Skólavarðan - 01.03.2006, Page 10
10
FRÉTTIR AF FAGFÉLÖGUM
Félag enskukennara hefur undanfarin ár
staðið fyrir margskonar áhugaverðum
uppákomum fyrir enskukennara á
grunn- og framhaldsskólastigi, bæði
innanlands og utan. Má þar nefna litlar
ráðstefnur, ýmis námskeið með þekktum
erlendum fyrirlesurum, heimsóknir frá
bókaútgefendum, sem kynna okkur það
nýjasta í bókum til enskukennslu, og svo
kaffihúsafundi fyrir grunnskólakennara.
Eins hefur FEKÍ styrkt kennara til að
fara á ráðstefnu í Bretlandi sem haldin
er ár hvert á vegum alþjóðlega ensku-
kennarafélagsins IATEFL.
Sjálfar höfum við mætt á flestar þessar
uppákomur og haft mikið gagn og gaman
af, því eins og margir vita getur eitt gott
námskeið eða ráðstefna veitt kennara
nýja sýn og blásið nýju lífi í kennsluna.
Hugmyndir að kennsluaðferðum, leikjum,
áhugaverðum bókum eða bara gott spjall
við einhvern, sem er að fást við það sama
og maður sjálfur, getur gefið ótrúlega
mikið.
Fæstir vilja festast í sama farinu og
kenna eins ár eftir ár. Kannast einhver
við eftirfarandi? Vinnan er ekki eins
heillandi og áður var. Þú ert alltaf að
gera það sama við misjafnar undirtektir
og misjafnan árangur og nemendur þínir
eru áhugalausir. Skólastofan líkist jafnvel
óvinasvæði.
Sannleikurinn er sá að hættan á að
þetta gerist er nokkur og þótt vissulega
geti þetta gerst er auðvelt að koma í veg
fyrir það. Þess vegna er svo mikilvægt að
taka þátt í starfi eins og því sem FEKÍ býður
upp á. Með því að mæta á skipulagða
viðburði og nýta sér það sem er í boði
hjá félaginu öðlumst við meiri þekkingu,
færni og sjálfstraust í kennslunni.
Nokkur undanfarin ár hefur félagið
staðið fyrir kaffihúsafundum grunnskóla-
kennara sem kenna ensku. Fundir þessir
hafa ávallt verið fyrsta miðvikudag í
mánuði á Café Mílanó. Mæting hefur
ekki alltaf verið góð en þeir sem mæta
hafa farið heim endurnærðir með nýjar
og ferskar hugmyndir að kennslunni.
Þarna ræðum við kennslubækur og
önnur gögn, kennsluaðferðir og leiki og
skiptumst á þrautreyndum hugmyndum
sem virka í kennslustofunni. Við leggjum
áherslu á óþvingað andrúmsloft, við erum
einfaldlega gestir kaffihússins saman-
komnir til að ræða saman og getum komið
og farið að vild.
Hvort sem við erum menntaðir ensku-
kennarar eða ekki er mikilvægt að fylgjast
með og kynna sér nýjungar í námsefni og
kennslu. FEKÍ á m.a. að vera vettvangur
umræðna, skoðanaskipta og miðlunar
hugmynda. Allir enskukennarar, hvort
sem þeir eru menntaðir sem slíkir eða ekki
og hvort sem þeir starfa eingöngu við
enskukennslu eða kenna bara örfáa tíma
í faginu á viku, ættu því að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Félag enskukennara á Íslandi
hvetur félagsmenn til að mæta á kaffihúsafundi og aðra viðburði
SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006
Heimasíða FEKÍ er feki.ismennt.is og þar
er hægt að finna nánari upplýsingar um
félagið og hvað er á döfinni hjá okkur.
Björg Jónsdóttir og Þorgerður Magnúsdóttir
Myndir af aðalfundi FEKÍ 7. maí 2005, Jón Ingi Hannesson í pontu og fundarmenn.
Næsti aðalfundur félagsins verður haldinn þann 6. maí í Norræna húsinu.
FRÁ FÉLAGI ENSKUKENNARA
- FEKÍ SUMARNÁMSKEIÐ OG STYRKUR
Auglýst er eftir þátttakendum í sumarnámskeiði félagsins sem haldið verður
í Bemidji State University dagana 8.–18. ágúst 2006. Umsóknarfrestur rennur
út 15. maí en vegna tíðra fargjalda-breytinga er æskilegt að kennarar taki
fljótt við sér svo að tryggja megi sem lægstan kostnað. Hafið samband við
Kristen M. Swenson, kristen@fa.is eða Jón jiha@mh.is .
Pilgrimsstofnunin í Canterbury hefur boðið okkur einn styrk til að sækja
námskeið hjá þeim sumarið 2006. Styrkurinn greiðir námskeiðsgjöld og
gistingu í Canterbury. Umsóknir skulu berast stjórninni sem fyrst, en um
styrkinn geta sótt allir starfandi enskukennarar sem jafnframt eru félagsmenn
í FEKÍ. Sjá www.pilgrims.co.uk fyrir nánari upplýsingar um námskeiðsval.
Lj
ó
sm
y
n
d
ir
f
rá
h
ö
fu
n
d
u
m