Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 14

Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 14
14 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2005 ... og nennti þessu bulli ekki lengur Ég hef reyndar alla tíð verið Guðna afar þakklátur. Hann kom mér nefnilega í gegnum stúdentsprófið og það þurfti tilfærslur til. Þannig var að eftir Úlfljótsvatn vann ég í tvö sumur á alþjóð- legri ferðamiðstöð í Sviss. Seinna sumarið hringdi ég í Guðna og sagðist vera hættur í skólanum þar sem ég nennti þessu bulli ekki lengur. Guðni bauð mér þá námssamning sem meðal annars gekk út á að ég þurfti ekki að mæta í skólann fyrr en á áramótum. Þetta gerði að verkum að ég kláraði skólann sem ég hefði ella ekki gert og án stúdentsprófs hefði ég ekki fengið inni í Kennaraháskólanum.“ Eftir stúdentspróf vann Ólafur á Sólheimum í Grímsnesi í rúmt ár og kynntist þar konu sinni, Dagnýju Hermannsdóttur. Hann hóf síðan nám í Kennaraháskólanum og á námsárunum sat hann meðal annars í stjórnum Æskulýðssambands Íslands og Bandalags íslenskra sérskólanema. „Þessi samtvinnun félags- og uppeldismála hefur fylgt mér síðan, eins konar sambland af uppeldi og rekstri,“ segir Ólafur. Skuldaði sjálfum mér að prófa að kenna Ólafur fór ekki strax í kennslu að loknu kennaranámi. Þau hjónin höfðu tekið þá ákvörðun að skipta með sér verkum á þann hátt að hann ynni úti en hún heima á meðan börnin væru lítil. Niðurstaðan var að kennaralaunin dugðu ekki fjölskyldunni til framfærslu, en Ólafur og Dagný áttu á þessum tíma tvö börn, þau Birtu sem nú er sextán ára og Grím þrettán ára. Síðar bættist Ásta í hópinn, fædd 1998. Ólafur réð sig fyrst til starfa hjá tímaritinu Uppeldi og sinnti þar markaðs- og þjónustumálum, þá starfaði hann um tíma sem framkvæmdastjóri Bóksölu Kennaraháskólans og í framhaldi af því tók hann við rekstri forlagsins Æskunnar. Loks tók hann að sér skólastjórn skólabúðanna á Úlfljótsvatni og segir fjölbreyttan starfsferil dæmigerðan fyrir breytta tíma. „Ég hef stundum haft á orði að pabbi hafi átt þrjá bíla um ævina en ég þrjátíu og þrjá, og meðan hann hafi sinnt einu starfi alla tíð hafi ég ráðið mig í hundrað!“ Þegar hér var komið sögu, árið 2001, hafði hagur fjölskyldunnar vænkast nokkuð og því mögulegt að sinna því sem Ólafur hafði menntað sig til. Hann réð sig til Foldaskóla sem stærðfræðikennari á unglingastigi. „Ég skuldaði sjálfum mér það að prófa að kenna,“ segir Ólafur. „Ég hafði einfaldlega ekki efni á því fyrr.“ Auðvelt að tengjast unglingum Ásamt með stærðfræðinni kenndi Ólafur bókfærslu og náttúrufræði í Foldaskóla auk útivistar og félagsstarfa sem eru valgreinar. „Mér finnst það langbesta við kennsluna að fá tækifæri til að hjálpa þeim sem eiga undir högg að sækja. Ég bý auðvitað að reynslunni frá Úlfljótsvatni þar sem við fengum ellefu hundruð kraftmikla unglinga á hverjum vetri sem vita ekkert skemmtilegra en að ögra þeim fullorðnu. Ég hef átt auðvelt með að tengjast unglingum og vinna með þeim. Kennslan er erfitt en stórskemmtilegt starf og það er ekkert betra en að fá að heyra löngu síðar að maður hafi skipt nemanda máli. Slíkt gefst ekki í hvaða starfi sem er.