Skólavarðan - 01.09.2005, Síða 21

Skólavarðan - 01.09.2005, Síða 21
21 SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 5. ÁRG. 2005 Félagsmönnum Kennarasambandsins bjóðast til leigu í vetur ellefu staðir víðsvegar um landið: • Á Sóleyjargötu 25 og 33 í Reykjavík eru tíu íbúðir og fi mm herbergi í boði. Verð er mismunandi eftir stærð. Fyrstu tvær næturnar eru alltaf dýrastar, eða frá kr. 5.000,- til 6.000,- í íbúð, en síðan kostar hver nótt frá kr. 1.500,- til 2.500. Herbergin á Sóleyjargötu 33 kosta frá kr. 3.300,- til 3.900,- fyrstu tvær næturnar en síðan kostar hver viðbótarnótt kr. 1.000,-. • Orlofssjóður KÍ á orlofshús að Flúðum, þrettán talsins í Ásabyggð og sex hús í Heiðarbyggð. Í Kjarnaskógi við Akureyri eiga félagsmenn fjögur hús. • Orlofssjóður leigir einnig þrjár íbúðir fyrir félagsmenn á Akureyri; við Hafnarstræti, Þingvallastræti og í Smárahlíð. • Orlofssjóður KÍ hefur gert samning við nokkra einkaaðila og leigir út eignir þeirra á orlofsvefnum. Því eru til leigu hús að Skógum undir Eyjafjöllum, Eystra Miðfelli í Hvalfi rði og Ölkeldu á Snæfellsnesi. • Að auki auglýsir Orlofssjóður tíu aðra staði í vetrarleigu á vef sínum. Bókanir fara fram á orlofsvefnum. Farið er inn á vefi nn secure. ki.is/orlofsvefur og hægt er að bóka og borga allt að fjórum mánuðum fram í tímann. Þann fyrsta september var opnað fyrir desemberbókanir svo að þeir sem hyggja á leigu orlofshúsnæðis um jól og áramót geta bókað strax. Athugið að ekki er lengur úthlutað um jól og páska. Hótelmiðar Í vetur verður boðið upp á hótelmiða á sex hótelum Icelandair Hotels, þ.e. Hótel Loftleiðum, Flughótelinu í Kefl avík, Hótel Kirkjubæjarklaustri, Hótel Flúðum, Hótel Héraði og Hótel Hamri í Borgarfi rði. Með niðurgreiðslu Orlofssjóðs kosta hótelmiðarnir frá kr. 5.000,- til 5.900,-. Einnig standa til boða niðurgreiddir hótelmiðar á Hótel Kefl avík, Hótel Ólafsvík og Gistiheimilinu Ölbu í Reykjavík. Félagsmenn panta sjálfi r gistingu á viðkomandi gististað en greiða með hótelmiðum. Þeir eru seldir á orlofsvefnum https://secure.ki.is/ orlofsvefur undir krækjunni „Ávísanir“. Spánn Unnið er að samningum við Sumarferðir vegna ferða næsta sumar. Boðið verður upp á fl ug til Alicante og gistingu í Torrevieja og Calpe. Ferðatilboð verða kynnt nánar í næsta tölublaði Skóla- vörðunnar. Bókanir í Spánarferðir næsta sumar hefjast í desember hjá Sumarferðum. Kanarí í vetur fyrir kennara á eftirlaunum Í vetur verður boðið upp á þrjár ferðir til Kanaríeyja fyrir félaga í FKE, Félagi kennara á eftirlaunum. Ferðirnar eru niðurgreiddar af Orlofssjóði KÍ. Nánari upplýsingar er að fi nna á vef KÍ, www.ki.is Vetrarleiga Veturinn framundan hjá Orlofssjóði KÍ Orlofssjóður KÍ starfar allt árið og er þjónustan fjölbreytt, enda félagsmenn margir og óskir þeirrra margvíslegar. Hér er greint frá helstu orlofstilboðum sem félagsmenn KÍ geta nýtt sér í vetur. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Orlofssjóðs KÍ ki.skyrr.is/orlof og einnig geta félagsmenn farið inn á vef Kennarasambandsins www.ki.is og smellt á „Orlofssjóður“ undir stikunni vinstra megin á síðunni. Innskráning til að bóka sig og borga er á orlofsvefnum sjálfum, secure.ki.is/orlofsvefur ORLOFSMÁL Lj ós m yn d fr á O rlo fs sj óð i K Í

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.