Skólavarðan - 01.09.2006, Blaðsíða 10
10
NÁMSMAT
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 6. ÁRG. 2006
Fyrir ráðstefnu Samtaka áhugafólks
um skólaþróun sem haldin var í Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ 14. ágúst
síðastliðinn vorum við beðnar um að
gera grein fyrir hvernig námsmati
væri háttað í framhaldsskólum. Við
höfum báðar kennt íslensku við
Menntaskólann við Hamrahlíð á annan
áratug og vitum því allvel hvernig
námsmati er háttað í þeirri grein, a.m.k.
við okkar skóla. En við gerðum okkur
grein fyrir því að hæpið væri að alhæfa
um námsmat í framhaldsskólum út
frá því. Við lögðum því í þá vinnu að
skoða námsáætlanir eins og þær voru á
síðustu önn í nokkrum kjarnagreinum,
sem flestir nemendur bóknámsskóla
þurfa að taka, til að sjá hvað þar væri
sagt um námsmat.
Eftir að hafa skoðað nokkra skóla völdum
við að lokum þrjá og gættum þess að taka
dæmi bæði um bekkjarskóla og fjölbrauta-
skóla. Þessir skólar eru Menntaskólinn við
Hamrahlíð, Menntaskólinn á Akureyri
og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ. Upplýs-
ingarnar nálguðumst við á heimasíðum
skólanna og tekið skal fram að við fórum
ekki í skólana og töluðum ekki heldur
við kennara heldur unnum bara út frá
því sem segir í námsáætlunum enda er
markmið okkar með því sem hér fer á eftir
fyrst og fremst að gefa gróft yfirlit yfir
námsmatsleiðir framhaldsskólanna.
Hvaða leiðir eru farnar í námsmati
í íslenskum framhaldsskólum?
Menntaskólinn við
Hamrahlíð
Menntaskólinn á
Akureyri
Fjölbrautaskólinn í
Garðabæ
Ísl103/102 50% lokapróf (engar upplýsingar) 60% lokapróf
Ísl203/202 50% lokapróf 70% lokapróf 45% lokapróf
Ísl303 35% próf á miðri önn
og 25% próf í lok annar
80% lokapróf 55% próf á miðri önn
og 35% próf í lok annar
Ísl403 30% próf á miðri önn
og 30% próf í lok annar
(engar upplýsingar) (engar upplýsingar)
Ísl503 40% lokapróf 65% lokapróf 50% lokapróf
Menntaskólinn við
Hamrahlíð
Menntaskólinn á
Akureyri
Fjölbrautaskólinn í
Garðabæ
Stæ103 70% lokapróf 60% lokapróf 60% lokapróf
Stæ203 70% lokapróf 60% lokapróf 60% lokapróf
Stæ303/313 (engar upplýsingar) 70% lokapróf 60% lokapróf
Stæ603 50% lokapróf (engar upplýsingar) (engar upplýsingar)
Menntaskólinn við
Hamrahlíð
Menntaskólinn á
Akureyri
Fjölbrautaskólinn í
Garðabæ
Ens103 50% lokapróf (engar upplýsingar) (engar upplýsingar)
Ens202/203 (engar upplýsingar) 60% lokapróf 50% lokapróf
Ens303 50% lokapróf 60% lokapróf 50% lokapróf
Við byrjuðum á því að skoða námsáætlanir í íslensku. Eins og sjá má á töflunni
er áhersla á yfirlitspróf þó nokkur í íslenskuáföngum. Alls staðar er tiltekið að
nemendur taki lokapróf og gilda þau frá 40% (Ísl503 í Menntaskólanum við
Hamrahlíð) til 90% (Ísl303 í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, sem virðist hafa e.k.
lotukerfi þar sem um er að ræða tvö lokapróf) af lokaeinkunn í áfanga. Annað
námsmat sem tilgreint er í námsáætlunum felst t.d. í ritgerðum og ýmsum
ritunarverkefnum, munnlegum kynningum, frammistöðu í kennslustundum,
lestrarkönnunum, ástundun og mætingu.
Í námsmati í ensku virðist vera minni breidd en í íslensku, þ.e. námsmatið er líkara
milli skóla. Lokaprófin eru 50-60% og hér tíðkast ekki lotukerfi eins og sást t.d.
í íslenskunni. Sem dæmi um annars konar námsmat sem tilgreint var má nefna
munnleg próf, tímapróf, verkefnavinnu, ritgerðir og ástundun. Athygli okkar vakti
að í ensku 303 í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ gildir verkmappa (portfolio) 10%
af heildareinkunn áfangans og þar er tekið fram að gert sé ráð fyrir sjálfsmati.
Þetta var eina dæmið um sjálfsmat sem við fundum í þeim námsáætlunum sem
við skoðuðum, hvergi er minnst á jafningjamat.
Í stærðfræðinni er hlutur yfirlitsprófa gjarnan orðinn meiri en í íslenskunni,
eða 50-70%. Þetta sýnist okkur fela í sér minni fjölbreytni í námsmati. Annars
konar námsmat sem tilgreint var fólst t.d. í heimaverkefnum, tímaæfingum,
skyndiprófum og ástundun. Einu sinni var samvinnuverkefni nefnt. Var það
í stærðfræði 313 í Menntaskólanum á Akureyri og gilti verkefnið 15% af
heildareinkunn í áfanganum en ekkert var nánar tilgreint í hverju það fólst.
Tafla 1
Tafla 2
Tafla 3
LOKAPRÓF VEGA ÞYNGRA Í RAUNGREINUM
Rósa Maggý Grétarsdóttir og
Sigurbjörg Einarsdóttir
LJ
ó
sm
yn
d
f
rá
h
ö
fu
n
d
u
m