Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 30

Skólavarðan - 01.03.2006, Síða 30
30 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 6. ÁRG. 2006 Séreignarsparnaður hefur verið kynnt- ur sem eitt hagstæðasta sparnaðarform sem völ er á. Séreignarsparnaður eykur sveigjanleika við starfslok og bætir fjárhagslega stöðu á efri árum. Launþegar eru hvattir til að spara auka- lega allt að 4% af heildarlaunum sínum og fá greitt kjarasamningsbundið mót- framlag frá launagreiðanda. Þar að auki eru hagstæð áhrif skattfrestunar á sparnaðinn. Þetta eru tvímælalaust kostir sem eru til hagsbóta fyrir alla. En skerðir séreignarsparnaður greiðslur frá Tryggingastofnun? Er hagkvæmt fyrir þá sem fá greiðslur frá TR að leggja fyrir í séreignarsparnað? Það er einfalt að svara því, séreignarlífeyrir fylgir sömu reglum og aðrar lífeyrisgreiðslur og skerðir ekki grunnlífeyri frá Tryggingastofnun. Greiðslur séreignarlífeyris, eins og aðrar lífeyrisgreiðslur, geta hinsvegar skert tekjutengdar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun. Ef meta skal hagkvæmi séreignarsparnaðar fyrir þá launþega sem eru að nálgast starfslok þá þarf að huga að nokkrum þáttum. Við 60 ára aldur öðlast séreignarsjóðfélagar rétt til útborgunar séreignarlífeyris. Sá réttur er ekki háður starfslokum og getur sjóðfélagi fengið greiddan séreignarlífeyri samhliða iðgjaldagreiðslum inn á séreign sína. Við 67 ára aldur er allur séreignar- sparnaðurinn laus til útborgunar. Þeir sem eiga von á tekjutengdum lífeyrisgreiðslum frá Tryggingastofnun er sérstaklega bent á að kynna sér vel sveigjanlegar útborgunarreglur séreignarlífeyris. LSR býður sjóðfélögum aðstoð og ráðgjöf við ákvörðun um hvernig best er að haga útborguninni. Séreignarsparnaður er því í öllum tilvikum hagstæður sparnaðarkostur fyrir launþega. Ráðgjafar LSR veita sjóðfélögum nánari upplýsingar um útborgunarreglur sér- eignarsparnaðar og ráðgjöf um hvernig best er að haga útborgun séreignarlífeyris. Sjóðfélögum er velkomið að hafa samband í síma 510-6100, senda netfyrirspurn á netfangið sereign@lsr.is eða með því að koma í heimsókn á skrifstofu sjóðsins að Bankastræti 7. Ágústa H. Gísladóttir Höfundur er deildarstjóri Séreignar LSR Skerðir séreignarsparnaður greiðslur frá Tryggingastofnun? SMIÐSHÖGGIÐ nemendum sem kennurum. Það er ekki bara við framhaldsskólann að sakast í þessum efnum. Skoða þarf allt skólakerfið sem samfellu, sem heildstætt ferli. Skólakerfið þarf að vera í stöðugri endurskoðun, stöðugri sjálfsskoðun og við eigum að leggja metnað okkar í að byggja upp besta námsumhverfi sem völ er á hverju sinni bæði fyrir nemendur og kennara. Náin samvinna milli grunn- og framhaldsskólans er nauðsynleg forsenda til að slíkt markmið náist. Það er jákvætt að hafa betra flæði milli skólastiga og var fyrir löngu orðið tímabært. Margir nemendur eru færir um að hefja nám í framhaldsskóla eftir 9. bekk, aðrir þurfa lengri tíma í grunnskólanum. Mín skoðun er sú að koma ætti á áfangakerfi í síðustu þrem bekkjum grunnskólans sem byggðust á sömu forsendum og kerfi framhaldsskólans. Nemendum er ekki gerður nokkur greiði með því að færast sjálfkrafa milli bekkja í grunnskólanum án þess að hafa náð settum námsmarkmiðum. Skellinn fá þeir í framhaldsskólanum. Í stað þess að stefna að skerðingu náms nemenda í framhaldsskólum ætti fremur að vinna að því að búa til framhalds- skóla fyrir alla og það í nánu samstarfi við grunnskólann. Það er nauðsynlegt að koma til móts við nemendur með sértæka námsörðugleika þannig að þeir geti haldið sjálfsvirðingu sinni í skólanum og útskrifast sem fullgildir verkmenn út í atvinnulífið. Ekki er síður nauðsynlegt að standa við bakið á sterkum nemendum, örva þá og styrkja í hvívetna til enn frekari dáða í náminu. Gleymum því ekki að menntunin gerir okkur mennsk. Jórunn Tómasdóttir Höfundur er framhaldsskólakennari Menntamálaráðuneytið hélt hinn 20. febrúar sl. lokað málþing um stöðu leikskólans í samfélaginu en að undanförnu hefur mikil umræða farið fram um málefni leikskóla, starfs- mannavanda og kjör starfsfólks á leikskólum. Málþingið var haldið með ýmsum hagsmunaaðilum og fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Samráðsnefnd leikskóla var beðin um af ráðherra að undirbúa málþing með hagsmunaaðilum sem koma að leikskóla- málum í þeim tilgangi að fjalla um stöðu leikskólans í samfélaginu og koma með tillögur um eflingu þessa skólastigs. Í nefndinni sitja fulltrúar frá ráðuneytinu, Félagi leikskólakennara, Sambandi ísl- enskra sveitarfélaga og Eflingu stéttar- félagi. Málþingið hófst á ávarpi menntamála- ráðherra. Í máli sínu setti hún fram ýmsar leiðir sem ráðuneytið telur vænlegar og nauðsynlegar til að veita leikskólanum, nemendum hans, leikskólakennurum, öðru starfsfólki leikskóla og foreldrum, betra starfsumhverfi. Hún nefndi einnig mikil- vægi samkomulags menntamálaráðu- neytis og Kennarasambands Íslands um skólastarf og skólaumbætur - 10 skref til sóknar sem undirritað var nýlega og tengist sérstaklega áformum um breytta námsskipan. Að loknu ávarpi ráðherra gafst þingfulltrúum frá u.þ.b. 20 hagsmunaaðilum og öllum stjórn- málaflokkum tækifæri til að koma á framfæri sjónarmiðum sínum um stöðu leikskólans og hvar umbóta væri þörf í starfsemi hans. Menntamálaráðuneyti mun taka saman greinargerð um þingið og samantekt með helstu tillögum um aðgerðir. Hún verður kynnt fyrir stjórn- völdum og hagsmunaaðilum og gerð aðgengileg á vef ráðuneytisins. Heimild: Vefrit menntamálaráðuneytisins Vel heppnað málþing um stöðu leikskólans

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.