Skólavarðan - 01.03.2006, Side 16

Skólavarðan - 01.03.2006, Side 16
16 NÁMSGÖGN SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Höfundur bókarinnar, Þorsteinn Helga- son dósent í sagnfræði og kennslu samfélagsgreina við Kennaraháskóla Íslands, höfðar til nemenda og reynslu þeirra með efnisvali sínu. Hann fléttar saman Íslands- og mannkynssögu, þó er megináherslan á Íslandi, og tekst það ljómandi vel. Hann notar þekkta atburði á fremur hefðbundinn hátt en brýtur formið upp með því að segja hlutina út frá áður óþekktu sjónarhorni. Til þess notar höfundur fólk sem er lítt þekkt í sögunni og spjallar við nemandann um af hverju hann hafi farið þessa leið. Þó ég hafi ekki sjálf kennt bókina hef ég frétt af því að sumum nemendum finnist þetta persónulegt og séu ánægðir með það. Ein grjóthrúga í hafinu er ætluð mið-stigi grunnskóla í samfélagsfræði. Bókin hæfir ágætlega nemendum á þeim aldri og er reynt að höfða til áhuga þeirra á margvíslegan hátt, m.a. með því að tala beint til þeirra og velja efni um stríð, átök, bruna, sjúkdóma, sérstaka ævi o.fl. sem höfðar til nemenda á þessum aldri. Nemendabókin kemur ekki sérstaklega til móts við nemendur með sérþarfir en með því að nota verkefnin sem fylgja á netinu er hægt að láta nemendur fá efni við hæfi. Einnig geta nemendur nýtt sér hljóðbók sem hægt er að panta á vef Námsgagnastofnunnar www.namsgagnastofnun.is/allt-namsefni/ vorunr/2699. Fjallað er um tímabilið frá siðaskiptum til 1800 en stundum farið framar eða aftar í tíma. Aðaláherslan er á Ísland og tengsl þess við önnur lönd. Talað er meðal annars um viðhorf útlendinga til landsins fyrr á öldum, frið og ófrið á Íslandi og annars staðar í Evrópu, borgarsamfélög, ríki og veldi um víða veröld, siglingar, verslun, farsóttir, hjátrú og hugmyndastrauma. Bókin gefur yfirlit yfir löng tímabil en einnig er staldrað við og einstaka atburðir eða persónur skoðaðar. Það veitir nemendum tækifæri til að lifa sig inn í efni bókarinnar og velta vöngum. Bókin er skemmtilega uppsett. Í for- mála talar höfundur til nemenda og segir þeim frá skipulagi bókarinnar. Þar fyrir aftan koma tíu leskaflar sem er skipt niður í undirkafla og er hægt að sjá þá skiptingu fremst í bókinni ásamt nákvæmu blaðsíðutali. Bókinni fylgir tímaás, atriðaorðaskrá og myndaskrá. Bókin sjálf er án verkefna ef undan er skilið verkefni við málverk á blaðsíðu 6. Á nokkrum stöðum í bókinni spyr höfundur spurninga sem hann síðan svarar. Þar væri tilvalið fyrir kennarann að stoppa með nemendum og láta þá reyna að svara þeim áður en lengra er haldið. Töluvert er um myndir í bókinni, aðallega gömul málverk, teikningar úr gömlum bókum og handritum ásamt ljós- myndum. Þær eru alltaf í beinum tengslum við það sem um er rætt hverju sinni og við þær er texti sem dýpkar merkingu myndanna. Myndatextinn er yfirleitt hæfilega langur og passar ágætlega við efnið í flestum tilvikum. Dýramyndir sem er víða að finna í bókinni koma efninu hins vegar ekki beinlínis við. Þær eru teiknaðar af Jóni Bjarnasyni bónda í Þórormstungu í Húnavatnssýslu um miðja 19. öld. Mér fannst þessar myndir óþarfar en það er kannski bara vegna þess að ég er því vön að myndefni í kennslubókum þjóni tilgangi og veit ekki hvernig ég á að taka myndum sem eru bara til skrauts. Heildaruppsetning bókarinnar er nokkuð góð. Hún er í aflöngu broti og full af litmyndum. Letrið er læsilegt en dálítið smátt. Ástæða er til að ætla að nemendur með lestrarörðugleika ættu í erfiðleikum með að lesa bókina en með hljóðbókinni leysist kannski það vandamál. Mér fannst bókin skemmtilega skrifuð og á léttu og lipru máli sem ætti, ásamt efnistökum, að stuðla að því að vekja og viðhalda áhuga nemenda. Námsgagnastofnun hefur gefið út á vef sínum kennsluleiðbeiningar upp á 126 síður sem Þorsteinn hefur einnig samið. Þar er að finna tillögur um kennsluaðferðir, ítarefni, spurningar og verkefni auk lausna. Leiðbeiningarnar skiptast í kafla með sömu heitum og bókin en auk þess er hægt að fá verkefnin og lausnirnar í word formi svo kennarar geti klippt saman efni og búið til verkefnabækur. Mörg verkefnin bjóða upp á hópavinnu, fjölbreytta kennsluhætti eða þemavinnu. Sennilega er of mikið að láta nemendur leysa öll verkefnin en mér finnst jákvætt að hafa fjölbreytt efni sem kennarinn getur valið úr. Það er mjög jákvætt og mikill tímasparnaður fyrir kennara að hafa aðgang að lausnum. Helsti gallinn við kennsluleiðbeiningarnar finnst mér vera sá að þegar ég smellti á kaflana opnuðust þeir í öðrum ramma. Það tók dálítið langan tíma þrátt fyrir að ég væri með ADSL tengingu. Ég held að kennarar með lélega tengingu heima gætu því lent í erfiðleikum og kannski ekki nennt að skoða efnið og nýta það. Að lokum vil ég segja að mér finnst Ein grjóthrúga í hafinu áhugaverð og spennandi bók sem ég hlakka til að kenna 7. bekk eftir áramót. Kristín G. Snæland Höfundur er grunnskólakennari og hefur kennt samfélagsfræði í áratug Höfundur: Þorsteinn Helgason. Ritstjóri: Ellen Klara Eyjólfsdóttir. Ein grjóthrúga í hafinu. Kennslubók í sögu. Námsgagnastofnun Reykjavík 2004 Kennsluleiðbeiningar á vef fylgja efninu www.namsgagnastofnun. is/allt-namsefni/vorunr/2659) Ein grjóthrúga í hafinu Ritdómur Kristínar G. Snæland er birtur hér í nokkuð styttri útgáfu. Hann er að finna í fullri lengd, ásamt með fleiri ritdómum og fregnum á vef Netlu netla.khi.is undir liðnum „Ritfregnir“. Kristín G. Snæland

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.