Morgunblaðið - 09.09.2015, Qupperneq 27
daginn og beðið um að fá að tala við
drenginn í horninu. Hinum megin á
línunni var Steingrímur Bjarnason
sem byggði Grímsbæ og vildi hann
að ég stofnaði rakarastofu í
Grímsbæ. Ég sló til og þegar ég
spurði Halldór hvort ég fengi ekki
meðmæli ef þetta gengi ekki upp þá
sagði hann: „Nei, þú kemur bara
aftur til mín.“ Þetta var árið 1991 og
stofan á því 25 ára afmæli næsta
vor.
Hárgreiðslustofa var fyrir í
Grímsbæ en hún var meira fyrir
dömur og Steingrímur vildi líka
þjónustu fyrir herrana. Ég keypti
síðan hina stofuna fyrir átta árum.
Þær voru hvor á sinni hæðinni og því
var hægt að fá klippingu hjá mér
bæði í efra og neðra. Svo sameinaði
ég stofurnar og nú er bara hægt að
fá klippingu hjá mér í neðra.
Ég byrjaði einn og svo hef ég ver-
ið með hjá mér einn til tvo í fullu
starfi og einnig fólk í hlutastarfi.“
Spurður út í nýjustu skeggtískuna
þá segir Grímur aldrei hafa gefið
sig út fyrir að vera skeggsnyrtir.
„Þetta var á leiðinni út þegar ég var
að byrja í náminu. Ég lærði þetta þó
í skólanum á sínum tíma og ég
snyrti skegg en hef aldrei gefið mig
út fyrir það. Þessi tíska er líka bara
bóla!“
Golfið helsta áhugamálið
Golfáhuginn byrjaði hjá Grími
þegar hann ásamt félaga sínum var
alltaf að finna golfkúlur í nágrenni
við flugvöllinn á Ólafsfirði. „Pabbi
félaga míns smíðaði þá fyrir okkur
kylfur úr vatnsröri og plötujárni.
Ég sökkti mér svo alveg í þetta og
var farinn að geta eitthvað um 1980.
Ég byrjaði í Golfklúbbi Reykjavíkur
(GR) en svo tók ég mér hlé í sex ár
og þegar ég byrjaði aftur gekk ég í
Golfklúbb Mosfellsbæjar en er aftur
kominn í GR. Svo er ég einnig í
Golfklúbbi Ólafsfjarðar og tek þátt í
sveitakeppni fyrir þá.
Minn besti árangur er líklega 10.
sæti sem ég náði á meistaramóti GR
en þá var ég með 3,2 í forgjöf. Ég
hef fjórum sinnum náð holu í höggi
og vann eitt sinn ferð til Suður-
Afríku þar sem ég keppti fyrir Ís-
lands hönd. Ég hef spilað víða er-
lendis, m.a. á Pebble Beach í Kali-
forníu sem er einn frægasti
golfvöllur í Bandaríkjunum.“
Auk golfsins hefur Grímur stund-
að skíði frá barnæsku. „Ég fer
tvisvar til þrisvar á Ólafsfjörð á ári
á skíði eða snjósleða. Svo hef ég líka
áhuga á ljósmyndun og hefði líklega
farið í svoleiðis nám ef ég hefði ekki
farið í hárskeranámið.
Ég er í golfhópi sem fer alltaf í
golfferð aðra helgina í september
og nú á að fara á Belfry-völlinn á
Englandi. Ég ætlaði ekki að fara
því við hjónin ætlum að keyra yfir
Klettafjöllin í lok september í til-
efni af afmælinu. En ég gifti mig
10. september 2005 því ég vildi
ekki gifta mig fyrir fertugt og kon-
an ákvað að laumupúkast og pant-
aði far fyrir mig í þessa golfferð
með félögunum. Afmælisdagurinn
verður því rólegur hjá mér en svo
fer ég morguninn eftir í flug á tíu
ára brúðkaupsafmælinu í boði
konunnar.“
Fjölskylda
Grímur kvæntist 10.9. 2005 Önnu
Ingileif Erlendsdóttur, f. 22.7. 1967.
Hún er iðjuþjálfi á endurhæfingar-
deild Landspítalans við Hringbraut.
Foreldrar hennar eru Erlendur
Daníelsson, f. 18.10. 1942, bókaút-
gefandi og rekur bókaútgáfuna
Björk, og k.h. Gréta Jónsdóttir, f.
30.4. 1946, húsmóðir.
Börn Gríms og Önnu eru Erlend-
ur Karl, f. 15.12. 1995, nemi, og
Hrafnhildur Jakobína, f. 2.9. 2000
nemi.
Systkini Gríms: Gunnar Bjarni
Þórisson, f. 5.12. 1955, skrifstofu-
maður hjá Ó.Johnson og Kaaber,
Súsanna Valdís, f. 24.2. 1957, banka-
starfsmaður og Gísli Viðar, f. 11.8.
