Skólavarðan - 01.09.2005, Page 9
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 5. ÁRG. 2005
Að sá lífefldu fræi
Ráðstefna um einstaklingsmiðað nám verður haldin á
Akureyri 22. apríl 2006 á vegum Skólaþróunarsviðs
kennaradeildar Háskólans á Akureyri.
Á ráðstefnunni verður gerð grein fyrir kenningum og
hugmyndfræði einstaklingsmiðaðs náms og fjallað um hvernig
skólinn er í stakk búinn til að takast á við það hlutverk sitt að
mæta mismunandi þörfum hvers og eins. Fjallað verður um
hvernig einstaklingsmiðað nám verður best skipulagt,
mismunandi myndir þess, kennsluaðferðir, viðhorf, aðild foreldra
að náminu og hvernig haga má námsmati.
Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni verða:
Mel Ainscow
Ingvar Sigurgeirsson
Sif Vígþórsdóttir
Guðmundur Engilbertsson
Ennfremur verður á ráðstefnunni unnið í málstofum þar sem til
umfjöllunar verða margir þættir einstaklingsmiðaðs náms og
grein gerð fyrir ýmsum kennsluaðferðum sem stutt geta við það
skipulag og greint frá ýmsum þróunarverkefnum í átt að
einstaklingsmiðuðu námi.
VÍRUSVÖRN
Kaspersky Antivirus er einföld og
öflug vírusvörn sem heldur tölvunni
þinni öruggri!
Sérstakt tilboð á Kaspersky Antivirus!
3.800 kr. fyrir fyrsta árið
3.300 kr. fyrir uppfærslu
Verið örugg!
VÍRUSVÖRN