Skólavarðan - 01.03.2006, Page 7
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006
Undir liðnum „Spurt & svarað” á vef
KÍ er hægt að finna algengustu spurn-
ingar sem berast hingað á skrifstofu KÍ
og svör við þeim. Þar er einnig hægt
að senda inn spurningar á netfangið
spurt@ki.is. Reynt er að svara þeim svo
fljótt sem kostur er og ég hvet ykkur
til að nýta þetta. Nýjum spurningum er
bætt inn á vefinn með reglulegu milli-
bili. Spurt hefur verið hvort spurningar
fari beint inn á vefinn óbreyttar, svo er
ekki. Þær spurningar sem þar birtast
eru ekki beint upp úr tölvupósti sem
hingað berst heldur eru þetta algeng-
ustu spurningarnar og hafa þær allar
borist frá mörgum aðilum.
FG og SÍ Hvaða lög eða
reglur gilda um trúnaðarmenn?
Á hverri vinnustöð þar sem a.m.k. fimm
menn vinna er starfsmönnum heimilt að
kjósa úr sínum hópi einn trúnaðarmann
en á vinnustöð þar sem fimmtíu menn eða
fleiri vinna má kjósa tvo trúnaðarmenn.
(Lög nr. 94/1986)
FF Hver eru grunnviðmið
um nemendafjölda í námshópum?
Grunnviðmið samkvæmt reglugerð
335/1999 eru 12 nemendur í verknáms-
hópum, 15 nemendur í list- og tölvufræði-
hópum og 25 nemendur í almennum
bóklegum greinum, eða samkvæmt
ákvörðun menntamálaráðuneytis hverju
sinni um nemendafjöldaviðmið í ein-
stökum áföngum. Heimilt er að hafa allt
að 25% fleiri nemendur en 12, 15 og 25,
þ.e.a.s. 15, 18,75 og 31,25. Leita verður
samþykkis kennara ef nemendur verða
fleiri en þetta. Þess eru dæmi að einstakir
framhaldsskólar hafi gert samkomulag
um álagsgreiðslur sem eru notaðar sem
viðmið í þeim tilvikum þegar kennarar
fallast á að kenna námshópum sem fara
upp fyrir 25% viðbótina. Kennarar geta
þó hafnað slíku og gera það oft vegna
faglegra sjónarmiða.
FL Hvernig ber að greiða
fyrir starfsmannafundi?
Greiðslur fyrir starfsmannafundi eru
undanþegnar útkallsreglu sem þýðir að
einungis er greitt fyrir þann tíma sem
fundurinn stendur. Sé starfsmannafundur
haldinn á tímabilinu milli kl. 19:00
og 20:00 ber að greiða tvöfalda yfirvinnu
vegna þess að þessi tími er skilgreindur
sem matartími í yfirvinnu og ber að
greiða sé ekki tekið hlé. Dæmi: Fundur
stendur yfir frá kl. 17:30 til 19:30. Fyrir
þennan fund ber að greiða tvo og hálfan
tíma vegna þess að hann nær hálftíma
inn í matartímahlé. Sé fundur lengri og
standi frá kl. 17:30 - 20:30 ber að greiða
4 tíma (3 tímar + matartími) sé ekki gefið
matarhlé, en sé gefið hálftíma matarhlé
skal greiða þrjá og hálfan tíma.
FT Er skólastjóra heimilt að lækka
starfshlutfall tónlistarskólakennara
fyrirvaralaust niður í ráðningarhlutfall
ef nemendum fækkar?
Tónlistarskólakennari sem ráðinn er í
hlutastarf en kennir meira en því nemur
fær greidda viðbót við ráðningarhlutfall
þar til fullu starfi er náð. Þetta gildir fyrir
gildistíma vinnuskýrslunnar. Vinnuskýrslu
verður ekki breytt nema með samþykki
beggja aðila eða uppsögn með þriggja
mánaða fyrirvara ef breyta skal henni á
gildistíma.
KÍ Gerist kennari sem kominn er á
eftirlaun sjálfkrafa félagi í Félagi
kennara á eftirlaunum?
Nei, kennarar sem hafa verið félagsmenn
KÍ geta sótt um að verða félagar í FKE
(Félag kennara á eftirlaunum). Sá sem er
félagi í FKE fær t.d. allan póst sem sendur
er út á vegum félagsins og getur nýtt sér
þjónustu Orlofssjóðs KÍ og einnig óskað
eftir að fá Skólavörðuna senda til sín.
Að lokum langar mig að minna á netfangið
mitt ingibjorg@ki.is ef þið hafið einhverjar
spurningar og það er líka hægt að hringja
hingað á skrifstofu KÍ í síma: 595 1111.
Ingibjörg Úlfarsdóttir
Höfundur er launafulltrúi KÍ
Ingibjörg hjá ki.is
KJARAMÁL
Nokkrar algengar
spurningar
Lj
ós
m
yn
d:
k
eg
?