1958, hársnyrtimeistari.
Foreldrar Gríms eru Þórir Bjarni
Guðlaugsson, f. 8.2. 1930, 19.2. 1979,
sjómaður á Ólafsfirði, og k.h. Hrafn-
hildur Jakobína Grímsdóttir, f. 3.2.
1937, húsmóðir.
Úr frændgarði Gríms Þórissonar
Grímur
Þórisson
Anna Sigríður Árnadóttir
húsfr., f. í Bandagerði í Eyjafirði
Sigurpáll Sigurðsson
bóndi, sjómaður, verka-
maður og vélstjóri á
Brimnesi í Ólafsfirði
Guðrún Tryggvína
Sigurpálsdóttir
húsfreyja á Ólafsfirði
Grímur Bjarni
Bjarnason
póstmeistari og
bíósýningarmaður
á Ólafsfirði
Hrafnhildur Jakobína
Grímsdóttir
fv. verslunarkona
Jakobína Anna
Ingimundardóttir
húsfreyja á Ólafsfirði
Bjarni Helgason
vélstjóri á Ólafsfirði
Kristín Þorvarðardóttir
húsfreyja, f. í Bergþórsbúð,
Breiðavíkurþingum, Snæf.
Ketill Björnsson
sjómaður á Hellissandi
Súsanna Ketilsdóttir
húsfreyja á Hellissandi
Guðlaugur Jakob Alexandersson
verkamaður á Hellissandi
Þórir Bjarni Guðlaugsson
sjómaður á Ólafsfirði
Guðrún Helgadóttir
húsfreyja, f. í Gils-
bakkasókn, Mýr.
Alexander Guðlaugsson
bóndi á Stapatúni, Neshr., Snæf.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015
95 ára
Baldur Arngrímsson
Guðrún Kristín Sigurjóns-
dóttir
Helga Sumarliðadóttir
90 ára
Ólöf Pétursdóttir
Þorgerður María Gísladóttir
85 ára
Jakobína Þórðardóttir
Sigríður Marelsdóttir
Sigrún Sigurdríf
Halldórsdóttir
Svala Jónsdóttir
75 ára
Björn Þórhallsson
Erna Ágústsdóttir
Jóhannes Jónsson
Ragnheiður Þórðardóttir
70 ára
Guðmann Guðmannsson
Halldóra Stefánsdóttir
Helga S. Guðmundsdóttir
Hrólfdís Hrólfsdóttir
Júlíus Anton Matthíasson
Ragna María Gunnarsdóttir
Sigríður Guðbergsdóttir
Villy Björn Hjörvar
Henriksen
Þóra Benediktsdóttir
60 ára
Anna Svandís Helgadóttir
Guðlaug Narfadóttir
Helga Hjaltadóttir
Hörður Ágúst Harðarson
Kristinn Gestsson
Kristján Júlíus Kristjánsson
María Petrína Ingólfsdóttir
Sigurður G. Símonarson
Soffía Guðrún
Þorsteinsdóttir
50 ára
Daiva Butkuviené
Jose Antonio de Bustos
Martin
Ragnar Ármannsson
Sigurjón Heiðar Hreinsson
Sigurjón Ómar Níelsson
Silja Viem Thi Nguyen
Stefán Einarsson
Þórir Hálfdánarson
40 ára
Borghildur Sölvey
Sturludóttir
Eiríkur Harry Ragnarsson
Eva Huld Valsdóttir
Guðmundur Vignir
Ólafsson
Hafdís Jóhannsdóttir
Heimir Már Helgason
Jóhann Georg Gunnarsson
Jörundur Kristinsson
Karl Ágúst Hoffritz
Linda Björg Stefánsdóttir
Piotr Polinski
Reynald Ormsson
Sigrún Hallgrímsdóttir
30 ára
Auður Björk H Kvaran
Dagný Gunnarsdóttir
Kristín Láretta
Sighvatsdóttir
Tongxiang Li
Til hamingju með daginn
40 ára Haukur er Ísfirð-
ingur en býr í Mosfellsbæ
og er tölvunarfræðingur í
Landsbankanum.
Maki: Dagný Kristins-
dóttir, f. 1978, kennari í
Ölduselsskóla.
Börn: Kristinn Breki, f.
1999, Arnar Páll, f. 2004
og Tómas Orri, f. 2006.
Foreldrar: Hörður Þor-
steinsson, f. 1934, fv.
stöðvarstjóri, og Fjóla
Hermannsdóttir, f. 1936,
fv. skrifstofumaður.
Haukur Örn
Harðarson
40 ára Heiðrún er frá
Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal
en býr á Akureyri og er
leikskólakennari á Hólma-
sól.
