40.
Dalbraut 27 handavinnustofa kl.8.
Félagsmiðstöðin Hraunbæ 105 Kaffiklúbburinn – Allir velkomnir í
kaffi kl 8:30 Opin handavinna – Leiðbeinandi kl. 9 Morgunleikfimi kl.
9:45 Hádegismatur kl. 11:30 Frjálst spil kl 13:00 Kaffi kl. 14:30
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Útskurður m/leiðb. 8.30-16.
Opinn hugflæðisfundur um söng, dans og leikfimistímann kl. 10, allir
velkomnir. Búið til úr pappa, m/leiðb. kl. 13-16, frábær námskeið.
Steinamálun m/leiðb. kl. 13-15. Félagsvist kl. 13.
Grensáskirkja Samverustund eldri borgara í safnaðarheimilinu kl.
14. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðríðarkirkja Fyrsta samvera férlagsstarf fullorðinna er
miðvikudaginn 9.september kl: 13:10. Bænastund, söngur, lestur og
skemmtilegar umræður um starfið í vetur. Sr.Karl V.Matthíasson tekur
vel á móti ykkur. Lovísa býður upp á kaffi og meðlæti sem kostar
kr.500.
Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8 - 16, molasopi í
boði til kl. 10.30, dagblöðin, púsl og tafl liggja frammi, morgunleikfimi
kl. 9.45. Samverustund kl. 10.30 lestur og spjall, baðþjónusta fyrir
hádegi, matur kl. 11.30. Línudansinn byrjar aftur kl. 13.30 skráning á
staðnum óbreytt gjald fyrir tímann. Gönguferð um nágrennið kl. 14,
kaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl.8.50, leikfimi á Ruv.kl.9.45,
ganga kl.10, upplestrarhópur Soffíu 10, málað á steina með Júllu,
tálgun í ferskan við með Valdóri kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14:30, allir
velkomnir nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Hringdans í Kópavogsskóla kl.15:00. Línudans í
Gullsmára kl.16.30 framh, stig 1 ( 1 x í viku), kl.17.30 byrjendur ( 1 x í
viku). Uppl. í síma 554-3774 og á www.glod.is
Kópavogur Myndlist kl 9, ganga kl 10, postulínsmálun og kvenna-
bridge kl 13, línudans kl 16.30, línudans fyrir byrjendur kl 17.30.
Neskirkja við Hagatorg Miðvikudaginn 9. september kl. 12:00
hefjast kyrrðarstundir í Neskirkju. Þar gefst fólki kostur á að njóta
fallegrar tónlistar, hlýða á Guðs orð og útleggingu á því, leggja bænir
sínar í Drottins hendur og njóta svo veitinga á Kirkjutorgi, saf-
naðarheimili kirkjunnar. Prestar og organisti Neskirkju hafa umsjón
með kyrrðarstundum.
Neskirkja, við Hagatorg Íslenski maturinn í eitt hundrað ár. Var
maturinn hollari í gamla daga? Laufey Steingrímsdóttir, prófessor í
við Háskóla Íslands fjallar um breytingar sem hafa orðið á mataræði
á Íslandi á einni öld. Þar ræðir m.a. hversu breytilegt fæðið var eftir
aðstæðum fólks og búsetu hér áður fyrr.
Norðurbrún 1 Mánud:Tréútskurður 13-16. Þriðjud:Tréútsk.9-12,
Námsk. í postulínsmálun, myndlist byrjuð 9-12, opið í Listasm.13-16,
leiðbeinandi á staðnum. Miðvikud:Tréútsk. 9-12. Bónusbíllinn 14:40.
Félagsvist 14-16. Fimmtud:Tréútsk. 9-12. Leirlistanámsk. 9-12. Opið í
Listasmiðja 13-16, leiðbeinandi á staðnum.Bókabíllinn 10-10:30
Föstud:Tréútsk. 9-12. Opið í Listasmiðju, allir velkomnir 9-12.
Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13. Listasmiðja Skólabraut
kl. 9. Botsía Gróttusal kl. 10.00. Kaffispjall í króknum kl. 10.30.
Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Handavinna Skólabraut kl. 13.00.
Timburmenn í Valhúsaskóla kl. 13.00. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Á mor-
gun fimmtudag verður félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 13.30.
Sléttuvegur 11 - 13 Opið frá kl. 8.30 - 16.00. Kaffi, spjall og dagblöð
kl. 08.30. Framhaldssaga kl. 10.00. Hádegisverður kl. 11.30. Handav-
inna kl. 13.00 – 16.00. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir !
