Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 22

Skólavarðan - 01.09.2005, Blaðsíða 22
22 SKÓLAVARÐAN 4.TBL. 6. ÁRG. 2005 Á síðari árum hefur athygli fagfólks beinst æ meira að vægi málþroska hvað varðar nám. Ásthildur Bj. Snorra- dóttir og Bjartey Sigurðardóttir hafa þróað heildstætt málörvunarefni fyrir leik- og grunnskóla sem þær segja frá í þessari grein. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á fylgni málþroska við námsárangur (Stackhouse og Wells, 1997, Catts og Kamhi, 1999, Snowling, 1999, Guðrún Bjarnadóttir, 2004). Málþroskafrávik geta verið af ýmsum toga og orsakast af ýmiss konar frávikum í þroska, mismunandi fötlunum eða langvarandi veikindum. Stærstur er þó sá hópur barna er greinist með málþroskafrávik án þess að um önnur þroskafrávik eða sjúkdóma sé að ræða og er þá talað um að börn séu með sértækar málþroskaraskanir. Gera má ráð fyrir að u.þ.b. 300 börn í hverjum árgangi íslenskra barna séu með sértækar mál- þroskaraskanir. Eins og áður var nefnt hafa margar rannsóknir sýnt fram á fylgni málþroska við námsárangur. Málið er verkfæri hugsunarinnar og undirstaða fyrir allt nám. Því er mikilvægt að finna börn með málþroskafrávik sem allra fyrst og veita þeim viðeigandi málörvun. Nauðsynlegt er að brúa bilið á milli leikskóla og grunnskóla þannig að niðurstaða úr málþroskaprófum og áherslur í málörvun í leikskóla skili sér í áframhaldandi vinnu í grunnskólanum. Fram til þessa hefur hins vegar skort heildstætt, íslenskt málörvunarefni sem er aðgengilegt og auðvelt í notkun fyrir leik- og grunnskóla. Málörvunarefnið Tölum saman bætir úr þessari brýnu þörf. Sýnt hefur verið fram á með rann- sóknum að skilgreind málörvun dregur úr námsörðugleikum og kemur til góða bæði börnum með málþroskafrávik og tvítyngdum börnum. Börn með málþroska- raskanir eru iðulega lengi að ná valdi á lestrartækni og auk þess glíma þau oftast við annars konar vanda eftir að þau hafa náð tökum á sjálfu lestrarferlinu. Þessi vandi kemur upp á yfirborðið þegar fer að reyna á málskilning við lestur flóknari texta, en þá dregur úr framförum og erfiðleikar tengdir málskilningi koma í ljós. Hætt er við því að þessir nemendur glími við námserfiðleika alla sína skólagöngu og margir þeirra hrökklist úr námi fljótlega eftir að grunnskóla lýkur. Því er mikilvægt að koma til móts við þarfir nemenda með málþroskaraskanir með kerfisbundinni málörvun í leikskóla og við upphaf skóla- göngu. Málörvunarkerfið Tölum saman er einkum ætlað elstu nemendum leik- skólans og yngstu nemendum grunn- skólans. Meginhugmynd okkar með þessu námsefni er að búa til aðgengilegt málörvunarkerfi þar sem greining á vanda nemandans er lögð til grundvallar þeirri einstaklingsnámskrá sem unnið er eftir. Við uppbyggingu náms-efnisins er einnig tekið mið af þörfum tvítyngdra barna þó að orsakir námserfiðleika þeirra séu aðrar en hjá börnum með málþroskafrávik. Uppbygging málörvunarkerfisins Í inngangi er vitnað í rannsóknir og upp- setning bókar og notkun skýrð. Þar er einnig fjallað um helstu próf og matslista sem notuð eru fyrir börn á leikskóla- aldri. Málörvunarkerfið inniheldur ellefu kafla þar sem m.a. er unnið með eftir- farandi þætti: Heyrnræna úrvinnslu, orðaforða, setningauppbyggingu, mál- fræði, frásagnir, viðeigandi boðskipti og hljóðkerfisvitund. Hver kafli hefst á stuttri skilgreiningu, markmiðslýsingu, einföldum leiðbeiningum um vinnu- aðferðir og upplýsingum um ítarefni. Mál- örvunarkerfinu fylgir skráningarblað til að auðvelda kennurum að finna út hvaða þætti ber að leggja áherslu á í vinnu með barninu. Málörvunarefnið er stutt fjölda mynda eftir Ingibjörgu Eldon Logadóttur. Útgáfan er mjög vönduð, prentuð staf- rænt og kemur út í fallegri möppu. Mál- örvunarkerfið er gefið út af höfundum og selt með ljósritunarrétti fyrir viðkomandi skóla/stofnun. Ásthildur Bj. Snorradóttir talmeinafræðingur (tal@simnet.is) Bjartey Sigurðardóttir talmeinafræðingur og sérkennari (bjarteys@isl.is) Bjartey Sigurðardóttir og Ásthildur Bj. Snorradóttir eru höfundar málörvunarefnisins Tölum saman Tölum saman Málörvunarkerfi fyrir börn með málþroskafrávik og tvítyngd börn MÁLÖRVUN Lj ós m yn d fr á hö fu nd iu m

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.