Skólavarðan - 01.09.2006, Page 15
SKÓLAVARÐAN 6.TBL. 6. ÁRG. 2006
Í septemberbyrjun funduðu fulltrúar
leik,- grunn- og framhaldsskólakennara
á Norðurlöndum í Reykjavík og á Sel-
fossi um ýmis sameiginleg hagsmuna-
mál ásamt því að hlýða á fyrirlestra.
Fulltrúarnir komu hingað á vegum
norrænu kennarasamtakanna (NLS) og
margir þeirra sátu jafnframt ráðstefnu
EECERA um lýðræði og menningu í
menntun yngri barna sem fram fór
dagana á undan.
Meðal fyrirlesara var Ingi Rúnar Eðvarðs-
son prófessor við Háskólann á Akureyri
sem fjallaði um launa- og ráðningarmál
kennara á Norðurlöndum. Skemmst er frá
að segja að fyrirlesturinn vakti mikla athygli
og þótti bitastæður. Ingi Rúnar sagði
meðal annars að þær miklu breytingar
sem hefðu orðið á vinnumarkaði og víðar
í samfélaginu - frá líkani regluveldisins yfir
í markaðsstýrt samfélag þar sem fyrirtæki
eru notuð sem fyrirmynd að stjórnarháttum
- gætu haft slæmar afleiðingar á kjör fólks
og full þörf á að ræða og fylgjast vel með
þessum málum.
Í samningamálum hefur sk. frammi-
stöðumati vaxið fiskur um hrygg en þótt
það sé í grunninn lýðræðislegt kerfi leiðir
það til ójöfnuðar þegar upp er staðið
þar sem launamunur eykst í kjölfarið.
Þá tengist frammistöðumatið jafnframt
því að gerðar eru nýjar og auknar
kröfur til starfsmanna og frá upphafi
eru skilgreind þau verkefni sem geta
leitt til kauphækkunar. Fjölgun verkefna
þýðir að sjálfsögðu aukið vinnuálag og
Ingi Rúnar sagði líkur á að þetta gæti
bitnað á fagmennskunni. Jafnframt færi
starfsöryggi minnkandi og það hefði aftur
þau áhrif að fólk þyrði ekki að standa á
rétti sínum.
Annar stór áhrifavaldur á vinnuum-
hverfi og kjaramál er hin títtnefnda
hnattvæðing sem Ingi Rúnar sagði að gæti
vegið að ýmsum þeirra grundvallarrétt-
inda sem við Norðurlandabúar eigum
að venjast. Framleiðsla flyst til Asíu og
annarra láglaunasvæða sem veldur því að
kröfur launamanna verða smám saman
minni. Ingi Rúnar nefndi í því sambandi að
ameríkanisering á félagslegum réttindum
gæti fylgt fjölþjóðlegum fyrirtækjum. Hún
leiðir til þess að eldri sjálfsögð réttindi á
borð við jólaleyfi lenda hvert á fætur öðru
í glatkistunni.
Umræða í vinnuhópum
Fundahaldi lauk á Hótel Selfossi 6. septem-
ber með málstofum og hópastarfi þvert
Fulltrúar norrænna
kennara funda á Íslandi
Aukið vinnuálag
bitnar á fagmennsku
15
6. Nefnd um framhaldsskólalög
Starfslok skv. erindsbréfi janúar 2007
(frumvarp), áfangaskýrsla október 2006.
Fulltrúar KÍ: Anna María Gunnarsdóttir,
Ingibergur Elíasson, til vara Aðalheiður
Steingrímsdóttir, Haukur Már Haraldsson,
áheyrnarfulltrúi KÍ/grsk. Sigurður Haukur
Gíslason, til vara Brynja Á Sigurðardóttir.
Heildarendurskoðun á lögum nr. 80/1996
með síðari breytingum.
7. Nefnd um almenna námsbraut
Starfslok skv. erindsbréfi lok október 2006.
Fulltrúar KÍ: Kristín Jónsdóttir, Reynir
Daníel Gunnarsson, Þórunn Friðriksdóttir,
til vara Þorgerður Diðriksdóttir, Auður
Árný Stefánsdóttir, Aðalheiður Steingríms-
dóttir. Tengir starf sitt við starfsnámsnefnd
og nefnd um sveigjanleika og fjölbreytni...
(náms- og námsskipunarnefnd).
8. Nefnd um endurmenntun leik- og
grunnskólakennara
Nefnd á grunni fyrri nefndar (tilnefningar-
bréf 17.1. 2006) sbr. 3. tl. í neðri lista en
aukin og með breytt hlutverk í tengslum
við 10 punkta samkomulag.
Fulltrúar KÍ: Guðlaug Erla Gunnarsdóttir,
Lóa Björk Hallsdóttir Soffía Guðmunds-
dóttir, Þórður Árni Hjaltested.
9. Nefnd um starfsnám
Hefur lokið störfum, skýrsla til mennta-
málaráðherra júní 2006.
Fulltrúi KÍ: Aðalheiður Steingrímsdóttir.
10. Nefnd um framtíðarskipun
kennaramenntunar
Hefur lokið störfum, skýrsla til mennta-
málaráðherra mars 2006.
Fulltrúi KÍ: Elna Katrín Jónsdóttir.
11. Nefnd um fjar- og dreifnám
Tekur til starfa í september.
Starf tengist nefndum skv. tl. 2, 7 og e.
atvikum 5 og 6 (laganefndunum).
12. Nefnd um námsráðgjöf
Tekur til starfa í september.
Starf tengist nefndum skv. tl. 2, 7 og e.
atvikum 4, 5 og 6.
á skólastig, þar sem fjallað var í þremur
hópum um launa- og ráðningar-mál, skil
skólastiga og brottfall.
Skil skólastiga
Í hópnum sem fjallaði um skil skólastiga
kom meðal annars fram að mikilvægt er að
kennarar taki virkari þátt í samfélagslegri
umræðu um þetta mál en verið hefur, meðal
annars með því að hefja rannsóknavinnu
í grasrótinni (kennslustofunni) til vegs
og virðingar ásamt því að tryggja að
niðurstöður rannsókna berist til kennara
og víðar í samfélaginu. Undirstrika þarf
heildarsýn á menntun til að vega upp á
móti þeirri aðgreiningu skólastiga sem
TÍU PUNKTA SAMKOMULAGIÐ, NLS FUNDIR
LJ
ó
sm
yn
d
ir
: k
eg