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði
Stangarhyl 4, kl. 10.00
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Qigong-námskeið kl. 10.30
leiðbeinandi Inga Björk Sveinsdóttir Skák kl. 13.00
Vesturgata 7 Miðvikudagur. Kl. 09.00 fótaaðgerðir. Kl. 09:00
hárgreiðsla. Kl. 09:15 spænska ( framhald). Spænska (byrjendur)
kl.10:45. Verslunarferð í Bónus.Tréútskurður kl. 13:00.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58–60
Samkoma í kvöld kl. 20
í Kristniboðssalnum. Bjarni
Gíslason talar. Minnum á haust-
markaðinn á laugardag.
569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Til sölu
Westinghouse kæliskápur
til sölu.
H.45 sm. B.60 sm.
Upplýsingar í síma 6952018.
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Ríf ryð af þökum,
ryðbletta, hreinsa
þakrennur og tek að
mér ýmis smærri
verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smáauglýsingar
fram að lokastund. Þar tóku við
allmargar og skemmtilegar um-
ræður um minningar okkar með
þér og stóð þar upp úr hversu
magnaður karakter þú varst.
Okkur fannst því við hæfi að
skrifa um þær skemmtilegu,
fyndnu og eftirminnilegu minn-
ingar sem við vorum svo heppin
að fá að eiga með þér.
Þú varst hreinskilin, skemmti-
leg og mest af öllu algjör húm-
oristi. Þú hafðir miklar skoðanir
og sagðir hlutina nákvæmlega
eins og þér fannst, meðal annars
léstu skoðanir þínar á breyttu
holdafari og fatavali fólks heldur
betur í ljós.
Eins og þegar Heiðar mætti í
rifnum gallabuxum að heimsækja
þig og þú sagðir beint frá hjart-
anu: „Mikið ertu í ljótum buxum.
Ég myndi ekki nota þetta sem
gólftusku,“ og síðan var skálað í
pilsner, sem var vel við hæfi þar
sem þú gafst Heiðari hans fyrsta
bjór þegar hann var átta ára í
Jersey. Þú hafðir einnig miklar
skoðanir á því námsvali sem við
barnabörnin völdum okkur, og
það sem skipti mestu var hversu
miklir peningar voru í boði.
Þér leist til dæmis ekkert á
námsval Katrínar á sálfræði, þar
sem þú taldir að það væri náms-
grein fyrir fólk sem nennti ekki
að læra og væri einungis fyrir vit-
leysinga. Þú varst þó stolt og
ánægð með val Gerðar Dóru og
Heiðars á viðskiptafræði. Við
tókum skoðunum þínum þó ekki
persónulega þar sem við þekkt-
um þinn skemmtilega húmor og
hlógum við með þér.
Þú varst mjög stríðin og til
dæmis fannst þér ekkert leiðin-
legt að keyra á 50 km hraða á
Kringlumýrarbrautinni þangað
til það var komin löng röð af bíl-
um fyrir aftan þig. Þá var mark-
miðinu náð, þú keyrðir aðeins
hægar og gafst þeim puttann sem
flautuðu.
Það var alltaf gott að vita af
þér heima í Sjávargrundinni þar
sem við gátum komið til þín í há-
degismat í pylsur og horfðum við
allar saman á þáttinn okkar Ná-
granna. Heimsóknir okkar máttu
þó ekki trufla þig þegar Leiðar-
ljós var í gangi, þar sem það var
þáttur sem þú misstir aldrei af.
Þú hefur alltaf reynst okkur góð-
ur vinur og frábær amma, varst
alltaf til staðar og kenndir okkur
að njóta lífsins og taka því ekki of
alvarlega. Eins sárt og það er að
kveðja þig, elsku amma, þá erum
við jafnframt svo þakklát fyrir að
eiga allar þessar yndislegu minn-
ingar sem munu fylgja okkur um
alla ævi.
Heiðar Atli, Katrín Klara
og Gerður Dóra.
Elsku fallega og skemmtilega
amma okkar. Við söknum þín al-
veg rosalega mikið.
Takk fyrir að spila oft við okk-
ur og kenna okkur bæði að
svindla smá og að drottning heit-
ir ekki drottning heldur „drolla“.
Við ætlum reyndar að hætta að
svindla en kalla drottninguna
áfram „drollu“.
Þú sagðir líka alltaf „abba
labba lá kisa má ekki sjá“, en það
þýddi að við mættum ekki láta
neinn sjá spilin sem við vorum
með á hendi. Þetta fannst okkur
fyndið.
Við munum geyma minn-
inguna um þig í hjörtum okkar
alla ævi.
Við elskum þig, amma.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna og
geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Auður og Ásgeir Óli.
Fleiri minningargreinar
um Halldóru Ólafsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.