“ Þess má til gamans geta að útivistarvalið sem Ólafur hefur verið með fyrir 9. og 10. bekk í Foldaskóla var tilnefnt til Hvatningarverðlauna Fræðsluráðs og var annað af tveimur verkefnum sem hlutu verðlaunin. „Við höfum verið með rötun, skyndihjálp, ferðamennsku og útbúnað og í tengslum við það höfum við farið í dags- og helgarferðir þar sem reynt hefur á áðurgreinda þætti,“ segir Ólafur. Undirbúningur kjarasamninga Á aðalfundi Kennarafélags Reykjavíkur vorið 2003 tók Ólafur sæti í stjórn félagsins. „Ég hafði verið trúnaðarmaður um nokkurt skeið og þekkti þar af leiðandi ágætlega hvernig málum var háttað,“ segir Ólafur, „en þó kom mér á óvart hversu lítið hinn almenni félagsmaður vissi um félagið sitt og hafði afskipti af því – og skiptir þá engu hvort um er að ræða KFR, Félag grunnskólakennara eða Kennarasambandið í heild. Menn virtust tilbúnir til að gagnrýna Kennarasambandið en síður til að koma og leggja eitthvað til málanna. Okkur fannst ýmsum að KFR ætti að hafa meira að segja um það sem var að gerast í skólamálum og eitt af því sem stjórn félagsins gerði á vormánuðum var að standa fyrir vinnudegi í Viðey fyrir trúnaðarmenn þar sem rætt var um tilgang félagsins og fleira. Við fengum góðar ábendingar og nokkrir ágætir hlutir spruttu upp úr því, svo sem heimasíðan og opnir spjallfundir í Reykjavík sem hleypt var af stokkunum nú í vor með málstofu undir titlinum „8-17, bylting eða bull“. Þar sátu á annað hundrað manns að kvöldi til við kertaljós og huggulegheit á mjög skemmtilegum fundi.“ Í marsmánuði 2004 var Ólafur kjörinn formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Undangenginn vetur voru menn að bíða eftir kröfugerð og mikið skeggrætt um væntanlega stefnu í kjaramálum. Í liði grunnskólakennara gætti vaxandi vilja til að standa af sér allar hrinur og keyra ásættanlegar kjarabætur í gegn með ráðum og dáð. Óánægja hafði ríkt allan samningstímann með ýmis atriði í gildandi kjarasamningi og félagsmenn staðfastir í að fá leiðréttingu næsta samningstímabil. Ólafur var bundinn í kennslu fram á sumar en hófst þá handa við að undirbúa hugsanlegt verkfall. „Ekki það að ég væri að vonast til að það yrði, síður en svo!“ segir Ólafur og hlær. „En mér fannst óábyrgt að vera ekki tilbúinn ef til þess kæmi.“ Í bíl á fullri ferð Ólafur segir verkfallið ekki hafa komið félagsmönnum á óvart. „Vilji þeirra var alveg skýr. Verkfallstíminn var ótrúlegur að mörgu leyti, bæði í jákvæðum og neikvæðum skilningi. Það er að sjálfsögðu neikvætt að þurfa að grípa til þessa örþrifaúrræðis en við vorum beinlínis hrakin út í það. Þetta gerir enginn að gamni sínu, hvorki gagnvart nemendum og foreldrum né sjálfum sér. Ef menn halda að það jafngildi fríi að vera í verkfalli þá er það hin mesta firra. Því fylgir mikið álag, það tekur á taugarnar og liggur þungt á hverjum og einum. Ef hægt er að tala um jákvæða hluti í sambandi við verkfall þá var það órofa samheldni kennara, sumir höfðu á orði í hálfkæringi að samheldnin væri jafnvel um of! Ég man til dæmis eftir fagnaðarlátum sem brutust út snemma í nóvember þegar tilkynnt var um niðurstöðurnar í atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara, en hún var kolfelld. Þetta var í beinni útsendingu og fjölmiðlar kusu að túlka þetta svo að kennarar væru að fagna áframhaldandi verkfalli en ekki ótvíræðri niðurstöðu og samheldni. Þegar svona gerist, að búið er að ákveða hvernig beri að skilja einhvern atburð og miðla honum til þjóðarinnar, þá er meira en að segja það að leiðrétta túlkunina. Morgunblaðið birti einn fjölmiðla skilning okkar á þessum fundi.” Verkfallinu vatt fram en lítið miðaði. „Þó þokast hafi hænufet í rétta átt um helgina í viðræðum um vinnutímamál er enn langt í land,“ sagði Finnbogi Sigurðsson, þáverandi formaður FG, þann 10. október og varaði við mikilli bjartsýni. Tveimur dögum síðar mættu á annað þúsund manns á baráttufund í Háskólabíói. Hvert sæti í húsinu var skipað og hundruð manna stóðu. Á fundinum ávarpaði Eiríkur KYNNING FORYSTUMANNA

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.