Maki: Skarphéðinn Leifs-
son, f. 1967, afgreiðslu-
maður hjá Norðlenska.
Börn: Guðrún María, f.
1998, Alexander, f. 2004,
og Leifur Máni, f. 2008.
Foreldrar: Jóhann Ólafs-
son, f. 1952, d. 2015, og
Unnur María Hjálmars-
dóttir, f. 1953, d. 2013.
Heiðrún
Jóhannsdóttir
30 ára Gréta er Hofsós-
ingur, skúrar á KS Hofsósi
og er matráður og fl. á
Sólgörðum í Fljótum.
Maki: Jóhann Oddgeir Jó-
hannsson, f. 1978, vinnur
á bifvélaverkstæðinu Par-
dus.
Börn: Viktoría Ýr, f. 2007,
Jón Konráð, f. 2008, og
Elísabet Rán, f. 2012.
Foreldrar: Jón Gísli Jó-
hannesson, f. 1964, og
Guðbjörg Særún Björns-
dóttir, f. 1965.
Gréta Dröfn
Jónsdóttir
Ómar Ingi Jóhannesson varði dokt-
orsritgerð sína frá Sálfræðideild Há-
skóla Íslands 26.9. 2014. Ritgerðin ber
heitið „Miðlæg-hliðlæg ósamhverfa í
skilvirkni augnstökka og áhrif líkinda-
möndls með lendingarstað á viðbragðs-
tíma þeirra“ („Nasal-temporal asym-
metries and landing pointprobability
manipulations of saccadic eye move-
ments.“)
Hlutverk augnhreyfinga í sjón-
skynjun er mjög mikilvægt og rann-
sóknir á þeim geta aukið skilning okkar
á því hvernig athygli virkar, hvernig
sjónræn áreiti eru valin, hvernig við tök-
um ákvarðanir og á hinum ýmsu sál-
fræðilegu röskunum. Í rannsóknum
okkar var megináherslan á meðstökk
og andstökk. Meðstökk eru í átt að
áreitinu en andstökk í átt frá áreitinu. Í
tveimur rannsóknum rannsökuðum við
viðbragðstíma, nákvæmni og hámarks-
hraða augnstökka. Niðurstöður okkar
sýna að miðlæg-hliðlæg ósamhverfa
finnst ekki í viðbragðstíma augnstökka
og er mjög óveruleg í nákvæmni þeirra.
Aftur á móti er ósamhverfan mjög
greinileg í hámarkshraða augnstökka
og hraðinn mun meiri í átt að hliðlægu
en miðlægu áreiti. Mið-
læg-hliðlæg líffræðileg
ósamhverfa er vel þekkt
í sjónu og sjóntaug og
við teljum okkur hafa
mjög góð rök fyrir því
hún valdi ósamhverf-
unni í hámarkshrað-
anum. Nokkuð góð rök fyrir því að
möndl með líkur á því hvar áreiti augn-
sökka birtist geti haft áhrif á viðbragðs-
tíma þeirra. Meint áhrif möndlsins
rannsökuðum við í þriðju rannsókninni
með áherslu á áhrif möndlsins á við-
bragðstíma and- og meðstökka. Það
var ekki fyrr en í tilraun þarsem lóðrétt
og lárétt, and- og meðstökk, voru sam-
ofin við sjónleitarverkefni að líkinda-
möndlið fór að hafa áhrif og munur á
viðbragðstíma and- og meðstökka
minnkaði. Vegna þess að áhrif lík-
indamöndlsins komu ekki fram fyrr en í
mjög flóknu verkefni teljum við ljóst að
möndlið hefur ekki áhrif á undirbúning
augnstökka sem slíkra heldur hafi það
áhrif á þá þætti sem lúta að því að velja
(eða finna)markáreitið og taka ákvörð-
un um hvort augnstökkið þarf að vera
and- eða meðstökk, lóðrétt eða lárétt.
Ómar I. Jóhannesson (f. 1956) lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla Stykkis-
hólms vorið 1972 og sveinsprófi í skipasmíði frá Iðnskóla Snæfellsness og Skipa-
vík hf. 1976. Vorið 1980 lauk Ómar 2. stigs prófi (1500 kw réttindi) frá Vélskóla
Íslands og stúdentsprófi frá Öldungadeild MH vorið 2007. Haustið 2007 hóf
Ómar BS nám í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands og meistaranám við
sömu deildárið 2010. Ómar hóf doktorsnám við HÍ í janúar 2012. Ómar var lengst
af yfirvélstjóri til sjós og lengst sem yfirvélstjóri á Breiðafjarðarferjunni Baldri
eða í 17 ár.
Ómar Ingi Jóhannesson
Doktor
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdóms-lögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttar-lögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti