Skólavarðan - 01.03.2006, Qupperneq 18

Skólavarðan - 01.03.2006, Qupperneq 18
18 TÍU PUNKTA SAMKOMULAGIÐ SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Samkomulag Kennarasambands Ís- lands og menntamálaráðuneytis um tíu skref til sóknar í skólastarfi var undirritað á blaðamannafundi þann 2. febrúar sl. Menntamálaráðherra bauð menn velkomna með þessum orðum: „Við erum hingað komin til að kynna samstarf og samvinnu ráðuneytis menntamála og Kennarasambandsins varðandi skólastarf og skólaumbætur í þágu alls menntakerfi sins. Þetta hefur átt sér nokkurn aðdraganda, við erum búin að vinna að þessu í nokkrar vikur og við höfum átt nokkuð marga fundi, sérstaklega með tilliti til þess sem við köllum styttingu náms til stúdentsprófs. Það skiptir miklu máli að þau markmið verði sett í sátt og samstarfi , - hvað mig varðar í samstarfi við fagaðila sem eru að sjálfsögðu kennararnir.“ Ráðherra lýsti yfi r ánægju sinni með samstarfi ð við kennaraforystuna í undirbúningi samkomulagsins og formaður KÍ tók í sama streng. „Það er rétt að við höfum skoðað þetta mál lengi,“ sagði Eiríkur Jónsson á fundinum, „og umræðan hefur oftast verið undir þeim formerkjum að tala um styttingu og skerðingu. Það er ljóst að Kennarasambandið er á móti skerðingu náms. Jafnframt er ljóst að við tókum ákvörðun um að ganga inn í þetta samstarf til þess að hafa áhrif á framtíð skólakerfi sins. Við vitum að valdið í lýðræðisþjóðfélagi liggur hjá Alþingi. Við vitum líka að sá aðili sem er líklegastur til að hafa áhrif á með hvaða hætti mál eru lögð fyrir þing er ráðherra viðkomandi málafl okks. Við væntum þess að vinnan framundan byggist á sama trúnaði og ríkt hefur hingað til og vonum að þetta sé upp- hafi ð að nýju og betra samstarfi okkar og ráðuneytisins.“ Þingmenn úr öllum fl okkum fögnuðu samkomulaginu en í hópi kennara voru margir efi ns og aðrir reiðir. Fjölmiðlar sýndu málinu talsverða athygli og ásamt með aðsendum greinum og leiðara- skrifum í dagblöðum og ályktunum frá kennarafundum var tekinn fjöldi viðtala við hlutaðeigandi aðila þar sem sitt sýndist hverjum. Á þessum síðum er að fi nna útdrætti úr ályktunum, stutt viðtöl og fl eira þar sem fjallað er um samkomulagið af hálfu Kennarasambandsins, einstakra félags- manna þess og stjórna aðildarfélaga. Hvað sem fólki fi nnst er mikilvægt að fá að heyra sem fl estar raddir og gefa gaum að sem fl estum sjónarhornum. Áfram verður fjallað um þessi mikilvægu mál á síðum Skólavörðunnar í næstu tölublöðum og héreftir sem hingað til á vef KÍ, www.ki.is keg AF VERKEFNISSTJÓRN Byrjað með hreint blað Um mánaðamótin febrúar-mars tók til starfa verkefnisstjórn um framkvæmd tíu punkta samkomulags Kennarasambands Íslands og menntamálaráðherra um heildarendurskoðun á námi og breytta námskipan skólastiganna. Fulltrúar Kennarasambandsins í verkefnisstjórninni eru Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður KÍ, og Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. Fulltrúar mennta- málaráðuneytis eru Karl Kristjánsson og Sigurjón Mýrdal. Þegar þetta er skrifað hefur nefndin fundað tvisvar sinnum og Skólavarðan náði rétt í skottið á önnum köfnum Elnu og Ólafi skömmu eftir seinni fundinn. „Það sem ég upplifði jákvætt á fyrsta fundinum,“ segir Elna, „er að menn settust niður og sögðu: Við skulum byrja með hreint blað, skoða málin með opnum huga.“ Ólafur tók undir þetta og sagði menn hafa rætt vítt og breitt eins og við væri að búast í upphafi samstarfs af þessum toga. „Þess gætir auðvitað,“ sagði Elna, „að ráðuneytismenn hafa lengi unnið á grundvelli bláu skýrslunnar svokölluðu og áforma þar um að stytta og skerða. Af okkar hálfu ber umræðan vott um að KÍ hefur jafnlengi staðið í baráttu gegn þeim áformum. Þetta snýst því um að fi nna samræðugrundvöll. Við höfum lagt mjög staðfastlega til að lagt verði til hliðar það sem gert hefur verið og byggist á ákvörðunum um að stytta og skerða - svo sem bláa skýrslan frá 2004 og námskrárdrögin sem unnin voru á grundvelli hennar - og að reynt verði að sameinast um einhvers konar sýn á heildarendurskoðun á menntakerfi nu. Hvaða úrbótamál við getum orðið sammála um – líka yfi r mörk skólastiga. Allt frá árinu 2003 hafa Kennarasambandið og menntamálaráðuneytið unnið hvort um sig að mjög ólíkri stefnumörkun um umbætur í menntakerfi nu. Það ár kom skýrt fram Tíu punkta samkomulagið

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.